Fálkinn - 01.07.1933, Blaðsíða 1
Hinn 12. júní var sett í London stærsta alþjóðaráðstefnan, sem haldin hefir verið í heiminum síðan friðarfundinn í Versailles.
Er ráðstefnu þessari ætlað að finna undirstöðu að viðreisn viðskiftu- og fjármádalífsins í heiminum, svo að linna megi þvi
ástandi, sem ríkt hefir í heiminum öðru hverju síðan heimsstyrjöldinni lauk en aldrei hefir orðið verra en síðustu 3—h ár-
in. Er nú svo um bregtt frá því sem áður var, að Bandaríkjamenn hafa tjáð sig fúsa til samvinnu við Evrópuþjúðirnar og
skiftir það vitanlega miklu, því að meðan Hoover hafði völdin vestra hjeldu Bandaríkjamenn áfram einangrunar- og toll-
múrastefnu, sem gerði öll heilbrigð viðskifti þjóðanna, austan hafs og vestan ókleyf. — Georg Bretakonungur setti ráðstefnuna
með stuttri ræðu, en næst lýsli forseti hennar, Ramsay Mac. Donald forsætisráðherra starfstilhögun hennar og daginn eftir
hófust umræður. Á þessu mikla fjármálaþingi eiga 67 þjóðir samtals 168 fulltrúa og þeim til aðstoðar eru 1H sjerfræðingar
og ritarar, auk 150 stjórnmálamanna, en um 250 blaðamenn frá heimsblöðunum eru viðstaddir á þinginu, sem haldið er í hinu
nýja jarðfræðisafni Lundúnaborgar, í Kensington. Hjer á myndinni sjest að ofan t. v. Ramsay Mac Donald vera að flytja fyrstu
ræðu sína, en að neðan hluti af þingsalnum. Til hægri mynd af fólki, sem safnast hefir saman fyrir utan fundarhúsið.
FJÁRMÁLAÞINGIÐ í LONDON