Fálkinn - 11.07.1931, Qupperneq 8
8
F A L IC I N N
Fá lönd hafa orðið ver úti vegna
verðfallsins á korni en hveitilandið
Canada. Flestir hændur í Canada
hafa hveitiframleiðslu að aðalat-
vinnu, etx verðið hefir ná í nokkur
ár verið svo lágt, að framleiðslan
hefir gefið tap en ekki vinning.
Hafa Canadabændur þó ágæt sam-
tök um sölu, hinn svokallaða
„Wheat-pool“, sem gætir þess, að
takmarka framboð og reyna að
halda verðinu jöfnu. Þetta sölu-
samlag hefir komið sjer upp korn-
birgðahúsum víðsvegar um landið
og á einnig kornmyllur víða um
heim, ')g hefir yfir miklu fjármagni
að ráða. Hjer á myndinni sjest að
ofan einn af hinum geysislóru
hveitibirgðaskálum fjelagsins við
Port Arthur í Ontario og sömuleiðis
hluti af höfninni í Montreal þar
sem sambandið á hveitiskála og
skipar út hveiti til Evrópu. En að
neðan sjest einkennilegt gufuskip.
Það er notað til flutninga á vötnum
á siti vald sjálfri liöfuðborg þeirra.
lengd og lestar 571.000 „bushel“.
i
Hjer á myndinni sjest Pic-
card prófessor, sem frægur
er orðinn fyrir ferð sína 16
kílómetra upp i himingeym-
inn nýlega. Sýnir myndin
einnig aðstoðarmenn hans,
en bak við þá sjest málm-
kúlan, sem prófessorinn og
förunautur hans voru í á
leiðinni. Piccard segist ekki
munu endurtaka þessa ferð
sína. Hann er svissneskur að
ætt, en belgisk vísindastofn-
un lagði honum fje til farar-
innar.
Eftir byltinguna á Spáni
eyðilögðu lýðveldissinnar
víða standmyndir af spönsk-
um konungum. Þó hlífðu
þeir nokkrum myndum, en
hbngdu í staðinn á þær
spjöld, með skopyrðum um
spönsku konungana. Sjást
tvær þessara standmynda
hjer til hægri.
V'-
;V Wófýj. wm mmmm
Íáll ',>V .} „'M Bfhj jjf«|g§py ■
Hinn 16. júní 1871 var mikið um að
vera í Berlín. Þá hjelt þýslci herinn
fylktu liði inn í borgina, eftir að
hafa unnið sigur á Frökkum og náð
Norður-Ameríku, og er 630 fet á
Frakkar mistu Alsace og Lorraine
og urðu að greiða hernaðarskaða-
bætur, sem þóttu ægilegar á þeirra
tíma mælikvarða, en guldust fljótar
en búisl hafði verið við. Síðan greri
aldrei um heilt milli nágrannanna
og má segja, að sæðinu að heims-
styrjöldinni hafi verið sáð í stríðinu
1870—71. Upp úr þeim ófriði varð
Þýskaland keisaradæmi undir Vil-
hjálmi Prússakonungi. Myndin hjer
að ofan er teiknuð af atburðinum
16. júní fyrir 60 árum og sýnir her-
inn vera að koma inn úr Branden-
borgarhliðunum. I fylkingarbrjóst-
inu sjást þeir Bismarlc og Moltke á
hestbaki, en á miðri myndinni Vil-
hjálmur keisari umkringdur af
ungum stúlkum, sem rjetta honum
blóm. — Margt liefir breyst í Þýska-
landi á þeim 60 árum, sem liðin ern
síðan■