Fálkinn - 08.08.1931, Síða 9
F Á L K I N N
9
/ Sviss eru á hverju ári haldnar ein-
kennilegar skemtisamkomur, sem
fólk sækir af kappi. Aðal skemti-
atriðið er það, að láta tvær kýr eig-
ast við. Er þeim att saman og stang
ast þær af miklum móði þangað til
önnur legst. Lipurð er litla að sjá í
þeim leik, því að klunnalegri hreyf-
ingar getur varla en hjá kúm. En
fó.lk hefir mestu mætur á leiknum
samt og fylgir honum með áhuga.
Vatns-tennis heitir nýjasti skemtileikurinn, sem iðkaður er á
erlendum baðstöðum og mun hann vera kominn fram í Ameriku
Leikendurnir standa á palli og netið sömuleiðis, úti á sjó. En
þegar knötturinn fer í sjóinn, verða menn að kafa eftir honum.
Hjer á myndinni sjást þrír Zúlú-höfðingjar í hátíðabúningi sín-
um. Þessir hálfviltu menn berast mikið á l klæðaburði, eins og
myndin sýnir. Hún er tekin á þjóðhátið i Natal. Höfðingjarnir
heita Sitimana, Siposi og Bagabu.
Foringjaskip liinnar frægu ensku sjóhetju, Nelsons aðmíráls
lijet „Victory“ og hefir skipið verið til fram að þessu. óteljandi
eftirlíkingar hafa verið gerðar af skipinu, þar á meðal sú, sem
sjest hjer á myndinni. Hún var höfð til sýnis á skipasýningu er
nýlega var haldin á Medway-ánni í Suður-Englandi og varð á-
horfendum starsýnt á þetta skip.
Ein af frægustu tennisleikurum nútímans er spánska frúin Al-
varez. Tók hún nýlega þátt í tennismóti í Englandi og var i karl-
mannsbuxum. Áður hefir kvenfólki aldrei verið leyft að taka
þátt í svona móti nema í pilsi og heimtuðu sumir áhorfendur, að
hún yrði rekin af leikvellinum. En frúin fjekk að vera i buxun-
um, þrátt fyrir vanafestu Englendinga.