Fálkinn


Fálkinn - 16.04.1932, Blaðsíða 3

Fálkinn - 16.04.1932, Blaðsíða 3
F Á L K I N N 3 VIIÍUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Aliar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Tengsl við fortiðina og virðing fyrir henni, eru hvorttveggja ein- kenni menningarþjóðanna. Þess- vegna er sagan höfð í hávegum, gömul handrit geymd á öruggum stöðum, söfn stofnuð til þess að halda til haga gömlum menjum. Alt þetta er talið ómissandi og menn harma sáran alt það, sem missist af sliku, þvi að það verður ekki keypt fyrir peninga þó menu fegnir vildu. Menn harma Kaupmannahafnar- brunann, vegna þess að þar fór for- görðum mörg óbætanleg heimild að íslenskri sögu og menn hajlmæla þeim, sem fyr á dögum gerðu sjer skó úr förnum kálfskinnahandritum En það er eins og menn geri sjer ekki ljóst, að ýmislegt af því, sem yngra er og samtíðin lætur toríim- ast muni verða harmað, þegar fram líða stundir. Verk afans og ömm- unnar hafa ekki fengið á sig helgi forngripsins, fallegur gripur lend- ir í eldinum hjá barnabarninu og glitofið söðulklæði er notað sem gólftuska eða til þess að fóðra með því melreiðing. Þannig fer margt af því forgörðum, sem vel mundi sóma sjer á þjóðmynjasafni. Venjur og at- vin nuhættir breytast, áhöld, sem fyrrum voru til á hverjum bæ, eru óþekt þeim, sem nú vaxa upp. Ilúsa- skipun breytist — alt breytist. En til þess að gera sjer grein fyrir breyt- ingunni er einmitt miklu gagnlegra að geta sjeð fyrir auga sjer það, sem hægt er að sýna, en að lesa um það langar lýsingar. líeykjavík hefir umskapast á fáum árum. Elstu timburhúsin falla eða eru gerð óþekkjanleg með ýmsum klasturbreytingum, sem kröfur tím- ans heimta. Skyldi enn hafa verið gerð eftirmynd af nokkru þessara húsa, bygð á nákvæmum mælingum og lýsingum af fyrirmyndinni? Göt- ur eru gerðar, skipulag bæjarins breytist. Hefir nokkur tilraun ver- ið gerð til þess, að teikna nákvæm- an uppdrátt af Reykjavík, eins og hún var I. d. fyrir 130 árum eða á öðrum tímum? Það er enn hægt að bjarga miklu við, hvað þetta snert- ir, vegna þess að Reykjavík — í nú- tímamerkingu —- er svo ung. En hvað lengi verður það hægt? Nú er verið að jafna Skólavörðuna við jörðu. Hún var ekki gömul og hún var ekki falleg, en hún var minnismerki þeirrar Reykjavikur, sem einu sinni var. Og viða mundi sú gjöf hafa þótt of dýr, sem varðan þokaði fyrir, ekki sist vegna þess, að það var rúm fyrir hvorttveggja. En máske verður aftaka vörðunnar áminning um, að bera framvegis meirj virðing fyrir þvi liðna. „ÖII Reykjavík hlær“. fíjarni fíjörnsson leikari hefir hald- ið nokkrar skemtanir hjer í Regkja- vik undanfarið og haft ágæta að- sókn. Öll skemtiskráin er ný, ýmist vísur um daginn og veginn eða eftir- hermur í óbundnu máli og j)á sjer- staklega eftir þingmönnum. Alt er þetta grœskulaust gaman en margt af því mjög smellið og prýðilega flutt eins og vœnta mátti af fíjarna, svo að áheyrendur hafa velst um af hlátri. Ilafa þessar skemtanir sýnt það, með aðsókninni, að fíjarni á i- tök í flestum Reykvíkingum, og að þeir vilja enn vcita sjer hláturstund þrátt fyrir alla kreppuna. Þökk fyrir komuna. Sigge Jonsson sem verið hefir skrif- slofustjóri Sænsk-lslenska frystihúss- ins hjer síðan það tók til starfa er nýfluttur hjeðan, llann var áhuga- samur iþróttamaður, einkum um kappróðra og frumkvöðull þeirrar íþróttar hjer á landi. Kom hann góðri hreyfingu á þessa íþrótt og hafa róðrarmót verið haldin að jafn- aði síðuslu árin í Reykjavík. Jonson kendi róðranemendum Ármanns frá byrjun og lagði þar frrun mikið starf og óeigingjarnt. Hjelt fjelagið honum skilnaðarsamsæti og afhenti honum bikar úr isl. birki, skorinn af Rik- harði, en útskorna blekbyttu eftir Rikharð gáfu nemendur hans hon- um að skilnaði. l)r. phil. Bjarni Sæmundsson náttúrufr. varð 65 ára i gær. Einar (1. Einarsson kaupm. í Grindavik verður 60 ára í dag. LOFTUR GUÐMUNDSSON, ljós- myndari hefir undanfarna viku haft sýningu á fjölda andlitsmynda í gluggum verslunar Egils Jacobsen í Austurstræti. Eru myndir þessar prýðisvel gerðar og sumar á þann hátt, sem áður hefir ekki verið tíðk- að hjer á landi, t. d. er þarna mynd á silki í stað pappírs. Síra Sigurður Ú. Lárusson í Siykkish. verður 'tO ára 21. þ.m. Ekkjan Margrjet Pjetursdóttir, Árhæ, verður HO ára 26. þ. m. Frú Rannveig Torfadóttir frá Austurbakka í Rvík, nú til heimilis á Freyjugötu hh., Rvík, verður 75 ára 18. apríl. Það borgar sig fyrir yður að kaupa GLERAUGUN yðar á LAUGAVEG 2 (viö Skóla- vörðustígshornið), þvf þar eruð þjer viss um að fá fagmannslega af- greiðslu, lægsta verö og 1. fl. vörur Farið aðeins til BRUUN, LAUGAVEG 2 Símf 2222 (engin útbú). ítalskur verkfræðingur hefir fund- ið upp símatæki, sem hægt er að nota til að komast í samband við skip neðansjávar. Er talið að þetta rnuni hafa mikla jiýðingu fyrir kaf- báta er eitthvað hefir orðið að og að hjer eftir muni verða hægra að bjarga skipverjum úr sokknum kaf- bátum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.