Fálkinn - 11.03.1933, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
mk
1 Harbin í Mandsjúríu urðu mikil
vatnsflóð snemma í vetur oq ullu
stórtjóni á eignum manna en mann-
skaði varð ekki teljandi. Varð að
fara um göturnar á bátum þegar
mest gekk á. Myndin er tekin efiir
að flóðið fór að rjena. Sjest jdp-
anskur hermaður á miðri mynd-
inni, standa 11 götunni og stjórna
umferðinni.flarbin eða Charbin hef-
ur um 20.000 íbúa og er járnbraut-
armiðstöð Mandsjúríu því að þar
skiftast leiðir brautanna til Vladi-
vostok og Norður-Kína. 1 Harbin
böfðu fíússar aðalbækistöð sína í
ófriðnum við Japana árið 1905.
Hnefleikamdðurinn McCor-
kindalc frá Suður-Afríku
gekk nýlegii í hjónaband i
London. Þegar út úr kirkj-
unni kom var þar svo mikil
þvaga af fólki saman kom-
ið til þess að sjá hnefa-
kappann, að hann treysti
ekki brúðurinni að komast
áfram en tók hana i fang
ið og ruddist gegnum hóp-
inn, eins og sjá má af myrnl-
inni til vinstri.
Myndin til hægri er af Am-
eríkumann in um Lin coln
Ellsworth, þeim sem studdi
norðurflug Amundsen og
Norðmanninum Bernl Bal-
chen, sem stýrði flugvjel
Byrds yfir Atlantshafið og
flaug með hann á suður-
skautið. Þeir fjelagar eru
nú að undirbúa nýtt flug til
siiðurheimsskautsins.
Danski flugmaðurinn Ulbrich,
sem fórst á flugi i haust. Leif-
ar hans hafa ekki fundist.
Dyrnar á kauphöllinni í París.
Þar þótti öllum vel fara er
franska þingið neitaði að greiða
afborganir til Bandaríkjannu
og voru þær þó ekki nema
fimtungur þess sem Bretar áttu
að greiða og greiddu.