Fálkinn


Fálkinn - 16.04.1932, Blaðsíða 12

Fálkinn - 16.04.1932, Blaðsíða 12
12 F A 1.KINN ------- VIKURITIÐ --------------- Útkomið: I. Sabuntini: Hefnd , . . 3.80 II. Bridges: Rauða húsið . 3.00 III. — Strokuinaðurinn 4.00 IV. Horler: Dr. Vívant . . 3.00 V. C. Hamilton: Hneyksli . 4.00 í prentun: Ph. Oppenheim: Leyniskjölin. Zane Grey: Ljóssporið. biöjiö bóksala þann, sem þjer skiftió viö, um bækurnar. Ungur Bostonbúi geklc nýlega inn i tatabúð þar i borginni, til að- líta á siðjakkaföt. Er hann hafði litið á birgðirnar, valdi hann ein, sem síð- an voru send honum heim. Daginn eftir mátaði hann nýju fötin á sig, og er honum varð þreifað í vasa sinn, fann hann, sjer til mikillar undrunar miða, þar sem meðal ann- ara orða stóð: ,,ó, betur að Jretta yrði fundið af manni í góðri stöðu, sem óskaði að hafa brjefaskifti við unga laglega stúlku, sem langar til að giftast“. Þessi ungi maður var lorvitinn að vita, hvort hjer væri gaman eða alvara á ferðum. Hann reit því brjef með jieirri utanáskrift, sem á miðanum stóð. Skömmu síð- ar l'jekk hann sjer til gleði svar. Kr hann leit nánar á skriftina, sá hann, að á brjefinu var karlmanns- hönd. Brjefið hljóðaði þannig: Maður góður! Konu minni hefir borist brjef yðar í bendur. Það var sent á heimili, þar sem hún bjó áð- ur en hún giftist. Hún hefir beðið mig að svara þessu tilskrifi yð- ar. Þennan iniða, er þjer talið um, hefir hún sett þarna í vasann i svipstundar gáleysi fyrir 15 árum, er hún var afgreiðslustúlka í fata- búð. En nú er hún gift mjer og á 0 börh. Og ef þjer leyfið yður að halda ál'ram þessum brjefaskriftum eða reynið aðra nærgöngli við hana, mun það verða yður dýrkeypt. Unga manninum kom víst síst ti! Iiugar að eiga nokkur kynni við fi barna móður, og skrifaði hann þvi ekki fleiri brjef. En hann gekk rak- leiðis lil fatabúðarinnar, og kvart- aði um, að sjer hafi verið seldur 15 ára gamall fatnaður. ----x----- Þnð munaði minstu að Gary Cooper, hinn frægi kvikmyndaleik- ari, væri drepinn um daginn. Hann var á dýraveiðum í Kenya í Austur- Afríku er gríðarstór nashyrningur rjeSist að honum. Dýrið hljóp á tiann, 'en hann gat vikið sjer und- an svo að dýrið snerli hann aðeins en sakaði ekki. Komu svo svertingj- ar þar að og skutu dýrið. Fyrir kvenfólkið. Mlklar birgðir ávalt fyrirliggjandi af nýtlsku hömkum i Hanskabúðimii Smávegis nm fot. Iljer birtast nokkrar myndir af kvenfatnaði, sem ekki er áberandi eða skjannalegur, en þokkalegur og samkvæmt tískunni. Sum tiska er eins og spennitreyja á það sem fag- urt er, eu önnur er eftirlátari og gefur svigrúm og myndirnar hjer að ofan eru i samræmi við þá tísku. Og verður að muna það, að þó ein- hver klæðnaður fari einni stúlkunni vel ])á getur hann farið annari illa, alveg eins og löngu er viðurkent um hattana. Stúlkan með loðna hundinn er i blárri kápu með stórum kraga úr rauðu tófuskinni. Kápan er ekki fullsíð og sjest á kjólinn niður und- an, en hann er alsettur hnöppum og snumum. Hatturinn brettur upp hægra meginn og blár eins og kápan. Hin myndin sýnir samkvæmis- kjól, sem virðist altof íburðarmikill til jioss að geta orðið vinsæll. Alll með islenskiim skipuin' *fi Vertu sæll, andarunginn Ijóti. Tískubrjef frá London. Tískan krefst þess að okkur, að við breytum útliti í sífellu, jafnvel andlitinu er nú ekki erfitt að breyta, þvi að allir bestu heilar tískuheims- ins eru óðfúsir lil lijálpar andarung- nnum Ijóta. Það mun ekki líða á löngu, áður en ekki finst nokkur ungfrú, sem ekki er máluð og fegr- uð. En þá verður ekki lengur gam- an að vera fædd lagleg. í vor á hárið að vera silfurgrátt. Hárgreiðslukonurnar nota ýmis efni, sem fá hárið tíl að gljá eins og silfur, og ef það þóknasi ekki þá má fá það til að bera vaxgljáa (el' það er nokkur bragarbót). Ef |iig langar til, gelur þú litið úl eins og griskur drenghnokki eða greidd eins og kerúb höggvinn í stein. Hárið á að falla í fínum lið- um og liggja þjett að höfðinu. A liðabrúðasýningunni (manne- cpiin) í febr. liktust liðabrúðurnar huldumeyjum. Heillandi voru þær með fallegu ennisbrúskana sína og oddundna liði. Það er iíka víða sið- ur nú að klippa hárið ójafnl yfir enni og gagnaugu ogg líma svo lokk- ana (að höfðinu). Eða hvernig lísl þjer á dömur með kuðungsliði yfir enninu og nokkra Viktoríuliði, sem liggja þjett að höfðinu í hnakkan- um? í París er algengt að nota parulc sem fellur í liðum yfir andlitið. Fáðu þjer einn slíkan hadd, úr gljáðu hári, sem fer þjer vel. Ef þú erl hrædd um, að þú sjert á eft- ir tímanum, skaltu velja hann blá- an, og þá mun enginn saka þig um, að Jiú fylgist ekki með. Það er um að gera að nota liti og efni, sem aldrei hafa fyr verið notuð án l)ess nokkuð að hugsa um sinn persónu- lega stil. Ef |)ú erl vön að klæðast flaueli eða þunnu silki (georgette), þá skaltu laka upp eitthvað annað, alveg sama hvað það er, aðeins ef það er eitthvað annað. Mest í tísku hjer er svo nefnt „baby-skinn“, ofið ullartau, sem mjög líkis finu musselini. Ef þú heflr ekki ráð á að fá J)jer ný klæði, verðurðu að láta þjer nægja a'ð fá þjer lífstykki, því að það verður þú að eiga á dögum J)essara þröngu og strengdu kjóla. Algengast er nú að nota gúmmí- lífstykki með rennilásum á mjöðm- IIIIUIII. Vorhattarnir. Hjer koma nokkur sýnishorn al' hattatiskunni, sem ráðandi verður í vor. Þar kennir margra grasa, en flestir eru hattarnir mjög yfirlætis- lausir. Þessi hattur er skreytlur með martj- faldri slaufu úr flauelsbandí,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.