Fálkinn


Fálkinn - 18.04.1931, Qupperneq 6

Fálkinn - 18.04.1931, Qupperneq 6
6 F A L K I N N Svona er ösin af fólki, sem leitast við að fú aukastörf hjá kvikmynda- fjelögunum. Þúsundir m anna eru atvinmtlausir. leiða myndir handa öllum lieim- inum, skapaðist hinn mikli kvik- myndabær Hollywood. Stofnendur flestra af hinum stóru kvikmyndafjelögum Ame- ríku hafa byrjað i smáum stíl — með nokkur hundruð dollara, sem þeir keyptu fyrir ljósmynda- vjel og leiktjöld. Með þessum ó- nóga útbúnaði tóku þeir fyrstu myndir sínar. Margir þessara manna eignuðust hátt upp í mil- jón dollara áður en þeir vissu af, en fyrstu miljónina er erfið- ast að græða. Nú eiga þeir tugi miljóna, eru forsprakkar einnar stærstu atvinnugreinar í ríkjun- um og hafa hundruð þúsunda af fólki í þjónustu sinni. Eins og gefur að skilja hafði fjöldinn allur af þessum mönn- um, sem græddu á kvikmyndum í bernsku þeirra enga þekkingu á listum. Þeir voru aðeins kaup- sýslumenn. Þeir líta á það eitt hvort kvikmyndin muni borga sig en annað ekki. Yfirleitt er Hollywood enginn lista- eða menningarbær, cins og t. d. hinar gömlu borgir Evrópu. Þar er t. d. ekkert leikhús, sem sýnt geti leikril eftir Shake- speare. Ferðaleikfjelög sneiða jafnan fram hjá Hollywood, því að þau hafa reynt, að þar er al- drei hægt að láta leiksýningu horga sig. Á strætum borgarinn- ar er krökt af gimsteinasölum og tískuverslunum, e'n varla nokkur sæmileg bókabúð. Lista- Órabelgurinn Harold Liogd er rik- asti leikarinn í Hollywood. Hann á 12 miljón dollara og grœðir sífelt meira. verkaverslun er engin í Holly- wood en hins vegar afar mikið af verslunum, sem selja eftirlik- ingar af fornum munum og þær græða allar. — Yfir Hollywood er andrúmsloft andlegrar ar- móðar, segir þýzki kvikmynda- fræðingurinn dr. Erwin Debries, sem nýlega er kominn þaðan. Hollvwood hefir selt vjela- menningunni sál sína. Hið sál- ræna er bannfært þar. Fólkið heldur dýrar veislur, en um- ræðuefnið er: laun kvikmyndar- anna, hneyksissögur og bifreiðar. Kvikmyndakongarnir og „stjörn- urnar“ byggja sér dýra, íburðar- míkla en ósmekklega hústað*, með skurðum og girðingum í kring, húsgögnin eru vjeliðnað- ur og enginn ákveðinn still i fyr- irrúmi. Á veggjunum eru gljá- myndir og í bókaskápnum bæk- ur í dýrindis bindum, sem aldrei eru opnaðar. Ibúðarhverfin líkj- ast sumarskemtistöðum með fár- ánlegum húsum í allskonar líki. Þar stendur liús i „renaissance“- stíl við hliðina á hollensku múr- húsi, mexikonsku sveitabýli, kín- verskum hreysum eða Tyroler- bæjum. En skrautbílar þjóta um malbikuð strætin á fleygiferð. Fólk græðir ógrynni fjár í Hollywood. En gamanið stendur sjaldnast lengi. Og lífið, sem frægu leikararnir þykjast neydd- ir til að lifa, er dýrt. Þessvegna eru fæstir kvikmyndaleikendur rikir. Margir heimsfrægir kvik- myndaleikendur, sem hafa haft of fjár í tekjur í mörg ár, hafa staðið eftir tómhentir, þegar æf- intýrinu var lokið. I fyrsta lagi er það dýrt að hafa stórt lieimili, halda veislur, herast á í klæða- hurði, hafa einkaritara, auglýs- ingastjóra, umboðsmenn og heil- an hóp af þjónaliði. Og i öðru lagi er því eins varið um leikar- ana og annað fólk sem peninga hefir í Ameriku. Það getur ekki 'stilt sig um að braska á kaup- höllunum. Nýlega fór stærsti bankinn í Hollywood á hausinn og þá misti fjöldi leikara aleigu