Fálkinn - 11.07.1931, Page 10
10
F Á L K I N N
Kodak & Agfd
Filranr.
Alt sein þarf til framköllunar &
kopiering, svo sem: Dags & Gas-
ljósapappír, Framkallari, Fixer-
bað, kopierrammar, Skálar, o. fl.
fæst í
LAUGAVEGS APOTEKI
Laugaveg 16. Sími 755.
Pantanir eru sendar gegn póst
kröfu. — Skrifið til okkar.
y „Sirius“ súkkulaði og kakó- *
0 duft velja allir smekkmenn. *
| 5 Gætið vörumerkisins. |
♦€=>«C=> ♦<=>♦€=3 ♦<=>♦«=> <=>♦<=>♦ C=^C=4 <=»♦=»♦
S - I - L - V - O
silfurfægilögur til
að fægja silfur,
plet, nickel o.s.frv.
S I L V O
gerir alt ákaflega
blæfallegt og fljót-
legur að fægja með.
Fæst í öllum verslunum.
VAN HOUTENS
konfekt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■♦■■■■■
Póithússt. 2
Reykjavlk
Síraar 542, 254
og
J0#(framkv.»tj.)
Alíslenskt fyrirtæki.
•Allsk. bruna- og sjó-vátryggingar.;
• Hvcrgi betrl nje áreiðanlegrl viOskiiti.
S Leitið upplýsinga hjá nœsta umboðsmanni. ■
Barnaheimili í Rússlandi.
Greinin er lauslega þýdd úr þýsku
kvennablaði.
Barnaheimilin — það eru vöggur
þeirra, sem framtíðina eiga. Þegar
byrjað var á því að reisa fyrstu
barnaheimilin í Moskva árið 1918,
var það fyrsl og fremst gert vegna
móðurinnar en ekki eiginlega vegna
barnsins. Hundruð þúsundir kvenna
drógust. við byltinguna inn í við-
skiftalífið, stjórmnál og vísindi.
Hundruð þúsundir kvenna lögðu
krafta sína í að byggja upp hið
sósíalistiska ríki við hlið manna
sinna. Fyrir börn þessara kvenna
var barnaheimilunum og dagheimil-
unum komið upp, svo þær gætu unn-
ið í næði með þá ineðvitund að vel
væri sjeð um og hugsað fyrir börn-
unum þeirra.
í Moskva eru sem stendur 115 dag-
heimili fyrir börn, þar sem tekið er
á móti 7.000 börnum, og barnaheim-
ili með yfir 1000 börnum. Þegar
fimmáraáætluninni er lokið eiga að
vera komin upp dagheimili og barna-
heimili fyrir 17.000 börn í Moskva
og 500.000 börn alls í öllu Sovjet-
ríkinu.
Herskarar þessarar litlu liávaða-
sömu vera fylla hina þægilegu sali,
þar sem þau eiga alt og alt er sniðið
við þeirra hæfi. Sjerhverf þessara
litlu barnaríkja, hefir sinn sjerstaka
svip. Við skulum svipast sem snöggv-
ast um á vöggustofu nýs samvinnu-
húss í Moskva.
Við gönguin í gegnum vítt og bjart
fordyri, allstaðar eru glerdyr. í her-
bergi einu sjáum við litlu börnin. Þau
sitja hringin í kringum kringlótt
borð; fyrir framan hvert barn stendur
grautarskál með rauðum graut, sem
þau borða með mikilli áfergju. Þar
næst komum við í stórt og bjart og
glóhreint herbergi, veggir og hús-
gögn eru blá. 1 miðju herberginu eru
stórar kviar, þar skríða og veltast
1—2 ára gönml börn, öll eru þau eins
klædd í ljósbláum fötum. Næst kom-
um við inn í hvítvoðungastofuna.
Ilvít rúm, borð sem hægt er að slá
sainan, skápur og leikfangabekkur
— engin óþarfi. Herbergið er tómt,
börnin sofa úti á glersvölunum. Gegn-
um opna gluggana streymir Ijós og
loft inn í herbergið. í herberginu við
liliðina á eru tvær mæður að láta
börn sín sjúga. Önnur þeirra er bú-
in. Hún fær fóstrunni barnið, flýtir
sjer í kirtil sinn og fer aftur til vinnu
sinnar, barnið liennar er hjer i góð-
um höndum, hjá reyndum fóstrum,
undir daglegu eftirliti lækna.
Þarna er einnig herbergi fyrir
stærri börn. Börnin eru einmitt að
safna saman klossuni sínum, sem
þau hafa verið að leika sjer að.
Minstu börnin koma til okkar,
skvaldrandi og hávaðasöm. Hjer
og þar heyrist grátur, en hann
þagiiar skjótt. í næsta herbergi er
verið að leggja á borðið. Ein systir-
in kemur inn. „Nú förum við að
borða miðdegismatinn, en fyrst verð-
um við að vera róleg“, segir hún.
