Fálkinn - 09.09.1933, Side 2
2
F Á L K I N N
------ GAMLA BÍÓ ----------
Kvennapllið.
Afar skemmtilegur gamanleikur
og talmynd i 8 þáttum.
Aðalhlutverkið leikur:
CHARLIE RUGLES
sá sami er ljek Frænku Charles
i Gamla Bíó í fyrra, og ekki er
þessi mynd síður skemtileg,
þar sem hvert atriðið skemti-
legra rekur hvert annað.
Þetta er mynd sem gaman er
að, og sem allir er vilja skemta
sjer ættu að sjá.
Sýnd bráðlega.
EGILS
PILSNER
BJÓR
MALTÖL
HVÍTÖL.
GOSDRYKKIR,
9 tegundir.
SÓDAVATN
SAFT
LÍKÖRAR, 5 teg.
Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘
tryggja gæðin.
H.f. ðloerðln
figlll Skallagrímsson
Sími 1S90.
Reykjavík.
! SIRIIIS
VERNDARENGILL
HÖRUNDSFEGUR'
ÐARINNAR
„Ekkert veitir stúl-
kum eins mikiö að-
dráttarafl og fagurt
hörund“ segir hin
fagra Mary Nolan.
„Jeg nota altaf Lux
Handsápu, vegna
þess að hún veitir
hörundinu silkimýkt
og heldur viö æsku-
útliti. Hún er dá-
samleg.“
★
Hin yndislega fegurð filmleik-kvenna í Holly-
wood, er að þakka hinni stöðugu notkunn
hvítu Lux Handsápunnar. Þær treysta á hið
mjúka löður hennar og láta pað halda við
yndisþokka sínum og æskufegurð. Látið hörund
yðar njóta sömu gæða, og þjer munuð undrast
----- NÝJABÍO ------------
Með eldingarhraða.
Stórfengleg kvikmynd tekin af
First National undir stjórn Ho-
ward Hawks og hefir ineðal
annars að geyma ægilegustu
sýningar af kappakstri á bif-
reiðum, sem sjest hafa í nokk-
urri kvikmynd.
Aðalhlutverk teika:
JAMES CAGNEY,
JOAN BLONDELL,
ANN DVORAK og
ERIK LINDEN.
Sýnd bráðlega.
morgun, kvöld
og
miðjan dag.
Bragðbest og drýgst.
Best að auglýsa í Fálkanum
Hljóm- og
MEÐ ELDINGARHRAÐA
Það sem mönnum verður minn-
isstæðast við þessa mynd eru hinar
ægilegu sýningar af kappakstri á
einni helstu veðakstursbrautinni i
Bandarikjunum. Sýningar sem
manni virðist ómögulegt að hægt
sje að taka án stórmikillar áhætlu
um líf og limi þeirra, sem starfa
að sýningunni. Enda liafa fjórir
djörfustu kappaksturs bílstjórar
Bandaríkjanna aðstoðað við mynda-
tökuna.
Aðalpersónurnar i myndinni eru
bræður tveir, Joe Greer og Eddie
bróðir hans. Joe er kappaksturs-
bílstjóri, frægur um öll ríkin fyrir
hin ótrúlegu afrek sín. Eddie er
yngri og hefir ótakmarkaða aðdá-
un á bróður sinum og er sjálfur
farinn að fást við kappakstur og
sýnir von bráðar, að hann er eigi
óefnilegri í greininni en Joé var.
Enda gefur Joe honum von bráðar
góða bifreið. Þeir fara báðir lil
Los Angeles til þess að keppa. Þar
býr Lee, vinkona Joes og ljettúð-
ardrós. Joe slítur öllu sambandi
við hana til að missa ekki tiltrú
bróður síns, en hún örvinglast því
að hún elskar Joe af heilum hug.
Til þess að dreifa hug Eddies frá
Joe kemur hún honum í kynni við
aðra stúlku, Önnu, og takast með
þeim heitar ástir og þau giftast,
mjög á móti vilja Joes og verður
nú fullur fjandskapur með þeim
bræðrunum og þeir skilja að skift-
um. Eddie hættir að aka vagni
Joes og þeir verða keppendur.
Nú hefst veðhlaup upp á líf og
dauða milli þeirra bræðranna.
talmyndir.
Kunningi þeirra, Spud að nafni,
sem líka tekur þátt í hlaupinu,
sjer að Joe ætlar að aka vagni
sínum á vagn Eddies og einsetur
sjer því að komast á milli þeirra
til að afstýra þessu, en það fer svo,
að Joe ekur á Spud og hann missir
lífið. En Joe verður svo mikið um
illvirki sitt að hann missir heils-
una. En þó fer svo, að þeir bræð-
urnir verða vinir aftur og Joe nær
sjer aftur.
