Fálkinn - 10.10.1931, Side 1
IV.
Reykjavík, laugardaginn 10. okt. 1931
41.
JAPANAR í ÓFRIÐI VIÐ KÍNVERJA.
Aldrei grær um heilt milli slórþjóðanna í Anstur-Asíu, Japana og Kínverja. Nú nýlega hefir gosið upp ófriður milli þeirra
þjóða, úl af landsrjettindum í Mandsjúríu, sem Japanar vilja ágirnast, Er Mandsjiíría talin mikið framtiðarland, þar eru ó-
tæmandi skilyrði fyrir landhúnaði og þar eru dýrmætar námur. I.andið er mjög strjálbygl, og Japanar vjlja gjarnan ná völdum
yfir því, lil þess að geta sent þangað fólk, sem ekki kemsl fgrir heima; þvi að Japan er afar þjettbýlt og árlega verður fjöldi
fólks að flytja úr landi. Búast má við að Rússar skerist líka í leikinn ef ófriðurinn heldur áfram. Stórveldin og alþjóðabanda-
lagið hafa skorað á Japan að hætta ófriðnum, og bjóðast lil að miðla málum, en Japanar hafa þær áskoranir að engu. Mgndin
sgnir æsingafnnd i kínverskum bæ.
y