Fálkinn - 15.10.1932, Qupperneq 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir.
Smávegis að leika sjer að.
Eitt er leiðinlegt við leikföngin.
Þeim hættir við að skemmast og
brotna ef ekki er farið varlega með
þau. Sum börn eru nú þannig gerð
að þau geta geymt leikföng sín ár
frá ári, en þau eru fá. Hjá flestum
vill fara svo, að dótið gengur úr sjer
og það stundum svo fljótt, að þið
eigið ekkert nýtilegt eftir af afmælis-
gjöfunum þegar þið fáið leikföngin
ykkar í jólagjöf. En það er hægt að
nota margt í leikföng fleira en þið
haldið. Til dæmis eru notaðar eld-
spítur bestu leikföng eins og þið skul
uð bráðum sjá. Safnið þið brendum
eldspítum og byrjið þið svo.
7 >M/<
Æí W
Mesta listaaerk.
Lítið þið á myndina lijerna að of-
an og þá sjáið þið, að það er hægt
að gera ýmislegt fallegt með eldspít-
um. Teikningarnar eru báðar falleg-
ar og ef þið leggið ykkur í líma ef-
ast jeg ekki um, að þið getið gert
margar fleiri myndir og ennþá
lallegri. Fyrst skulið þið samt gera
þessar, sem sýndar eru á myndinni
og reyna svo við nýjar myndir.
Skritin þraut.
Þessi þraut virðist vera talsverl
erfið: Hver getur lyft til dæmis 15
eldspítum með einni? Það getur eng-
inn nema hann hafi lært til þess að-
ferðina, sem sýnd er hjer á mynd-
inni.
Þú tekur eina eldspitu og heldur
henni í þriggja sentimetra hæð yfir
borði með dúk á. Svo raðarðu eld-
spítum eins og sperruleggjum á báðar
ar hliðar fyrstu eldspítunni, þangað
komnar eru sjö hvoru megin, og að
endingu leggur þú svo fimtándu eld-
spítuna ofan á og skorðar hana vel.
Nú geturðu lyft öllum eldspítunum
með þeirri fyrstu.
nr. 2 og 3. Lyftu svo nr. 1 með þum-
al- og vísifingri og rendu nr. 5 og 6
inn á milli nr. 4 og 1. Nr. 7 er lögð
þversum yfir nr. 5 og 6 og nr. 8 und-
ir endan á þeim. Svo er nr. 8 lyft
varlega og' nr. 9 og 10 skotið undir
nr. 8 og yfir nr. 7.
Svona má halda áfrain i sífellu og
gera brúna eins langa og maður get-
ur. En á endanum fer svo, að brúin
hrynur hjá þjer. Og þá er ekki annað
en að hyrja á nýjan leik.
RáÖningin.
Nú er alt komið undir skarpskygn-
inni. Ekki hjá þjer, þvi að þú sjerð
ráðninguna á myndinni. En spurðu
kunningja þinn hvort hann geti gert
25 úr 6 eldspítum, án þess að brjóta
þær. — Jeg er hræddur um að hann
geti það ekki, en þegar hann hefir
gefist upp getur þú sýnt honum
hvernig farið er að þvi. Ef þú þekk-
ir rómversku tölurnar.
rn r_L_
l l I IH I___________1
"
□
Tvær lausnir og tvœr þrautir.
Þessar tvær þrautir eru mjög
skemtilegar. Lærðu þær utan að og
vittu svo hvort kunningjar þínir geta
leyst þær án þinnar hjálpar.
1. Þessi sýnist nú vera auðveld.
Taktu þrjár eldspítur burf þannig
að af fimm ferhyrningunum verði
aðeins þrír eftir.
2. Gierðu mynd eins og þá neðri
til vinstri úr 24 eldspítum. Þar verða
níu fyrhyrningar. Og nú er spurn-
ingin: Geturðu tekið 8 eldspitur burt
þannig, að ekki verði eftir nema
tveir ferhyrningar. Þeir þurfa ekki
að vera jafn stórir.
