Fálkinn


Fálkinn - 01.04.1933, Blaðsíða 3

Fálkinn - 01.04.1933, Blaðsíða 3
F A L K l N.N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmclastj.: Svavar Hjaltcsted. Aðalskrifstofa: BanKastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: Anton S c h j ö t h s g a d c 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Ýms íþróttafjelög í Reykjávík hafa verið að halda aldarfjórðungsaf- mæíi sín hátiðleg síðustu árin og gera það í vetur. Þegar önnur lönd eru tekin til samanburðar er ald- ur hinna íslensku fjelaga ekki hár, þau mega heita á bernskuskeiði. En þó er vert að líta á, hverju þessi fjelög hafa fengið áorkað á þessum stutta æfir'erli. Yfirleitt mun þeim ekki hafa ver- ið spáð langra lífdaga um það leiti, sem þau voru í æsku. Wðhorf al- mennings til íþróttanna var öðru- vísi þá en nú. íþróttaiðkanir þekl- ust varla, jafnvel glíman sjálf liafði legið í þagnargildi. Leikfimi var kend í Latínuskólanum og eitlhvað (í Barnaskólanum í Reykjavík), en annarsstaðar ekki. En upp úr alda- mólúnum l'er að lifna yfir þessum málum. Aluireyringar efna til glímu- móts fyrir landið og hinn fyrsti glimukongur verður til. íslendingar ráðast i að senda íþróttamenn til Olympsleikanna í London 1908 og fjórinn árum síðar fer annar flokk- ur tii Olympsleikanna í Stokkhólmi. Síðan hafa íslendingar ekki komið fram á jiessum leikjum. Þó er það ekki af því, að íþróttirnar hjer hafi verið i afturför. Þvert á móti liefir l>eim fjölgað ár frá ári, sem taka þáll í íþróttum, fjelögunum fjölgar um alt land og meðlimátala livers fjelags hækkar svo að nú telja slærslu fjelögin í Reykjavík hátt upp í þúsund méðlimi. Það er þjóðarsómi að eignast svo færa meníi i íþróttum, að þeir geti haldið velli í samkeppni við aðrar slærri þjóðir. Og að fáu er íþrótta- breyf.ngunni eins mikið gagn, því að einmitt þetta. laðar fólk að henni. En |>ó er j>að enn meira þjóðargagn, að sem flestir iðki iþróttir sjer til almennrar heilbrigði. Það sem þýð- ingarmest er í þessu máli, er að íþrótt in veröi almenn — að sem fleslir njóji gagns af henni. Og að því ber fyrst og fremst að stefna. Þegar i- þró.taiðkendurnir eru orðnir nógu margir koma áreiðanlega einhverj- ir afreksmenn fram, sem geta stað- ið snúning hverjum sem er. En þjálf- un íþróttamannanna, sem lengst komast, er orðin svo mikið vísinda- starf, að ekki verður komist af án æfðra kennara ef ná skal fullum árangri. Þetta kostar fje. Og að svo konmu er rjettara, að verja því fje, sem til næst, til þess að gera í- ijmótti.rnar sameign sem fles'ra frennir en að leggja aðaláliersluna á, að þjálfa nokkra afreksmenn, en láta fjöldann sitja á hakanum. Því að þá kemur sú tið, að ástæður vcrða til að gera hvorltveggja. Efnilegur efnafræðingur. Margir eru þeir íslendingar, sem slunda nám við er- lenda skóla og há- skóla lil jjess að íiema ýmsar nyt- samar greinir, til þess að geta síðar unnið fyrir land sLt og jjjóð. Þó eru þáð tilfinnan- lega fáir menn sem leggja fyrir sig nám i efna- fræði enda jaótt að í ]>eirri grein sjeu meiri verksvið fyr ir duglega menn heldur en í flest- um eða öllum öðr- um greinum fyrir iðnað og framtak íslendinga um ókomin ár er j>að mikilsvert að til sjeu lærðir sjer- fræðingar í efnafræði, sem g'eta kent landsmönum að nota sem best afurðir landsins og gera úr þeim markaðshæfa vöru — og að nota auðsuppsprettur þess. — Einn af þeim fáu mönnum, sem hefir lagt fyrir sig slíkt nám er Jón E. Vest- dal frá ’ Breiðabólsstöðum á Álfta- nesi. Tók Jón stúdentspróf 1928 og fór siðan utan til þess að stunda nám í efnafræði við ‘háskóíann i Dresden í Þýskalandi. Er sa skóli talinn einn hinn fremsti i þeirri grein þar í landi. Venjulega er tal- ið að efnafræðisnám taki 5 ár, en Jón lauk því á tæpum 4 árum og með ágætiseinkunn. Fjekk hann beíri