Fálkinn


Fálkinn - 01.04.1933, Page 16

Fálkinn - 01.04.1933, Page 16
16 FÁLKINN Sjálfvirkar rafstöðvar þurfa engrar gæzlu. Þær stilla spennuna sjálfkrafa án tillits til þess, hvort álagið er mikið eða lítið á hverjum tíma. Sá sem sér um slíka rafstöð þarf eigi að gæta annars, en að vélarnar séu nægilega smurðar. Eigi er völ á auðveldari vélum í notkun og gæzlu. Þessvegna á hver sá, sem aðgang hefur að vatnsafli til rafvirkjunar aðeins að byggja sjálfvirkar rafstöðvar og tryggja sér þannig hið ódýra rafmagnsafl, sem eingöngu hinar sjálfvirku rafstöðvar veita, og er hentugasta og ódýrasta leiðin til lýsingar, hitunar og suðu hvarvetna. Fullkomlega sjálfvirkar rafstöðvar FÁST EINGÖNGU HJÁ RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS h.f. Á myndinni hér til vinstri er sýnd vélasamstæða, sem sett hefir verið npp hér á landi. Það er túrbína með lóðréttum ás og rafal (dynamo) í beinum tengslum. Slikar rafstöðvar eru bygðar þar sem vatnsaflið er hlutfalislega lítið að vöxtum en fallhæð mikil. Rör- leiðsla fyrir slíka stöð er tiltölulega mjó. Myndin hér til hægri er einnig af vélasamstæðu sem er í notkun hér á landi. Það er „Spiralturbina“ með lóð- réttum ás og rafal í beinum tengslum. Slíkar stöðvar eru bygðar þar sem vatnsafl er tiltölulega mikið að vöxtum og fallhæð lítil. Til að hafa full not rafaflsins, sem stöðin veitir er tryggast að nota: Sparisuðuvél þá, sem hér er sýnd, til rafsuðu, og til rafbökunar bökunarofninn „C A R NI FI X“ en til þvottanna, þvottapotta og raf hitaðar taurullur frá A E G til hitunar, hitunar- ofna og ljósofna frá A E G Vér erum ávalt reiðubúnir að láta yður í té allar upplýsingar. RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS h.f. Skrifstofa: Sambandshúsinu Einkaumboð fyrir A E G á íslandi. Reykjavík Símar: 4005, 4126, 4510 Símnefni: Elektron

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.