Myndirnar af veðhlaupinu eru
svo merkilegar, að enginn sem sjer
þær mun gleyma þeim. Og aðalhlut-
verkin eru ágætlega leikin. Joe
Greer er leikin af James Cagney
og er það stærsta hlutverkið, en
Eddie er leikjn af Erik Linden, þeim
sem nýlega ljek aðalhlutverkið í
„Morgunn lífsins". Stúlkurnar tvær
eru leiknar af Ann Dvorak og Joan
Blondell. First National hefir leik-
ið myndina og verður hún sýnd
bráðlega á NÝJA BÍÓ.
KVENN AGULLIÐ
Þessi mynd, sem sýnd verður
bráðlega i Gamla Bíó er tekin af
Paramount undir stjórn Edward
Cline, en aðalhlutverkið leikur
hinn alkunni gamanleikari Charles
Iiuggles, sem fólk minnist m. a. úr
aðalhutverkinu i „Frænka Charl-
eys“, sem Gamla Bíó sýndi í fyrra.
I þessari mynd leikur hann ríkan
og lífsglaðan mann, sem stendur
í þeirri meiningu að allar stúlkur
sjeu ástfangnar í sjer. Hann trúlof-
as Lucy (teikin af Sue Conroy),
sem mislíkar vitanlega er hann
gefur sig um f að öðrum stúlkum,
og sama er að segja um frú Ledy-
ard, tengdamóður hans tilvonandi.
Ein af vinkonum Charles heitir
Sonya og er afgreiðslustúlka í
stórri verslun. Hún á ástarbrjef frá
honum og hótar hohum að fara
með brjefin til unnustunnar, ef
hann kaupi þau ekki af henni
dýrum dómum. En Sonya er verk-
færi í höndum samviskulauss máia-
flutningsmanns. Þannig hefjast vand-
ræði þau, sem nú fara að steðja að
Charles úr öllum áttum og myndin
er saga langrar og erfiðrar viður-
eignar hins unga unnusta við all-
ar gömlu unnusturnar og það sem
þeim fylgir.
Charles er eltur á röndum úr
öllum áttum þangað til hann er
svo aðfram kominn af vandræðun-
Lim, að hann tekur til bragð« að
leita hælis í fangelsi. En jafnvel
það að komast í fangelsið gengur
ekki mótlætislaust. Hann tekur til
bragðs að fara að betla á einni
aðalgötunni í þeirri von að verða
handtekinn af lögreglunni, en lög-
regluþjónninn verður svo hrærður
yfir þessum betlara, að hann gleym-
ir skyldu sinni og gefur honum
dollar. Þá loks að honum tekst
að komast í fangelsið er það fyr-
ir hjegóma, og öll fyrirhöfn hans
hefir orðið árangurslaus, því að
sá sem hefir gerl honum lífið
erfiðast er þá einnig kominn í
sama fangelsið og heldur áfram að
hrella hann.
Efnið er ekki þannig, að ásíæða
sje til að rekja það. En því er svo
vel fyrir komið og vel með það
farið, að áhorfandinn skemtir sjer
vel og er það fyist og fremst Char-
/es Ruggles að þakka, því að Tam-
ara Geva, þá stúlkuna, sem honum
gengur erfiðast að losna við,
íengdamóðurina, sem Margaret Du-
mont leikur, og málafærslumann-
inn Douglas Gilmore.
Flugmaðurinn Wiley Post hjelt
ræðu í „Aeronautical Chamber og
Commerce“ nýlega og sagði þar,
að framvegis mundi hann einkum
leggja kapp á að setja ný met í
hæðarflugi og hraðflugi. Ætlar
hann að breyta flugvjel sinni,
„Winnie Mae“, sem hann hefir
flogið kringum hnöttinn á og setjn
í hana nýjan hreyfil og skrúfur.
Að svo búnu ætlar hann að reyna
að komast upp í 40.000 feta hæð
og fljúga þar með 500 enskra mílna
hraða á klukkustund.
Allar fáanlegar íslenzlc-
ar bækur og erlendar
bækur um margskonar
efni fyrirliggjandi eða
útvegaðar fljótt. Sömu-
leiðis öll erlend blöð og
tímarit.
allskonar, fyrir skrif-
stofur, skóla og heimilí,
sjálfblekungar o. m. H.
Allar pantanir utan af landi af-
greiddar fljótt gegn póstkröfu.
E.P.BRIEM Bókaverzlun, Austur-
str. 1. — Sími 2726. —
REYKJAYÍK.
RITFÖN0