vitnisburð í ölhna greinum heldur en þeir allir hinir, sem tóku próf. samhliða — og var j>að vel gert. — Síðan Jón lauk prófi hefir hann unnið að doktorsritgerð, sem hann ætlar að verja við háskdann á þessu ári. — í brjefi, sem Jón skr.faði nýlega hingað, segir hann svo um starf sitt: „Ritgerð mín verður ura króinun, sjerstaklegá rannsókn á anóðunni i krónnmarbaði. Krómun yfirleitt er ákaflega aktúelt spursmál meðal vísinda- manna nú, þvi krómþynnur á öðr- um málmum eða málmblendingum, 1. d. messing, járni, eykur endingu |>essara málma geysilega: þeir stand- ast miklu betur núningú, þvi krórn er ákaflega hart, hefLr hörkuna 9 (díamant hefir sem kunnugt er hörkuna 10, og bann er harðastur allra hluta sem við þekkjum). T. d. er sög, sem er krómuð, margfalt endingabetri en venjulg sög. Súr- efni loftsins hefir engin áhrif á krómaða málma lengur. j>eir verða beldur ekki leystir upp í sýrum, auk margra annara kosta. Fyrir all- löngu fann próf. dr. E. Muller upii nýja aðferð L1 krómunar, sem er Katrín Oddsdóttir, Litlateig á Akranesi, verður 75 ára á morgun. að mörgu leyíi miklu betri en aðr- ar aðferðir, sem hingað til hafa verið notaðar. En enn hefir ekki verið hægt að framkvæma þessa aðferð tekniskt, j>ví engar amóður hafa verið Ll, sem hægt væri að nota í þessum krómunarböðum. Jeg hefi nú fundið þessar langþráðu anður og er að rannsaka notagildi þeirra, fyrst og fremst í krómunar- baði, en auk j>ess lika á öðrum svið- um, t. d. til l>ess að framleiða krómsýru". Þess skal og getið að kennari Jóns hefir j>egar sótt um einkaleyfi á notkun rannsókna Jóns, svo að sjá má að þær eru mikilsverðar. Með grein þessari vildi jeg vekja atliygli manna á j>essum efnilega og duglega efnafræðing, sem nú 'er að fullnuma sig í l>eirri vísandagrein, sem mikilsverðust er fyrir land vort. Væri óskandi að þing og stjórn styrktu hann og aðra þá menn, sem slíkt nám stunda, ríflega, þar sem víst er að iðnaðurinn verður að aukast stórkostlega ef vinna á bug á atvlnnuleysinu i landinu. G. Ekkján Guðríður Oddsdóttir, Rafmagnsstöð'inni, verður 80 ára í dag. Sv. Juel Henningsen stórkaup- maður, verður fimtugur í (lag. Ekkjan Anna Bjarnadóttir, Vesturg. hö A verður 80 ára 3. þ. m. Auðunn Jónsson, Eyvindar- múla, Fljóishlíð, verður 75 ára í dag. Það bar við í London um daginn, að ung hjónaefni, sem lengi höfðu verið trúlofuð, fóru til lögmanns lil þess að láta gefa sig saman. Svara- menn og fjölskylda. hjónaefnanna kornu og á vettvang og alt var vel unrí rbúið til ,þess að gera hjóna- vígsluna eins hátíðlega og unt var. En þegar á átti að herða og að því var komið að sjálf vígslan skyldi byrja, gekk stúlkan fram á gólfið og sagði: „Jeg vil ekki giftast. Móð- ir mín hefir verið gift f.nun sinn- um, svo að jeg er hrædd við hjóna- bandið. Þar að auki held jeg að jeg sje að verða ástfangin af öðrum manni. Jeg vil ekki giftast!“ Og lög- maður gat ekkert áít við stúlkuna. Hann varð að hætta v.ð athöfniria — og senda alt fólkið frá sjer. ----x---- Samkvæml opinberri amerískri skýrslu hafa verið framin 2500 brott- nám þar í landi í síðustu þrjú ár- in. Eru það mest áuðugar konur og börn ríkra manna, sem bófarnir slela og láta ekki frá sjer aflur nema stórar fúlgur sjeu greiddar í lausnarfje. Er talið að um 12 millj. króna hafi verlð borgaðar i þessu skyni, bófum, sem lögreglan ræður ekkert við. ——x------ Frá Budapest berst sú fregn, að 84 ára gamall karl og átlræð kerl- ing, sem búin eru að vera trúlofuð í 53 ár, loks liafi ákveð.ð að ganga i hið heilaga hjónaband. Belra seint en aldrei! B LÝA N T A R i öllum Iiörkum frá 6 B upp i 8 H eru fyrirliggjaiutl I Gleraugnabúðinni Laugaveg 2 Einnig skrúfblýantar og lindar- pennar og gert við þá. Blek i öllum lituui.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.