Fálkinn - 20.02.1932, Qupperneq 8
8
F A L K I N N
Myndin hjer lil vinstri er tekin á
þokudegi í London, þó ekki í þokunni
eins og hiin verður verst, því að þá er
ómögulegt að taka myndir nema við
Ijósglampa. Þokan er venjulega verst í
nóvember og desember en líka geia
komið slæmir þokudagar um þetta
leyti árs. Hefir mönnum ekki tekist að
finna vísindalegar orsakir þokunnar
eða t. d. hvernig á því stendur, að hnn
er venjulega bundin við vissa áirstíð,
þá-ctð margar tilgátur hafi komið fram
um þetta efni, eins og geta mái nærri
þar sem borgarstjórnin í London hefir
lieitið mörg þúsund punda verðlaun-
um fyrir að finna rátð til þess, að eyða
þokunni eða afstýra henni. En engum
hefir tekist að benda á annað ugglausl
ráð, en að banna notkun kola og gass
i heimsborginni, sem er óframkvæm-
anlegt eins og sakir standa. Myndin er
tekin á Leicester Square í desember í
haust.
1 New York er verið að opna nýja brú fyrir umferð um þessar
mundir og hieitir hún Kilt van Kull Bridge, og er yfir Hudson-
fljótið. Ljettir þetta umferð af hinum brúnum en hun er orðin
óhæfilega mikil.
Hnefakappinn Carnera er svo þungur, að sjerstakur þyngdar-
flokkur, dreadnought-class, hefir verið gerður fyrir hann. Sýmr
myndin fyrsta bardagánn i þessum flokki og barði Carnera
andstæðinginn niður í fyrstu lotu.
Rektorskosning fór fram í hausl við St. Andrews háskólann í
Skotlandi og stúdentarnir „agiteruðu“ duglega fyrir rektorsefn-
unum. Hjer sjást kvenstúdentarnir á hjólum sínum i kosninga-
róðrinum.
Kvenfólkið hefir heimsmeistara í skák fyrir sig, þó ekki sje
hún jafn kunn og dr. Aljechin. Hún sjest hjer að ofan að tefla
við 20 karlmenn samtímis, en eigi er þess getið hvernig viður-
eigninni lauk.