Þjer veitist víst sjálfum auðvelt að
gera þetta gera þetta hvorttveggja
þegar þú sjerð ráðningarnar til
hægri. En mundu eftir hvernig farið
ei að þessum eldspitnaþrautum, þó
að þú hafir ekki blaðið fyrir þjer og
þú mátt vera viss um, að kunningj-
um þínum þykir gaman að þvi að
sjá þig ráða fram úr þrautunum,
eftir að þeir hafa sjálfir gefist upp.
tírannbygö en sterk
Næst ætla jeg að kenná ykkur að
smíða litla en ljómandi fallega brú.
Byrjunin er ofur einföld: Eldspíta
nr. 1 er lögð á gólfið og á hana þvera
eru lagðir endarnir af nr. 2 og nr. 3.
Legg svo nr. 4 þversum á endana á
I
SVARAÐU ÞESSU FLJÓTT.
Ef maður ætti níu syni og hver
sonurinn ætti eina systur, hvað væri
þá systkynin mörg? Flestir svara án
þess að hugsa sig um: átján! En
vitanlega eru systkynin' ekki nema
tíu.
Fwirluihiarlítid pi)œ jeg pvotlinrí
seqir María
Rmso
þýóir
minni vinnu oq
hvítari þvott
STOR PAKKI
o,55 AURA
LITILL pakki
0,30 AURA
M-R 4 1-047A IC
Þvotturinn minn er hvítari
en nokkurntíma á'Sur — en
jeg er líka. hætt viS ]?etta
gamla þvottabretta nudd.
Fötin, seni eru mjög óhrein
sýS jeg eSa nudda pau laus-
lega, s\'o skola jeg ]>au —
og enn :i ný ver'Sa ]>au
braggleg og hrein og alveg
mjallhvít.
Þvottadagurinn verSur eins
og halfgerSur helgidagur
]?egar maSur notar Rinso.
R. S. HUDSON LIMITED, LIVERPOOI., ENGLAND
FELUMYND.
Garðeigandinn er fjúkandi vond-
ur. Tveir slæmir strákar hafa stolið
öilum eplunum af uppáhaldstrjenu
hans, og nú ætlar hann-að flengja þá
fyrir strákapörin. En strákarnir hafa
orðið hræddir og falið sig fyrir garð-
eigandanum. Geturðu fundið þá?
KRINGUM HNÖTTINN.
Þessi leikur er skemtilegur til að
hvila sig á, þegar þið hafið lengi
verið á hlaupum úti. Þið seljist í
hring öll saman. Þá stendur einn
upp og nefnir nafnið á einhverri
borg, t. d. Paris. Sá næsti á þá
undir eins að nefna nafn á annari
borg, sem hefir að upphafstaf saina
stafinn og hitt nafnið endaði á, t. d.
Sevilla. Sá næsti nefnir t. d. Amst-
erdam, næsti Madrid, næsti Dramm-
en, næsti Néapel, næsti Liverpool
og svona koll al' kolli þangað til
einhver getur ekki svarað. Þá verð-
iii- hann að gefa pant.
GRAND HOTEL.
Hin heimsfræga skáldsaga Vicky
Baum, með þessu nafni, hefir verið
kvikmynduð af Metro Goldwyn og
er sagt að aldrei liafi verið. notaðir
jafn margir frægir leikendur i sömu
mynd, enda hefir henni verið tekið
alburða vel þar sem hún hefir verið
sýnd. En þó gnæfir Greta Qarbo
hátt yfir alla aðra leikendur í mynd-
inni. Hún leikur dansmærina Gru-
sinskaja og er tekið til þess hve
áhrifamikið það sje, er baróninn
(John Barrymore) kemur inn i stofu
hennar til þess að stela dýrgripum
frá henni, en verður ástfanginn af
lienni í staðinn! í kvikmyndinni er
söguþræðinum l'ylgt eftir því sem
föng eru á, og myndin látin gerast i
Þýskalandi. Hefir gistihúsið, sem
sagan gerist í verið stælt eftir Eden-
gistihúsinu í Berlín.
----x----
Nálægt Nisjni-Novgorod var verið
að byggja stóra brú yfir ána Oka i
sumar. Nýlega hrundi brúin og fór-
ust þar yfir 100 verkamenn, en skað-
inn er metinn á miljónir rúbla. Tal-
ið er víst, að brúin hafi hrunið af
mannavöldum.