Fálkinn - 10.10.1931, Qupperneq 8
8
F Á L K I N N
'
■
íííSÍ:"
lí''"vun \ \ \ O V-\ \
SKvS&XíSÍí-.’J&'
■
ÍvA#@Sí'
: ■
111
Vegna fjárhags- og atvinnuörðugleikanna í Bretlandi sá Mac
Donald forsætisráðherra sjer ékki annað fært i sumar en að
segja af sjer stjórn og mynda síðan nýja stjórn, með aðstoð hinna
þingfloklcanna, íhaldsmanna og frjálslyndra, til þess að ráða
sameiginlega fram úr örðugleikunum. Er þetta 3. ráðuneytið
sem liann myndar, en tvö þau fyrri voru hrein flokksráðuneyti.
MacDonald hefir fallið í ónáið hjá mörgum flokksmönnum
sinum fyrir þetta tiltæki, en hann lweðst meta meira hags-
muni lands og þjóðarinnar en flokks síns. Þessari „velferðar-
stjórn“ er aðeins ætlað að sitja nokkra móinuði, meðan þingið
er að samþykkja og koma í framkvæmd ráðstöfunum iil þess að
bæta úr fjárhag ríkisins. 1 nýja ráðuneytinu eru aðeins 8 menn,
nfl. MacDpnald forstætisráðherra, Stanley Baldwin ráðsforseti
(íh.), Snowden fjármálaráðherra (vm.) Herbert Samuel innan-
ríkisráðherra (fr.), Samuel Hoare (íh.) Indlandsráðherra,
Thomas nýlenduráðlierra, Neville Chamberlain heilbrigðismála-
ráðherra (íh.) og Cuncliffe Lister verslunarmálaráðherra. Auk
þess eru átta ráðherrar í stjórninni. Myndin sýnir; í miðju Mac-
Donald, t. h. Baldwin, Chamberlain og Lord Hailsham, en t.v.
Herbert Samuel, Lord Reading og Donald McLean.
I sumum borgum
Ameríku hafa
menn reynt að
mála sporvagna
og bíla sem allra
mest áberandi til
þess að vekja at-
hygli fólks á þeim
og afstýra slysum
á þennan hátt.
Eru vagnarnir
málaðir með skói-
röndum úr sterk-
um litum, þannig
að þeir skeri sem
allra mest úr um
hverfinu og veg-
farendur vari sig
á þeim í iíma.
Þetla hefir gefist
vel enn sem Icom-
ið er, en líklegt
er að áhrifin dvíni
eftir því sem
röndóttu vögn-
umum fjölgar.
Þrátt fyrir erfiðu tímana í Þýskalandi er meiri áhersla lögð á
endurbætur skólamálanna en nokkru sihni fyr. Myndirnar hjer
að ofan gefa hugmynd um þetta. Að ofan er kenslustofa í
kvennaskóla í Stendal, bæ við járnbrautina milli Berlín og
Hannover. Er tilhögunin alt önnur en í venjulegum skólastof-
um og borðunum raðað saman fjórum og fjórum. Að neðan
sjest kennari í barnaskóla í Berlín vera að segja börnunum til úti
1. ágúst í sumar var í fyrsta sinn gengið upp á fjallið Matter-
horn að norðanverðu. Gerðu það þýslcir bræður, Schmidt að
nafni. Myndin sýnir fjallið, sem er á landamærum Sviss og
Italíu og er efsti tindurinn hhSd metra hár. Línan sýnir leiðina,
er bræðurnr fóru. Uppi á öxlinni er hringur, sem sýnir staðinn,
sem bræðurnir náttuðu sig á. Eru ömurlegar endurminningar
bundnar við þennan fjallstind, því að ýmsir hafa týnt lífinu á
leiðinni upp þangað. Árið 1865 tóksl mönnum að komast upp á
tindinn í fysta slcifti, voru það fjórir Englendingar ásamt þremur
fylgdarmönnum. En á leiðinni niður hrapaði einn Englending-
urinn og dró með sjer tvo fjelaga sína og einn fylgdarmgnninn
og fórust þeir allir. Schmidtsbræður láta illa yfir nóttinni sem
þeir átta.uppi á fjallinu. Þeir sjást að ofan t. h.