Fálkinn - 11.07.1931, Blaðsíða 9
P A L K I N N
y
Hinn 22. f. m. voru liðin 25 ár síðan Carl Danaprins, bróð-
ir Kristjáns konungs tíunda, og Maud drotning, dóttir Játvarð-
ar 7. Englalconungs voru krýnd konungur og drotning Noregs
og tók konungur þá nafnið Hákon 7. En riki hafði hanu lekið
haustið áður. Krýningin fór fram í dómkirkjunni í Niðarósi,
með afar mikilli viðhöfn. Hjer sjást konungshjónin í krýningar-
skrúðanum.
Um miðjan síð-
asta mánuð
varð œgilegt
stgs við Frakk-
landsströnd,
skamt frá St.
Nazaire. Skipið
„St. Philibert",
er verkamanna
fjelagið í Nan-
tes hafði leigt
til skemtiferð-
ar með rúm-
lega 500 fje-
lagsmenn sína,
strandaði á
skeri skamt
undan landi, í
miklum sjó-
gangi og komst
alt í uppnám á
svipstundu og
björguðust eigi
nema örfáir af
öllum innan-
borðs, en hátt
á fimta hundr-
að manns
druknuðu. Var mjög ili að koma björgunartilraunum við, því
að skipið sjálft liðaðist i sundur á mjög skömmum tíma og
veðrið var ilt. Er þetta með hryggiiegustu sjóslysum, sem orð-
ið hafa um langt skeið í Evrópu. Björgunarútbúnaði skipsins
hafði verið mjög áfátt, en þó talið óvíst, hvort stoðað hefði þó
hann hefði verið betri, því að flestir farþegarnir sópuðust fyr-
ir borð er skipið lagðist á hliðina er það snerti skerið. Hjer
sjást ættingjar vera að horfa út á strandstaðinn.
Óvíða hefir eins mikil bylting orðið á síðari árum og í bygginga-
listinni og hefir Fálkinn sýnt myndir af mörgum nýtískubygg-
ingum. líjer er ein byggingin, frá Liegnitz í Þýzkalandi. Er það
fangelsi og er stórum fegurra en mörg nýju verslunarhúsin er-
lendis. Myndin sýnir framhliðina.
Við Menstad. sem er útflutningshöfn hinna miklu áburðargerða
Norsk Ilydro, hafa verið alvarlegar óeirðir undanfarið, vegna
þess, að starfsmenn, sem voru ráðnir sem fastir menn, hjeldu
áfram að vinna, eftir að vinnuteppa var skollin á í Noregi.
Varð að kveðja herlið til að skakka leikinn. Myndin sýnir upp-
þotsmennina vera að fara út í skip.