Fálkinn


Fálkinn - 18.03.1933, Blaðsíða 14

Fálkinn - 18.03.1933, Blaðsíða 14
14 FÁLKINN mjer að komast leiðar minnar. Þakk yðnr fyrir. Það er ekki serinilegt, að við sjánmst aftur. Maine stje til hliðar og Vorst, með herð- arnar í kryppu og hendur djúpt í vösum stikaði upp eftir götunni. Dr. Hollis kinkaði kolli þakksamlega til lögregluþjórianna og kvaddi þá glaðlega og gekk síðan til Maine. Jæja þá? - Þetta verður enginn harnaleikur, sagði Maine og horfði enn á hinn ískyggilega bak- svip Vorsts, sem fjarlægðist smátt og smátt. Jeg vissi, að það yrði ekki Ijett, — en jeg hlýt annars að hafa breytst eirin djöful- dóm siðan hann sá mig síðast. Hann þekti mig ekki fremur en jeg' veit ekki hvað — þó að jeg væri altaf að hjálpa honum til þess, stig af stigi. En hann gerði ekki svo mikið sem depla augum. En jeg ætla að elta dýrið uppi og firina út hvar hann held- ur sig helst. Þjer eruð náttúrlega í Harley Street, er það ekki? Jú. Hjerna er spjaldið mitt. Þakk’ yður fyrir. Mig langar til að koma til yðar í kvöld og rabba lengi við yður um þetta efni. Þvi enn sem komið er hafið þjer ekki heyrt nema rjett undan og ofan af málinu. Og jeg vil gefa yður alveg fullkomna skýrslu um það eins og' það leggur sig og afherida yður það svo til með- ferðar. Vorst kann að handsama mig — og yfirvöldin geta vaknað við það, að eitthvað sje hæft í bulli mínu, þegar þau sjá, að helm- ingur allra landsbúa fellur í valinn fyrir einhverjum gjöróþektum sjúkdómi. Gott og vel, drengur minn. Komið þjer í kvöld — segjum kl. 9. Er það yður hent- ugt? — Já, ágætt! Og nú verðið þjer að hafa mig afsakaðan. Jeg vil ekki missa sjónar á Jaan Vorst. Hann er hrekkjóttari en svo, að mjer megi vel líka. Jeg býst við því að einhver dólgur hans sje á hælum mínum, en við þvi verðnr ekki gert. Maine gekk burt i hægðum sínum, og dr. IIollis, sem hvorki vissi ujDp nje ni'ður, nema að hann var dauðskelkaður, var eftir einn á gangstjettinni. II. Kellard Maine kom aldrei til móts þess, er hann hafði mælt sjer við dr. Hollis. Og tildrög þau er til þess lágu voru þannig vax- in, og það flókin, að varla hefði verið hægt að álasa honum fyrir brigðmælgina. Þessi tildrög samanlögð nægðu lika til að sýna það svart á hvitu, að hótun Jaan Vorsts var hreint ekki út i vindinn eða bláinn, lieldur persónuleg ógnun, sem verið var að framkvæma, alt frá því augnabliki er hún kom fyrst fram. Maine elti kynblendinginn götuna á enda. Hjá Blackfriars-brúnni sneri hann til hliðar og yfir brúna og fór þar inn í eina smágöt- una, sem var iðandi af umferð. Vorst sýndist vera þaulkunnugur þarna. Hann sneygði sjer gegnum þröngar smug- ur, hárviss, eins og hann gengi í svefni. Ilann virtist alls ekki hafa hugmynd um að hann vær eltur, og leit ekki einusinni um öxl, heldur stikaði áfram og fór með furðulegri ferð. Uridir kl. 11 var hann kom- inn langt niður með ánni og stikaði gegn- um hrúgur af rusli, sem þar voru eftir markaðinn snemma um morguninn. Maine, sem var stöðugt á eftir honum, liafði augun vel hjá sjer. En hinn sýndi ekki allra minstu merki þess, að hann vissi af rienni eftirför. Snög'glega snejri Vorst inn í hreiriasta tóu- greni af smugum, sem skáru hvor aðra, og hrörlegum liúsagörðum. Húsin, sem voru tvílvftir kofar komnir að hruni voru þjett saman og smugurnar á milli þeirra, voru í hálfgerðu rökkri allan daginn. Og svo var birta þarna af skornum skamti, að hjer og hvar voru gasljósker logandi. Þau upplýstu innganginn að öðrum skítugum húsagörð- um, sem voru svo dimmir, að þeir mintu mest á jarðgöng. Skuggi og dimma virtust fastir lilutar af andrúmsloftinu. Fyrir ofan eitt af hinum flöktaridi ljós- um, kom Maine auga á nafnspjald. Það var mjög ógreinilegt og illa málað, — i'jett að það var læsilegt. En Maine setti þó nafnið á sig. Þvi rjett i sama bili sem hann var að lesa það, kom högg af sandpoka á vinstra gagnauga hans. Þetta kom svo snögglega, eins og heili hans rækist snögglega alt í einu i eitthvað hart og fyrir augum hans var hvit móða með rauðum smádílum i. Um leið og alt varð dimt fyrir augum hans datt hann. Um leið og höggið reið af og Maine fjell meðvitundarlaus, leit Vorst við. Andlit hans var sem dautt og án þess að brosa, líkast andliti örlaganornarinnar. Tíu sekúndum áður en höggið reið af hafði hann farið fram hjá litlum, óhreinum glugga, sem var rjett við horn eitt á múrnum. Gluggi þessi leit út fyrir að hafa ekki verið opnaður árum saman. Hann var óhreinn og ataður á öllum samskeytum, og sjálft