Fálkinn


Fálkinn - 18.03.1933, Blaðsíða 7

Fálkinn - 18.03.1933, Blaðsíða 7
F Á L K 1 N N 7 Myndin hjer að ofan er af útför þeirra, sem fórust oið sprengingnna, i Xennkirchen. duttu niður á næstu hús og t'jellu þau í rúst. Einkum urðu verkamannabústaðir, sem stóðu rjett hjá gasgeymirnum illa út- leiknir. Gat varla heitið að þar stæði steinn yfir steini eftir sprenginguna og þar varð manntjónið mest. En út i frá í bænum ljek alt á reiðiskjálfi. Rúður brotnuðu í öllum húsum og þök fjellu víða, en sprek og grjót flaug viðsvegar um og særði fólk og skepnur. Og svo mikill var loft- þrýstingurinn, að rúður brotn- uðu í mikilli fjarlægð frá borg- inni, en hvellurinn af spreng- ingunni heyrðist til annara borga. Fólkið í bænum varð felmtri slegið, æddi á burt úr húsunum og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. A vegunum fvrir utan bæinn sást það flýja þús- undum saman á burt til þess að l'orða sjer undan hættunni. En inni í hænum, þar sem skemdirnar urðu mestar kváðu við óp og kvein særðra manna og hamstola. Sporvagn, sem var á fullri ferð á götunni skamt l'rá gasstöðinni er sprengingin varð tókst á lol'l og þeyttist af sporinu og fórust margir af farþegunum. Læknarnir komu fljótt á vettvang og höfðu unnið frá- bært starf. Höfðu þeir gert bráðabirgðaaðgerðir á fólkinu á götum úti, þær sem ekki máttu bíða og . hafði tekist furðu fljótt að koma hinum særðu á sjúkrahús eða búa um þá í samkomuhúsum. Og frá næstu borgum komu læknar og hjúkrunarlið. En fram á nótt mátti sjá fólk reika í eirð- arleysi um göturnar til þess að leita að ættingjum, sem það saknaði. Fjöldi manna var þeg- ar settur til að grafa í rústum húsanna, sem hrunið höfðu. Var mörgum bjargað og sum- um furðu lítið særðum. Fyrst í stað var talið, að sprenging- in hfefðu orðið miklu mann- skæðari en síðar reyndist. En þó var þetta ekki smáræðis slys. Því að 57 lík fundust i rústunum en um 160 særðust mikið og ljetust sumir þeirra af sárum sínum. En mörg hundruð særðust lítillega, eða eigi meira en svo, að þeir gátu farið frá læknunum af eigin ramleik eftir að bundið hafði verið um sár þeirra. Þessi gasstöð, sem sprakk var tekin til notkunar á miðju árinu 1931 og tók geymirinn, sem vam 60 metra hár, um 150. 000 rúmmetra af gasi og var liinn þriðji að stærð í Þýska- landi. Að svona stór gasstöð var í ekki stærri bæ, kom til af því, að alt Rín-pfalz hjerað- ið fjekk gas fró þessari einu stöð. Eftir sprenginguna kvikn- aði í gasinu og logaði á því, með sífeldum smásprengingum lengi nætur og var talið Iiapp að það skyldi brenna þvi að öðrum kosti hefði það drepið fleiri en sprengingin sjálf. En hún var svo mikil, að hún hafði heyrst í borgunum Mannheim, Ivarlsruhe og Heidelberg, sem þó stánda alt 100 kílómetra undan . Um ástæðuna til sprenging- arinnar vita menn lítið með vissu. Hafði fyrst heyrst smá- sprenging, sem stöðvarmenn- irnir gáfu lítinn gaum, en svo kom aðalsprengingin nokkrum mínútum síðar. Sumir halda að l'yrst hafi kviknað í hensol- geymirnum og að eldurinn hafi kveikt í tjöruþjettingum við gasgeymirinn. Aðrir álíta að el' til vill geti geymirinn hafa skemst við ofurlítinn jarð- skjálftakipp, sem varð þarna nokkru áður. En endanleg vissa hefir sem sagt ekki feng- ist um orsök þessa hræðilega slyss. Talið er