Fálkinn - 01.07.1933, Blaðsíða 2
F A I. K 1 N N
------ GAMLA BÍÓ ----------
Dóttir Dr. Fn Manchu.
Stórkostleg mynd gerð eftir
glæpasögu Sax Rohiner, tekin af
Paramount undir stjórn Lloyd
Corrigán.
AÖalhlutverkin leika:
WARNER OLAND,
ANNA MAY WONG og
SESSUE HAYAKAWA
Myndin gerist að mestu í Lond-
on, sumpart í Kínahverfinu þar
og er gerÖ af mikilli leikni.
Sýnd um helgina.
■
ÍEIJILS
PILSNER
BJÓR
MALTÖL
HVÍTÖL.
! SIRIUS
GOSDRYKKIR,
9 tegundir.
SÓDAVATN
SAFT
LÍKÖRAR, 5 teg.
| Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘
| tryggja gæðin.
j H.f. Ölgerðin
j Egiil Skallagrimsson
{ Sími 1C90.
Reykjavík.
PROTOS-ryksugan.
Vorræstingar standa
yfir. Léttið erfiðið með
því að eignast PROTOS
ryksugu.
Mikiö sogmagn.
Sterkbygð.
Kostar nú kr. 180.00.
Fæst hjá
rattækja-
sölum.
Höfum fengið
fjölbreytt úrval af
strigaskóm til sumarsins, t. d. Kvenstrigaskór með hæl-
um, ýmsa liti, verð frá 4.75—5.75. Strigaskó með hrá-
gúmmíbotnum hentugir við alla vinnu. Verð: nr 5—8
2.00, nr. 8«/2—ll'/z 2.25, nr. 12—2 2.75, nr.2'/2—G 3.00
og Karlmanna nr. 6'/2—11'/2 4.00.
LÁRUS G. LtÐVÍGSSON, skóverslun
■
—----- NÝJABÍO --------------
„í nótt eða aldrei“.
(Heute Nacht oder nie).
Stót-merkileg Jiýsk tal- og sönva-
mynd í 10 þáttuiu.
Aðalhlutverkin leika:
MAGDA SCHNEIDER
og hinn heimsfrægi jiólski ten-
orsöngvari:
JAN KIEPURA.
Enginn söngelskur maður eða
kona ætti að láta lijá líða að
sjá þessa óviðjafnanlegu söng-
listarmynd.
Sýnd um helgina.
er bragðgott, drjúgt og gott til
bökunár..
^fi Aflf með Isleiiskmi) skfpiim1
Hljóm- og talmyndir.
DÓTTIR DR. FU MANCIIU
Margir munu hafa lesið söguna
um dr. Fu Manchu eftir hinn kunna
glæpasöguhöfund Sax Rohiner. Saga
þessi segir frá dularfullum, Kínverja
dr. Fu Manchu, sem hatast við hvita
menn vegna þess að kona hans og
sonur biðu bana af völdum Eng-
lendinga i boxarauppreisninni, en
sjerstaklega hefir hann lagt hatur
á ætt Petrie hershöfðingja, sem þó
átti engan þátt í drápinu. Nú hefir
Manchu drepið fjölda fólks í Lond-
on en loks kemur að því, að ailir
halda að hann hafi druknað í
Thames. Þetta er þó eigi svo og eft-
ir tuttugu ár fer hann að gera
vart við sig aftur. Loks missir hann
lífið, en áður hefir hann seitt dótt-
ur sína til þess að halda áfram
drápsstarfinu eftir sinn dag, dáleið-
ir hana til þessa. Á hún að ráða
al' dögum Ronald son Petrie lækn-
is. Segir sagan nú frá því hvernig
þessar hefndir takast og hvernig
jiessi ungi maður verður ástfanginn
af kínversku stúlkunni, sem er selt
til höfuðs honum. Vantar þar síst
átakanlega viðburði, svo að hárin
risa á höfðinu á lesandanum. En
eigi skal sagan sögð til enda hjer.
Þessa sögu hefir Parainountfje-
lagið nú kviknr ndað og verður
myndin sýnd á GAMLA BÍÖ um
helgina. Dr. Fu Manchu er leikinn
Warner Oland, sem er ferlegur á-
sýndum og leikur snildarlega þenu-
an dularfulla grinidarsegg, sem ekk-
ert þekkir nema uinin hefndarinn-
ar. E11 dóttur hans Jeikur tiiu heims-
fræga kínverska leikkona Anna May
Wong og annað aðalhlutverkið leik-
ur Sessue Haykawa, sem er eigi
síður l'rægur. Bramwell Fletcher
leikur hinn síðasta afkomanda
Petrie-ætlarinnar cn föður hans,
læknirinn, leikur Holmes Herbert.
Er myndin öll prýðilega vel leikin
og virðist leikstjóranum, Lloyd Corr-
igan hafa tekist prýðilega áð ná
þeim dularfulla tilæ, sem einkennir
alla söguna.
„/ NÓTT EÐA ALDREl".
Kvikmynd þessi hefir farið meiri
sigurför um Evrópu en nokkur kvik
mynd önnur. Til jiessa hafa 250.000
menn sjeð kvikmynd þessa að eins
í Paladstealret“ í Kaupmannah.,
þar sem hún hefir verið sýnd í
14 vikur samfleytt. Kvikmynd
jiessi verður sýnd í Nýja Bíó um
helgina en skamma lirið aðeins, þvi
að eftirspurnin eftir kvikmyndinni
er óbreytt erlendis og eintaki því,
er Nýja Ríó hefir fengið er búið
að ráðstafa til sýningar iangt frain
á næsta ár.
Engin kvikmynd hefir verið sýnd
við eins gíl'urlega aðsókn í „Palads-
teatret" og þessi. Hún hefir alger-
lega heillað áhorfendur, hvarvetna
þar sem hún hefir verið sýnd, hæði
í Evrópu og Ameríku, og alstaðar
fara heimsblöðin þeim orðum um
hana, að sýning á henni sje við-
burður í lífi hvers áhorfanda.
Aðalhlutrtu-kið er ieikið af mesta
Ekkjufrú Jóhanna Magnúsdóli-
ir frá Kárastöðum verður átt -
ræð 7. jiilí.
tenórsöngvara nútíðarinnar, Jan
Kiepura, en meðleikendur hanS eru
afburðaleikarar, t. d. Magda
Schneider, Fritz Schulz, Julius Falk-
enstein, Otto Wallburg og Ida Wust.
Sagan í kvikmyndinni byggist nð
nokkuru á skemlilegum niisgripuiii,
og hún er ieikiii í fegurstu hjeruð-
um álfunnar, á landinærum Sviss-
lands og Ítalíu. Aldrei hefir verio
gerð nokkur tal- og söngkvikmynd,
sem hefir upp á að hjóða eins ynd-
isiegan og töfrandi söng og þessi
kvíkmynd. Aðalsöngvarinn í kviU-
myndinni, sem er aðeins 31 árs
maður fríður sýnum og töfrandi,
syngur aðalsöng kvikmyndarinnar
„Hittumst við í nótt“ og ennfrem-
Frh. á bls. 15.