Fálkinn - 05.11.1932, Síða 2
2
F Á L K 1 N N
GAMLA BÍÓ
Trumbull og sonur
Áhrifamikil.og efnisrík talmynd
í 9 þáttum eftir skáldsögu
Gharl.es Dickens.
. AÖalhlutverkin leika:
GEORG BANCROFT,
David Durand,
Frances Dee.
Sýnd bráðlega.
EfilLS
PILSNER
BJÓR
MALTÖL
HVÍTÖL.
SIRIUS
GOSDRYKKIR,
9 tegundir.
SÓDAVATN
SAFT
LÍKÖRAR, 5 teg.
: Nöfnin ,EGILI/ og ,SIRIUS‘
5 tryggja gæðin.
H.f. ðlgerðin
Eglll Shallagrfmsson
Sími 390 og 1303.
Reykjavík.
tegund,
eridu bætt
Aukið sogmagn,
Ódýrari.
Fœst h]á
raftækju
sðlum.
Japönsku ódýru gúministig vjel-
in nýkomin, verðið lækkað.
Kveu-, brún og svðrt nlans Kr. 10.00
Telpu-, — « — Nr. 13-2 — 7.50
Barna-, — - — • 8-11— 5.50
!!$»$ Best að auglýsa t Fálkanum ÍS38ÍM*
------ NÝJABÍÓ -------------
Loginn helgi
Sjerslaklega áhrifarík kvik-
mynd eftir leikriti Somerset
Maughans.
Aðalhlutverkin leika hinir á-
gætu leikendur
GUSTAF FRÖLICII o<,
Dita Parlo.
Engan inun iðra aft sjá þessa
ágætu mynd.
| Vetrarfrakkar,
Herra-hanskar
• :
: fallegt og gott úrval í :
: •
■ J
• !
•
• ;
■
jSOFFfUBÚÐÍ
talmyndir.
Hljóm- og
I.OGINN Mið fræga leikril enska
HELGI. skáldsins Somerset Maug-
hams ,The Sacred Flamc'
hefir veriS tekjð á kvikmynd og
verður sýnt á Ni'/ja Bíó innan
skamms. Hefir Berthold Yiertel sjeð
um myndatökuna en aðalhlutverkin
leika hinir ágætu þýsku íeikarar
Gustav Fröiich og Dito Parlo.
Leikritið vakti afar mikla athygli
livarvetna, ekki síst fyrir það, að
þar er varpað fram spurningunni
um, hvort leyfilegt sje að stytta líf
manna til þess að forða þeim frá
líkamlegum eða andlegum kvöiuin,
•sem fulivíst þykir að ekki linni fyr
en á banastundinni. Hefir höfund-
urinn framsett efnið á mjög listræn-
an liátt, en svarar i raun og veru
ekki spurningunni, en leggur hana
fyrir áhoffendurpar eftir að hafa
athugað hana l'rá ýmsum hliðum.
Efnið er í stuttu máli það, að
ung lijón Robert Taylor og Stella
giftast. Vinir hans hafa gefið þeim
flugvjel i brúðkaupsgjöf og á sjálf-
an brúðkauþsdaginn fer Robert að
reyna vjetina en hrapar til jarðar.
Itann týnir ekld lífinu, en verður
(irkumlamaður æfilángt og verður
að sitja í ökustól. Samfarir hjón-
anna eru eigi að síður hinar bestu,
þangað lil hróðir Roberts, Walter
Taylor (Gustav Frölich) kemur
heim frá Ameríku þremur árum síð-
ar. Hann er lifsglaður og aðlað-
andi maður og lirókur alls fagn-
aðar hvar sem hann kemur, og
innan skamms fara hugir hans og
mágkonu hans að hneigjast saman. .
Hann fer með henni á skemtistaði,
en móður hans grunar í'yrst i st-að
ekkert, þangað til einu sinni áð hún
kemst að þvi, að þau hafa ekki
farið í ieikhúsið, eins og þau höfðu
sagt, en i stað þess haldið sig ein-
hversstaðar á leyndum slað. Móð-
irin gengur á ])au og þau segja
henni hvernig komið sje og að
þau verði að fara til Roberts og
biðja hann um að leysa Stellu frá
hjúskaparheiti hennar. Þetta verð-
ur að ráði lijá þeim og er ákveðið
að taia um þefta við Robert daginn
eftir. En um morguninn er hann
örendur. Fyrst í stað halda allir
að hann hafi dáið af hjartaslagi,
en hjúkrunarkona hans tekur eftir
að svefnlyf, sem hjá honum var
hefir þorrið áberandi mikið. Hon-
um hefir verið gefið svefnmeðal
um kvöldið til þess að stytta hon-
um aldur, og lilífa honum við því,
sém fram álti að koma daginn eftir.
