Fálkinn - 06.02.1932, Síða 7
F Á L K I N N
7
ft
skrifslofa lanclssímastjóra, en a'ð
vestanverðu skrifstofur símaverk-
fræðinga og teiknistofur. í vestur-
álmu á þessari hæð eru til vinstri
þegar inn er gengiS móttökustöð
fyrir loftskeyti, sem notuö verður
í viðlögum, þegar símasamband
brcgst, þá lesstofa símafólks og
borðstofa, en á móti, hinu megin
viS ganginn snyrtiherbergi, eldhús
o. fl. En fyrir miöjum gangi, vestast
í álmunni er langlínumiðstöSin í
stórum sal og miklum er nær yfir
þvert húsiS.
Þá kemur fjórSa hæSin og er hún
óskift ríki útvarpsins. Þar eru i aS-
albyggingu út aS götu, taliÖ aS
norSan: biöstofa, frjettamannastofa,
alnienn skrifstofa, skrifstofa út-
varpsstjóra, útvarpsráðs, en að vest-
an útvarpsverkfræðings, mælistofa
og verkstæði. En i útbyggingu, að
sunnanyerðu gangsins er herbergi
fyrir rafhlöð og magnaraherbergi
en að norðan ræðuklefi útvarpsins
og annar lclefi fyrir „þuluna“; þar
sjer aldrei sól, því að herbergi þessi
vila út að brunagaflinum mikla á
norðurhlið hússins. En í vesturenda,
yfir langlínumiðstöðinni er söngsal-
ur útvarpsins, er það stærsti salur-
inn í húsinu og mundi rúma nokkur
hundruS manns.
Er nú komið upp á fifintu hæS.
Hún er mjórri en hinar, því að með-
fram götunni er breiSur pallur, sval-
ir. Þarna verður fyrst fyrir veður-
stofan, sem hefir verið sett þarna,
sein næst skýjunum og starfssvi'ðinu.
Og auk þess hefir hún aðgang að
þákinu á húsinu og mun það notað
lil þess að gá til veðurs. 1 aðalhús-
inti þarna efst er ennfremur íbúð
stöðvarstjórans, en i vesturálmu er
ibúð húsvarðar, Hákonar Kristo-
ferssonar f. alþingismanns.
Er þá að kalla upp talið. Sjötta
hæðin er lág undir oft; þar er þó
þvoltahús og þurkloft. Þegar komið
er upp á þakið má heita að mað-
ur sje jafn „hátt uppi“, eins og væri
ínaður vestur á Landakotstúni eða
uppi í SkólavörSuholti.
Grunnflötur Iandssímahússins
nýja er 540 fermetrar, lengd aðal-
hússins meSfram Thorvaldsensstræti
25,7 metrar og breidd þess 13,7
metrar. En útbyggingin (vesturálm-
an) er 19,9 metrar á lengd en 10
m. á breidd. Vegghæð aðalhússins,
þeim megin sem að götunni snýr,
er 13,20 metrar en að baka til l(i
metrar og stafar hæðarmunurinn af
því, að efsta liæSin er inndregin á
framhlið, eins og sjá má af mynd-
inni á húsinu.
í landssímahúsinu eru 82 herbergi
þar af 11 i kjallara, en auk þess eru
þar 12 smá geymsluherbergi, 8
snyrtiherbergi, þrjú eldhús og tvær
forstofur, svo að alls eru herberg-
in yfir hundraS, þegar alt er talið
Framh. á bls. 11.
inum fyrst á 4, á töluskífunni á á-
haldi sínu, og snýr hringnum ein's
langt og hann kemst lil hægri, þá
á 6, svo á 1 og svo aftur á 6. Hann
má ekki hlaúpa yfir 0, þó að þa'S
sje einhverstaðar í tölunni og ekki
snúa skífunni oftar en fjórum sinri-
um, því að þá er alt ónýtl. Inni á
stöSinni er eftirlitsmaður, sem get-
ur sjeð, hvort simanotandi hringir
vitlaust upp og gefur hann þá leið-
beiningar eins og hann kemst yfir.
Ef umbeSiS númer er á tali, er þa'ð
gefið til kýnna með stuttum suðu-
hljóðum, en annars kemst samband-
iS á og heyrist þá hi-inging hjá þeim
seni á að tala við. Þegar samtali er
JokiS leggja báSir notendur áhaldiS
á gaffalinn og rofnar þá sambandiS
sjálfkrafa. Sjerstök númer eru
l'yrir langlínusamtöl með útbúnaði
til að rjúfa samtal innanbæjar, til
þess að komast tafarlaust að núm-
eri, þó að það sje á tali.
Aðra hæð aðalhússins notar sim-
inn ekki að svo stöddu, en þar er
vitamálaskrifstofan og nokkur her-
bergi eru þar óleigð. En í vestur-
álmunni á jiessari hæ'ð er miöstöS-
in, eins og áður er sagl og enn-
fremur viSgerðaverkstæSi.
A þriðju hæð aöalhússins éru að-
alskrifstofur landssímans. Þar eru
a'ð götunni, talið frá norðri til suð-
urs skrifstoíur fyrir bókhald, gjald-
kera, endurskoöun, ritara og syðst
Lcmdsímastöðin
in sjesl garnla
nýja. Á þalcinn grindamöstiir fyrir loftnet. Vinstra me,
Reykjávikur Ápótek en htvc/ra megin hus H. Renedikt
son ác Co,
Þessar Ivær mgndir eru af sjálfvirku
miðstöðinni. Á miðri efri myndinni
sjásl þráðkerfin, sem veljararnir
slillasf inn í og fremsl á myndinni
horð eftirlitsmanns. Á neðri mynd-
inni iitbúnaðar sá, sem tekur við
númerinu, sem heðið er um.