Fálkinn - 18.04.1931, Blaðsíða 1
Hinrii langvarandi deilu um stjórnarskipun Spánverja er nú lokið — í bili — rneð fullum sigri lýðveldismanna. Konung-
urinn hefir sagt af sjer og lýðveldissinnar myndað nýja st jórn og munu þeir nú kalla saman þjóðþing til þess að semja
ríkinu nýja stjórnarskrá. Um aðdraganda þessara viðburða er ekki fyllllega kunnugt þegar þetta er ritað, en svo mikið er
víst, að stjórn Aznars, sem mynduð var nýlega, hefir ekki getað lafað við völd lengur, af þeirri einföldu ástæðu, að henni
var ekki hlýtt. En þessi stjórn var síðasta þrautalending konungsvaldsins og að henni frágenginni var engin von til, að
konungur gæti setið við völd áfram. — Myndin hjer að ofan er tekin af Alfons konungi þegar hann var í Englandi nýlega.
LÝÐVELDI Á SPÁNL