sina. Arfleiðsluskrá Milton Sills er áþreifanlegur vottur um, hve lausir peningarnir eru í liöndum kvikmyndaleikaranna. Hann hafði i mörg ár fengið hið hæsta lcaup sem nokkrum leikara var borgað. Þó ljet liann ekki eftir sig nema 100,000 dollara og það eru smámunir í Ameríku. Og Wallace Reid, einn vinsælasti leikari á sinni tíð og dó í hlóma lifsins, var svo fátækur, að ekkja hans varð að vinna fyrir sjer með vjelritun. Charles Ray, sem var að tapa vinsældum um líkt leiti og Reid dó, hafði dregið saman dálitla fúlgu og stofnaði sjálfur til myndaframleiðslu, en fólk var orðið leitt á honum og 'hann tapaði öllu sína á tilraun- inni. Nú stendur þessi maður í röðunum fyrir framan kvik- myndahallirnar til þess að hiðja um smáhlutverk við og við. Verulega ríkir verða aðeins framleiðendurnir. En annars eru miljónamæringarnir í Ameríku aðallega í. austurrikjunum. Það er vandi að verða ríkur fyrir ‘vestan Missisippi, segja Ameríku- menn. Eini leikarinn, sem græðir nokkuð í áttina til þess, sem iðju- höldarnir gera, er Harold Lloyd. Hann greiðir skatt af 12 miljón dollara eign. En þar stendur sjer- staklega á. Lloyd er heppinn í kauphallarhraski og svo kostar hann myndir sínar sjálfur og fær af þeim allan ágóðan. Hús hans í Hollywood kostaði miljón doll- ara. Charlie Chaplin er ekki jafn- Sœnska ieikkonan Greta Garbo. oki hans, enda hefir liann orðið fyrir útgjöldum. Þannig varð hann að borga konu sinni miljón dollara er húii skildi við hann og auk þess hálfa miljón í skatta, sem konan liafði átt að greiða, en „gleymt“. Hún annaðist nfl. f járreiður hans. Fátækur er hann þó ekki. Hann er talinn eiga 6 rniljónir, en lielming þess hefir hann lagt i myndina ,City Lights1. Chaplin kostar sínar myndir sjálfur eins og Lloyd. Mary Pickford er sú kvik- myndadís, sem flestir kannast við í heiminum. Hún hefir sitt eigið fjelag, en stórgróði liefir ekki orðið á nema fyrstu mynd- um hennar. Hún á til 2—3 mil- jón dollara og er nú að hætta að leika. Eigi vita menn livað mik- ið Douglas Fairbanks, maðurinn hennar á. Hann græddi of fjár 1923—24 en hefir siðan tapað miklu á hlutakaupum í olíufje- lögum í Kaliforníu. Af kvikmyndafólki í Holly- wood, sem á yfir miljón dollara má nefna: Norma Talmadge, Marion Davies, Colleen Moore og Corinne Griffith. Hátt upp í mil- jón eiga Norma Shearer, Greta Garbo og Ricliard Barlhelmess. Jaekie Coogan var orðinn svo ríkur þegar hann kom úr barna- skólanum, að hann hefði getað lifað á rentunum alla æfi sína. En svo kemur fjöldinn. Hann hefir ekki grætt. Hann hefir þyrpst til Hollywood í von um gull og græna skóga og ekkert haft upp úr nema vonbrigðin. Lögreglan í Monroe í Michigan gerði nýlega aðsúg að bófaflokki ein- um og liandtók 50 manns en tók seni herfang fjölda af vjelbyssum, skannn- byssum og skotfærum. Ellefu af þess- uin mönnum hafa gert ýmislegt ilt af sjer í New York og eru taldir for- ustumenn í einu versta glæpamanna- fjelaginu þar. Höfðu þeir aðsetur i Monroe, til þess að erfiðara væri að hafa upp á þeim. í Monroe liöfðu þeir aldrei gert neitt ilt af sjer. -----x---- Abbadís í klaustri einu í Malines í Belgíu var nýlega tekin föst fyrir fjársvik. Hafði henni tekist að sölsa undir sig um tíu miljón franka sem alt hafði farið í mishepnuð gróðabrallsfyrirtæki. -----x----

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.