að það muni taka upp undir ár að byggja upp aftur húsin, sem hrunið hafa og gera við aðrar skemdir af völdum sprengingarinnar. Fjöldinn allur af fólki misti þarna aleigu sina, en hjálp kom mjög fljótt frá nágranna- bæjunum og þeir sem mist höfðu heimili sín fengu að kalla strax húsaskjól. Samskot voru hafin þegar í stað þegar í stað til þess að hjálpa hin- um bágstöddu og reið Hinden burg þar á vaðið og gaf 100.000 mörk og von Papen sendi jafn- stóra upphæð, sem ríkisfulltrúi Prússlands, en stjórn stærstu verksmiðjunnar í Neunkirchen lagði til fatnað og 60.000 mörk. Var útför þeirra, sem fórust gerð á ríkisins kostnað. Þetta er alvarlegasta slys al' sprengingu, sem orðið hefir í Þýskalandi síðan árið 1921, er sprengingin varð í anilíngerð- inni í Oppau, sem var eign Radische Anilin u’nd Sodat'a- brik, eins stærsta efnavöruvje- lags í heimi. Þar fórust á sjötta hundrað manns. Slysið í Neunkirchen vakti óhemju athygli um landið, ekki síst í nágrenninu. Dagana tvo næstu eftir að slysið varð komu um 90 þúsund manns til Neun- kirchen til þess að skoða ai'- leiðingarnar. Varð að liafa sjer slaka lögreglu til þess að bægja gestunum frá þeim borgarhlut- anum sem verst hafði orðið úti. í Kényanýlendunni í Suður-Afriku fundust nýjar gullnámur fyrir rúm- um fjórum mánuðum. Pegar þetta fregnaðist þyrptist fjöldi fólks á slað- inn, bæði innfæddir menn og hvit- ir. Lenti í ryskingum milli þeirra, því að þeir innfæddu vildu meina hvítum mönnum aðgang og voru (i menn drepnir. Enska stjórnin hefir gefið úrskurð um, að hvorirtveggju hafi sömu rjettindi til gullgraftar- ins. Amerísk veiðimannablað birti ný- lega skýrslu um aldur ýmsra dýra. Sjaldan henni verður úlfaldinn sjald- an meira en fimtugur, diifan 70 ára, birriir fejiugir, strútarnir sjöt;ugir, og hrafnarnir 200 ára. Æðarfuglar gæsir, risaskjaldbökur og páfagauk- ar geta. líka orðið 200 ára og' sömu- leiðis fíllinn. Geddan verður 150 ára, gammar 120 og ernir 100 ára. Svan- ir verða lika 100 ára og ef til vill meira. — Ljónið verður ekki riema 25—30 ára og tigrisdýrið dálítið: eldra, en kettir sjaldan nema tíu ára. Alifuglar geta orðið 15—20 ára en mýs geta orðið 22 ára, Flóðhestur- inn fertugur. Bíflugnadrotningin get- ur orðið 60 ára en vinnuflugurnar verða aðeins 6 vikna. Asninn verð- ur aldrei meira en fimtugur. -----x---- Flugmaður sem liefir verið í leið- angrum um Norður-Canada í sumar ■ hefir lundið radium-málm nálægt Bjarnarvatni. Hafði hann sýnishorn af þessum málmi með sér heim og tjet efnafræðinga rannsaka hann og sannaSist þá að málmurinn var sjerlega auðugur. Efnafræðingar í C.anada hafa fundið nýja aðferð til 'að vinna radium úr málmirium á miklu auðveldari liátt en nú. Það eru Belgir sem ráða yfir allri rad- ium framleiðslu heimsins nú og fá þeir það frá Kongo. Þar þarf 40 smálestir af málmi til þess að fá eitt gramm af radium, en Canada- menn segjast geta náð grannninu úr aðeins tíu tonnum af málminum við Bjarnarvatn. Stendur nú til að stofna fil radiumvinslu í Port Ilope í Ontario og keppa við Belga á heims- markaðinum. -----x---- Leiðangur, sem liafði vetursetu á Wrangell-ey í vetur hefir fundið þar 52 mammútstennur. Tenriurnar eru 90 pund á þyngd að meðaJUaJj.. -----x----

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.