Börnin hætta að hávaðast, og setjast
niður og eru alveg róleg. „Is — is,
alveg róleg“. Börnin horfa fast og
ákveðið fram fyrir sig, enginn hreyf-
ir sig. „Jura, komdu hjerna, en al-
veg hljótt“. Litill feitur pottormur
laumast til hennar á tánum. „Nína,
komdu nú“. Nína litla klifrar varlega
niður af stólnum og læðist jafn hægt
til systurinnar. Ágætt ráð til þess að
þagga niður og sefa börnin og venja
liau á að stjórna sjer. Máltíðin fer
fram jafn rólega og háfíðlega. Börn-
in eru snemma vanin á það að líta
á líkamlegar nauðsynjar svo sem það
að eta drekka og sofa sem þýðingar-
mikil störf fyrir líkaman. Eftir mál-
tíðina 1V-2 st'undar svefn. Litlu börn-
in læða sig úr og í eins og þau geta
eða lijálpa hvert öðru, án þess að
systirin þurfi að skifta sjer af því.
Síðan eru leikir til kvelds.
Þegar við förum út mællum við
hóp stálpaðra barna, þau eru að
koma af skemtigöngu, Öll eru þau
glöð, frískleg og masandi.
Fyrir framan húsið er leikvöllur
með litlum bekkjum, sandhaugum,
leiktækjum, rennibraut o. s. frv.
Börnin hlaupa, detta, skæla, hlæja,
og hávaðast. Svona gengur það allan
liðlangan daginn, þangað til mæð-
urnar koma úr vinunni og fara heiin
með börnin.
Klukkan var 81/* um inorgun þeg-
ar við fórum í vöggustofu eiiia, sem
tilheyrði einni verksmiðjunni. Alls-
staðar streyma að mæðurnar með
börnin á handleggnuin eða við hlið
sjer. I móttökuherberginu fóru þær
í gráa kirtla og klæddu börnin úr.
Systurnar mæla hiia barnanna og
skoða upp í þau. Hraustu börnin eru
sett inn í baðherbergið, þar eru þau
þvegin, klædd í „Vöggu-fiitin11 og
send inn í leikherbergin. Veik börn
eru send á annan stað. Föt barnsins
leggur móðirin saman og kemur fyrir
í skáp, hvert barn hefir lokaða
skúffu. Á sama hátt er það með hvít-
voðuiigana aðeins eru þeir vegnir á
hverjum degi og baðaðir.
Við og við sjest grátandi barn, sem
heldur sjer dauðalialdi í pils móður-
innar. Það eru ný börn, sem ekki
þora að skilja við móður sína. f leik-
herberginu standa þau lirædd og
þegjandi upp við veggina, en brátt
hrífast þau með af leiknum og liá-
vaðanum og verða eins áköf eins og
hin að leika sjer.
Litlu börnin liafa nákvæma stunda-
töflu. Öllu er raðað nákvæmlega nið-
ur, einnig leikjunum. Við og við er
leikurinn skipulagsbundinn, það er
að segja í einliverju ákveðnu mark-
miði, t. d. þannig að hann þroski
lilaupa- og gangvöðva barnanna.
Litlu börnin lilaða tréklossum á litla
vagna, og draga þá um af áhuga en
ekki nema í 5—10 inínútiir, lengur
geta samleikir ekki staðið, þvi börn-
in geta ekki haldið sjer við saina
málið lengi í enu.
Allir leikir barnanna eru skipu-
lagðir af uppeldisfræðingum og ná-
kvæmlega undirbúnir og .hugsaðir:
Leikirnir eiga að kenna börnunum að
gera börnin sjálfstæð og fjelagslynd.
í leikjunum sína þau gáfur sínar og
lmeigðir.
Allar vöggustofur, dagheimiliv og
barnaheimili eru undir stöðugu lækn-
iseftirliti og er stjórnað af hæfum
hjúkrunarkonum og uppeldisfræðing-
um. Það er erfitt verk og ábyrgðar-
mikið, en stórt hluverk er það, því
framliðin tilheyrir barnimu.
Ferrosan
er brafíðfíott og styrkjandi
járnmeðal
og ágætt meðal við blóðleysi
og taugaveiklun.
Fæst í öllum lyf jabúðum
í glösum á 500 gr.
Verð 2.50 glasið.
Vandlátar húsfreyjur
kaupa
Tígulás-
jurtafeiti.
Foreldrar. í Danmörku deyja sjö
sinnum fleiri pelabörn en brjóst-
mylkingar. Kaupið Mæðrabókina
eftir prófessor Monrad. Kostar 3.75.
Kvikmyndastjarnan Sue Carroll
varð fyrir því óláni um daginn að
öllum gimsteinum hennar var stolið.
En þeir voru um 30.000 dollara virði.
Það Leið yfir aumingja stúlkuna þeg-
ar luin uppgötvaði þjófnaðinn!
----x-----
I Kansas City var maður nýlega
dæmdur í æfilangt fangelsi lyrir að
hafa haft undir höndum tvo lítra af
brennivíni. Þetla þykir strangur
dómur, þó maðurinn auðvitað oft
áður hal'i verið staðinn að óleyfi-
legri brennivínssölu.