glerið var eins og hrímað af óhreinindum. Fvrir inn- an þennan glugga höfðu tvö augu beðið, eins og þau gerðu ávalt er Vorst fór að heiman, skásett augu — sem öll meðaumk- un og göfugar tilfinningar höfðu slokknað út í löngu áður en þau fæddust. Vorst hafði gefið merki um leið og hann gekk fram hjá — Það var ekki annað en smá hreyfing með vörunum, sem sást varla og hinn hafði deplað augunum í svars skyni. Og þegar Maine kom fyrir gluggan ha' 5i hann opnast á lömum, sem voru löðrandi í olíu. Grannur, gulleitur handleggur kom út og í hendinni var sandpoki. Hann skall í höfuð Maines um leið og hann leit upp til að lesa á spjaldið. Komdu með liann, sagði Vorst. Maðurinn kom stökkvandi út um glugg- ann og augnabliki síðar annar til, háll eins og áll og fimur sem höggormur. Þeir tóku Maine upp eins og hann hefði verið mjel- sekkur og báru hann niður þrepin, sem voru beint fyrir neðan flögrandi gasljósið. Annar þeirra sparkaði þungri iviirð upp og þeir báru manninn inn. Inni fyrir hrollkalt og rakt eins og þús- und sinnum hefðu flóð og fjara skolast þar um síðan ma’nnleg vera steig þar sið- ast fæti. Þeir báru hann niður öririur þrep og gegn um heilt völundarhús af þröngum, nið- dimmum göngum, þar sem vatnsrensli lieyrðisl rjett eins og stór foss væri í fjarska, og beljaði í einhverjum neðanjarðarbelli. Hvergi var nokkur ijósskima sýnileg. En svo virtist sem burðarmennirriir hefðu enga þörf fyrir slíkt, því að þeir röklu þessa krákustíga, án þess að rekast nokk- uru. sinni á. Því lengra sem þeir komust, því kaldara varð loftið og rakara. Þetta var eins og að vera niðri í kjallara, nema livað andrúmsloftið var fúlt. Hjer var rakt, lik- ast og í einhverju sóttkveikjufeni í hita- beltinu, sem snögglega hefði frosið. \rorst opnaði hurð sem fjell þjett að alt um kring. Austurlandabúarnir tyeir ýttu byrði sinni inn um dyrnar og fóru, en fóta- tak þeirra bergmálaði um eyðileg göngin, lörigu eftir að þeir voru farnir. Maine raknaði úr rotinu klukkutíma seinna, með dynjandi höfuðverk. Honum fanst eins og járnfleinn væri rekinn þverl i gegnum höfuð sitt, gagnaugnanna milli. Einhversstaðar utan úr dimmunni heýrði liann rödd Vorsts, líkast og suðu, sem kæmi einhversstaðar utan úr geimnum. - Þjer eruð þarna, Kellard Maine? Jú, jeg heyri hreyfingu til yðar. Nú bið jeg yð- ur hlusta vel, því jeg liefi nauman tíma. Það er mögulegt, að vinur vðar sje þegar dauður. Að minsta kosti á hann ekki langt eftir ólifað. Ef til vill ekki lengra en þjer sjálfur. Svarti þríhýrriingurinn er allsstaðar kringum yður. Þarna er matur hjá yður, sem þjer etið — eða verðið hungurmorða. Þarna er vatn, sem þjer drekkið — eða deyið úr þorsta. Og þarna er loft, sem þjer andið að yður — eða kafnið. Alt þrent er eitrað. Þjer deyið — rjett eins og vinur yðar í Birkenhead forðum. Verið þjer nú sælir. Böddin hætti að tala. Fótatakið fjarlægð- ist og Maine varð aleinn eftir i daugaþögn- inni. í nokkrar sekúndur bærði hann ekki á sjer. Til þess var hann of máttfarinn og ringlaður. Einliver dofi virtist hafa gripið líkama hans og sál. í höfði hans suðaði og brakaði eins og i vjelsög, og hann hafði einhverja sjóveikitilfinningu, eins og hann hefði gleypt ramsalt vatn, lieitt. Á vinstra gagnauga lians virtust allir verkirnir koma saman á einum litlum hletti, það var marið og aumt viðkomu. Síðasta hljóðið dó út i gariginum og þögn- in varð óbærileg áreynsla á eyru lians. Hún varð eins og þyngri og þyngri og blandaðist við myrkrið á einhvern óskiljanlegan hátl. Og þessi dimma hafði ruglandi áhrif á hann. Ilún hjekk einhvernvegínn i loftinu og virtist vera hluti af því. Hún var ekki dimma í venjulegum skilningi, heldur þrá- látur og' algjörður skortur á ljósi mið- nætti í almætti sínu. Þetta var alt og sumt, sem var í þessu myrkraveldi þögn og myrkur! En. . en. . það hlaut þó að vera eitthvað meira — eitthvað, sem var hluti af hvorutveggja, sem stafaði af öðru og jók skelfingu hins. Ringlaður heili hans reyndi að grípa þetta og gera úr því einhvern veru- leika. En hugUr hans fálmaði í myrkri, sem sisl gaf eftir myrkrinu í kjallaranum. Vatnsdropi fjell þungt ofan úr loftinu og niður í poll á gólfinu. Nú, þarna var það — einstakir vatns- dropar, sem fjellu liægt og hægt, með dá- litlum smelli niður i ósýnilega polla í myrki1- inu. Nei. ... og þó ekki. . . . heldur eitthvað ennþá ógreiniiegra og óákveðnara. Eitthvað Joftkenl.... Hann fjekk þá undarlegu hugmynd, að

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.