Fálkinn - 04.02.1933, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
>)
WÍMftliVÍ1*
.:•> ::V:
::v::':v:\\v>n\v:v:a:V'.v::-:v.v:
Hm mm ■■■m
.
Frakkar eru trúmenn miklir og láta prestana skíra flugvjelar
sínar og óska þeim gengis og biðja forsjónina að verncla þær
frát slysum. Nýlega skírði prestur einn heilan hóp af litlum
farþegaflugvjelum og voru þær allar látnar heita eftir ýms-
um frönskum bæjum. Að svo búnu voru þær sendar út um
landið til þess að agitera fyrir notkun flugvjela.
Ostruveiðar eru mikið stundaðar meðal flestra nágranna-
þjóða og þykir arðvænlegur atvinnuvegur, því að góðar ostrur
eru sælkeramatur, sem seldur er háu verði. Víða hafa menn
ostruklak, eins og t. d. Danir í Limafirðinum. Hjer á mynd-
inni sjest maður vera að kasta ostruseiðum í sjóinn.
Bayernsbúar reka nautgripi
sína á fjall eða til selja á
sumrin og vitanlega er þetta
ekki gert formálalaust held-
ur með sjerstákri athöfn
■'é.ins og flest í Bayern. Horn-
in á nautgripunum eru
skreytt með ýmsu móti og
bjöllur hengdar um háls
þeirra og síðan er lagt a/
stað með hópinn.
Myndin til hægri sýnir nýja
borgarstjórann i London,
sir Percy Greensway og
konu hans, er þau komu í
lávarðardeildina tit þess að
fái s't'áðfestingu konungs á
embæltinu fyrir milligöngu
lordkanslarans. Er það hinn
opinberi dyravörður mál-
stofunnar sem sjest taka á
móti þeim á myndinni.
í sambundi við Björnsonsafmælið
var efnt til Björnsons-sýningar í
háskólabókasáfninu í Oslo. Er þetta
fullkomnasta sýningin, sem hefir
verið halditi til minningar um hann
og er ættað að sýna þýðingu hans
fyrir þjóðina, bæði sem skáld,
stjórnmálamaður og blaðamaður.
Þarna er til sýnis fjöldi handrita
skátdsins að sögum, kvæðum, blaða
greinum, ræðum og leikritum á-
samt öllum útgáfum sem til eru af
prentuðum ritum BjÖrnsons, mynd-
ir og málverk af skáldinu og ýmsir
munir sem hann hefir átt. Myndin
lil hægri sýnir noklcurn hlnta sýn-
ingarinnar.