Fálkinn


Fálkinn - 01.07.1933, Blaðsíða 3

Fálkinn - 01.07.1933, Blaðsíða 3
f Á L K T N N S VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritsfjórar: Vilh. Firison og Skíili Skúlason. 7raml:va:nulastj.: Svavar HjaKcslcd. Afialskrifslofa: PJanicastracti 3, Re.vkjnvik. Sími 2310. Opin virkn daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i físlo: A n 1 o n S c li j ö l h s g n d c II. Ulaði'ö kemur úl livcrn laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 n mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Auglýsingavcrfi: 20 aura miltimeter Herbertsprent, Uankaslræti 3. Raufarhólshellir. Raufarhólshellir mun vera stærst- ur allra hella hjer sunnanlands. Er hann skamt fyrir ofan bæinn á Vindheimum í ölfusi. Glögg lýsing á hellinum kom nýléga út í Lesbök Morgunblaðsins, eftir Jón Oddgeir Jónsson og vísast til hennar. Ferða- fjelag íslands hefir áformað ferð i hellirinn en orðið að fresta henni vegna óhagstæðs veðurs. Nú stend- ur enn til að fara i hellirinn á morgun ef veður leyfir. Verður e.kið upp í Hveradali en gengið jiaðan í hellirinn, Lágaskarð aðra leiðina en um Þrengslin hina. Gefst 1»á tækifæri til að skoða þennan merka lielli og kynnast jafnframt leiðuih yfir Hellisheiði, sem flest- um eru orðnar ókunnar nú. Má bú- ast við fjölmenni í þessa ferð. Far- miðar fást á afgreiðslu Fálkans til kl. 7 í kvöld. Myndin hjer að ofan er tekin í hellisopinu. Skraddaraþankar. Um það leyti sem Menningarsjóð- urinn tók til starfa var mjög deill um nylsemi hans. Pólitikin rjetti Irain krumlurnar þar eins og víðar og gerði jafn sjálfsagt mál eins og það, hvort íslendingar eigi að hlúa að bókmentum og vísindastarfsemi, að deilumáli. Það má að vísu segja um bóka- útgáfu menningarsjóðs, að suniar bækur þær, sem hann hefir gefið út mundu hafa komist út án til- stillis hans. Á þetta einkum við um Ijóða- og sögubækur. Það verður eigi sagt, að það sje hið rjetta starf- svið sjóðsins að gefa út slikar hæk- ur, því að þær komast út án hans hjálpar. Öðru máli gegnir um síð- ustu bækur sjóðsins, Lagasafnið og hið nýja visindarit dr. Einars Öl- als Sveinssonar um Njálu. Annað þeirra er handhók, sem hefir kost- að mikia vinnu, er umfangsmikil en þarf að komast inn á flest heim- ili i landinu. Einstakir forleggjarar mundu tæjilega hafa getað ráðist i að gefa út slíka bók nema með miklum styrk af opinberu lje. Iiu nú er hún komin út og menn farn- ir að kynnast því hve ágætt verk þetta er og hve ómissandi öllum þoim, sem eitthvað vilja vita um löggjöf þjóðarinnar. Þangað getur fjöldinn sótt ýmsa þá vitneskju sjer lil hagsmuna, sem að öðrum ksti þyrfli að sækjao til lögfræðinganna. Bókin er að vísu dýr, 40 krönur, en svo veitir hún allar upplýsingai- lyrir ekki neitt. Um upphafsril dr. Einars Ö. Sveinssonar uni Njálu, sem hann hefir nýlega varið l'yrir doktors- nafnbót er það að segja, að i'ræði- menn tclja þetta stórmerkt vísinda- ril, sem eigi erindi til allra þeirra, sem sögufræðum unna. En sakir fámennis hjer á landi yrði það ó- kleyfl öllum nema fjáðum mönnum að gefa út slíkl rit á eigi.i kostnað og ungir vísindamenn eru að jafn- aði ekki fjáðir menn. Það fjárhags- triði að koma út doktorsritgerð mundi reynast flestum óyfirstigan- legur þröskuldin Þá má minnast á annað fyrirtæki, sem nýlega er tekið lil starfa, en það er Fornritaútgáfan. Hóf lnin göngu sína me'ð hinni stórmerku úlgál'u próf. Sigurðar Nordal af Egils sögu, sem allir dómbærir menn telja hið ágætasta verk og 'erulegan auð íslenskum bókment- um. Er gleðilegt til liess a'ð vita, hve gróðurinn er mikill í íslenskum bókmentum þrátt lyrir kreppu og óáran, Hjer birtist mynd af hinni nýju póstbifreið, sem verður í förum i sumar milli Reykjavíkur og Ak- ureyrar og hóf fer'öir norður fyrir mánuði. Er hún fjóra Einkennilegt hifreiðarslys var'ð síðastliðinn laugardag í Svína- hrauni neðarlega. Bifreiðin Re. 90S var þar á austurleið, full af far- þegum. Á beygju sem þar er, nokk- uð krappri komst bifreiðin tæpt út á hægri vegarbrún svo að bifreið- arstjórinn mun hafa snarbeygt til vinstri en ekki náð að draga af slýrinu aftur og lenti því út af veg- inum vinstra megin og lenti fyrst á steini en síðan valt bifreiðin ofan í' einn hraunbollann og veltist nið- ur i hann, um tveggja mannhæða fall. Til allrar hamingju var lítill hraði á bifreiðinni og varð það til liess, að allir sem í bifreiðinni voru sluppu ómeiddir við þetta fall, en vitanlega skemdist bifreiðin mik- ið. Eigi verður öðru kenl um, en daga i ferðinni. Bifreiðin hefir rúm fyrir 9 farþega og aftasl klefa fyrir pósftlutning og má líka nota hann fyrir farþega. Bifreiðarstjórinn er Guðmundur Albertsson. að fát hefir komið á bifreiðarstjór- ann þegar hann sá, að hann lenti of utarlega á beygjunni. Má af þessu ráða hve nauðsynleg aðvörunar- merki þau eru, sem vegamálastjórn- in og Fjelag ísl. bifreiðaeigenda hafa komið upp víða nteðfram veg- unum. Á þessum stað er merki aust- an við beygjuna en ekki vestan við hana. Gæti þetta slys orðið til þess að opna augu manna fyrir því, hve merki þessi eru nauðsynleg og yf- irleitt hve margt er hægt að gera til þess að auka öryggið á vegum úti. Bifreiðaslysunum fer sífelt fjölgandi og væri full ástæða til að hefja enn öflugri baráttu en hingað til fyrir því, að afstýra þessum slys- um. Frú Theodóra Thoroddsen verð- ur 70 ára í dag. Frú Guðrún Jónsdóttir Tjarn- arg. 5, verður 70 ára h. þ. m. Matthías gamli sjóari er orðinn guðhræddur og þykist vera orðinn talsvert bibliufróður. Hann hugs- ar sig um: - Sælir eru nauðsköllóttir, þvi að þeir eru hreinir í hárinu, sögðu þeir við mig þessir stúdentar .Hvar slendur það nú aftur í Mattheusi? Friðrik fjósamaður kemur inn i eldhúsið til að fá sjer morgunmal- inn einn sunnudagsmorgun. Hann er mjög óhreinn um hendurnar svo að eldakonan hefir orð á því og segir: — Mjer finst, Fri"gi, að þú gætir að minsta kosti þvegið þjer á sunnu- dögum. — ónei, kelli min. Á sunnudög- um vil jeg eiga fri.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.