En hver hefir gert það?
Það má eindregið ráða öllum,
sem hafa smekk fyrir góðum mynd-
um, að sjá „I.ogann helga“.
TRUMBULL Nafnið, sem myndin
OG SONUR ber er heiti stórrar
_—skipsmíðastöðvar, sem
gegnum sex ættliði hefir gengið
frá föður til sonar, ög áunnið sjer
mikinn orðstír. Pegar myndin hefst
er það Brock Trumbull (George
Bancroft) sem er lífið og sálin í
fyrirtækinu og hefir eigi verið eft-
irbátur feðra sinna. En hann á eng-
an aon til þess að taka við, heldur
aðeins litla dóttur sem er tiu ára
og þetta veldur honum áhyggju. En
einmitt sama daginn, sem verið er
að hleypa af stokkunum stærsta
skipinu, sem stöðin hefir smíðað
liingað til fæðist honum sonur —
sjötti forstjórinn í ættinni. Og i
gleði sinni skírir liann skipið „Arf-
takinn VI“. En móðir hans deyr af
barnsburðinum, en fögnuðurinn yf-
ir syninum er svo mikill, að hann
vegur upp á móti sorginni.
Drengurinn er hinn efnilegasti
og fylgist af áhuga með störl'um
föður sins, en eitt getur hann ekki
skilið og spyr föður sinn: „Hvers
virði eru peningarnir eiginlega að
lokum?“. Hann skilur ekki þessa
spurningu þá. Og lianii skilur hana
ekki heldur þegar liann missir
drenginn 8 ára gamlan, eftir að
hann hefir orðið innkulsa við að
standa yfir að hleypa nýju skipi
af stokkunum. — En Brock Trum-
bull verður þó iirvinglaður al' sorg
og fer til Eyrópu til að ljetta sjfer
upp. Þar kynnist hann konu og
giftist henni í von um áð eigna..!
nýjan son. En sú kona hel'ir eink-
um gengist fyrir peningunum hans.
En dóttir hans hefir orðið ást-
fnnginn af ungum forstjóra nýrrar
skipasmíðastöðvar, Joe Warren.
Trumbull eihselur sjer að eyði-
lcggja þennan unga keppinaut sinn
og hefir bein i hendi til þess. En
atvikin verða til þess að þetta á-
form ferst fyrir og segir myndin
frá því á átakanlegan hátt. Hinn
voldugi Brock Trumbull sannar að
lokum, að peningarnir eru ckki
einhlítir — ]>að þarf meira til að
skapa gæfuna. Myndin brýnir þessa
kenningu á einkar áhrifamikinn
hátt fyrir áhorfendunum.
„Trumbull & sqnur“ er tekin af
Paramóunt og aðalhlutverkið leik-
ur hinn ágæti listamaður George
Bancroft. Seinni konu hans leikur
Julielte Compton og dóttur hans
leikur Frances Dee. Er myndin
.með afbrigðum vel leikin og leik-
stjórnin liefir farið .lolin Cromwell
með afbrigðum vel úr hendi. Verð-
ur myndin sýnd á GAMLA BÍÓ á
næstunni.
DJÁLFUN UNDIR KAPPLEIKINN
Það hefir lengi verið kunnugt,
að hnefleikamennirnir heimskúnnu
Dempsey, Max Schmeeling og
Young Slrihling erú allir talsverl
líkir i sjón, einkum tveir l>eir
fyrstnefndu. Þegar Schmeeling var
að þjálfa sig undir Evrópúmeist-
aratigiiina kölluðu mcnn hann.
„Þýska Dempsey" vegna ]iess hvað
liann var likur heimsmeistaranuin.
Siðar varð hanu heimsmeislari og
varð síðan að verja tign sína fyr-
ir Stribling. Myndin sýnir eina af
þjálfunaraðferðum Striblings: hann
e.r að plægja akur.
----x----