Fálkinn - 09.09.1933, Blaðsíða 12
12
F Á L K I N N
wmmmí
:s;«.
i
111111.
IIKHI
P :
I
Hméíésm
n'iM^íwiiiiii'iriVi'i'É
BELTAI3IFREIÐAR í SAHARA.
Það er ekki ávalt að jafnauðvelt
að komast áfram á bifreiðum í
eyðimörkinni Sahara, einkum j)eg-
ar háir og brattir hryggir myndast
af sandfokinu, ]jar sem rennsljett
var nokkrum klukkustunduin áður.
En saml hefir orðið hin mesta
sanigöngubót að beltabifreiðunum
og litrýma jiær óð.um hinum gömlu
„skipum eyðimerkurinnar" úlföld-
unum. Þar sem mest kveður að
sandrokinu eru dráttarvjelar, sjer-
staklega bygðar, hafðar til að hjálpa
bifreiðunum yfir verstu ófærurnar.
VEL AF SJER VIliIÐ.
Flugkonan Amy Johnson er 25
ára og maðurinn hennar, Jim Molli-
son er 28 ára, en samt hafa þau
fjölda afreka að baki sjer.
Amy flaug 1930 frá Englandi
til Ástralíu, 10.000 enskar mílur
á 19 dögum, '1931 flaug hún frá
Englandi til Tokio, 9000 mílur á
10 dögum 18 tímum og 50 mín-
útum, 1932 flaug hún frá Englandi
til Höfðaborgar í Suður-Afríku 6220
mílur á 4 dögum 6 tímum og 54
mínútum og til balca á 7 dögum
7 tímum og 5 mínútum.
Jim flaug 1931 frá Ástralíu til
Englands, á 8 dögum 22 tímum og
25 mínútum, 1932 frá Englandi til
Höfðaborgar á 4 dögum 17 tímum
og mínútum og sama ár flaug hann
fyrstur manna einn yfir norðan-
vert Atlantshaf frá Dublin til Ney
Brunsvick, 260 milur á 30 tímum
15 mínútum og þaðan til Ne\y
York. í ár flaug hann frá Eng-
landi tíl Suður-Ameríku 4600 mílur
á 3 dögum tíu tímum og! 8 min-
útum.
Loks flugu liau hjónin saman til
Brideport frá Englandi en hlekt-
ist á í lendingunni.
PRINSINN FLJÚGANDI.
Myndin lijer lil v. er af prins-
inum af Wales, tekin seinast þeg-
ar hann kom til Danmerkur. Að
ofan sjest ílugvjel sú, 'srii prinsinn
var í, en hann er hinn mesti flug-
garpur og hefir nokkrar vjelar til
eigin afnota þegar hann þarf að
skreppa bæjarleið. Að neðan t. v.
sjást Friðrik krónprins, Valdi-
mar prins o. fl. á flugvellinum i
Kastrup að bíða eftir koniu prins-
ins. Loks sjást Friðrik krónprins og
prinsnn af Wales heilsast t. h. á
myndinni.
Cosyns verkfræðingur og áður
samverkamaður Picards prófessors
hefir afráðið að hætta við hálofts-
flug i sumar, vegna galla, sem
fundist hafa á flugbelgnum. E.n
næsta sumar segist hann fara upp
í háaloft.
----x-----
Amy Johnson flugkona hefir ver-
ið mjög brengluð i taugunum síð-
an hún nauðlenti forðum í Bridge-
port með Mollison bónda sínum.
Eftir að þau hjónin voru útskrifuð
af sjúkrahúsinu, skipaði læknir frú-
arinnar svo fyrir, að hún yrði að
halda kyrru fyrir á gistihúsi sinu
í New York og ekki koma út. En
Ainy fer sínu fram og hlýddi skip-
un læknisins á þann hátt, að hún
fór á dansleik undir eins og hún
var komin al' sjúkrahúsinu — og
ekk svo vitanlega nýtt „tilfe'lli".
Neðsta myndin á þessari blað-
síðu er af íþróttaskóla Niels Buhk
í Ollerup, sem sagt var frá nýlega
hjer í blaðinu.