Fálkinn


Fálkinn - 09.09.1933, Blaðsíða 7

Fálkinn - 09.09.1933, Blaðsíða 7
F Á L K I N N 7 Krystalskærir gluggar Takið eftir hversu slettur og blettir eyðileggja útiit glugganna. Dreyfið Vim á deyga ríu og nuddið með því rúðurnar, sem samstundis verða krystalskairar. Vim er svo fíngert og mjúkt að Það getur ekki rispað. Notið Vim við alla in- nanhús hreinsun. Allt verður hreint og fágað. HREINSAR ALLT OG FÁGAR LEVER BROTHERS LIMITED, PORT SUNLIGHT, ENGLAND M-V 233-33 um á þeim tíma, sem gerir það líklegt að hún hafi verið inni hjá Riitzow skömmu fyrir eða eftir að ungfrú Hein kom þang- áð. Háttvirti kviðdómur! Sækj- andanum finst þetta einfalt mál. Mjer finst hinsvegar að málið sje mjög flókið og á huldu, vafið myrkri, sem gerir okkur ómögulegt að skilja það til hlítar. Það eina, sem við vit- um með vissu er að stúlkan í rauða kjólnum fór nokkrum mínútum fyrir kl. 5 — og hún hefir að öllum líkindum myrt Riitzow leikhússtjóra“. Þegar verjandinn hafði lok- ið máli sínu var gert hlje til morgunverðar. Áheyþendurnir streymdu út úr salnum. Allir virtust vera ánægðir yfir gangi málsins og allir voru áhugasam- ir um úrslitin. Eftir hljeið átti að yfirheyra vitnin — og þá mundi sannleikurinn ef til vill koma í ljós. Ungi verjandinn fór líka út úr þinghúsinu. Hann gekk nið- ur götuna í þungum hugsunum, en varð að staðnæmast á næsta götuliorni því , að ljósmerkin sýndu að umferðin yrði að stað- næmast um sinn í þá áttina. Ljósmerkin voru rauð og græn. Úti á miðri götunni gaf að líta mann, sem hringsnerist þar fram og aftur inni á milli bifreiða, sporvagna og strætis- vagna. „Skyldi liann sleppa lif- andi frá þessu?“ spurði mála- færslumaðurinn ungi sjálfan sig og horfði óttasleginn á manninn. 1 sama bili komst maðurinn upp á gangstéttina, nær dauða en lífi af bræðslu. Það var svo mikið fát á hönum að hann greip í handlegginn á mála- færslumanninum. „Þjer sluppuð vel“, sagði liann og brosti. En hvernig dettur yður í hug að hætta yð- ur út á götuna þegar ljósmerk- ið bannað umferð?“ Alt í einu varð honum starsýnt á mann- inn. „Eruð þjer ekki Thalmann umsjónarmaður frá Rauzen?“ „Jú, það er jeg, og þess vildi jeg óska að jeg væri kominn þangað aftur heilu og höldnu. Það er kyrrara á götunum þar. Þar getur maður farið yfir þvera götu án þess að stofna lífi sínu í hættu. Það e ómögulegt að átta sig á öllum þessum merkjum og umferðareglum“. Hin ungi verjandi Grehe Hein gleymdi að borða. Ilann stóð þarna og góndi á eftir mann- inum, sem fór inn á pósthús- ið, en kom út eftir skamma stund og stefndi beint á þing- liúsið. Hann tók vel eftir hon- um þegar hann fór yfir götuna. Eftir hl j e|ð tók rjetturinn til starfa aftur og var nú byrj- að á vitnaleiðslunum. Eftir beiðni verjandans var látið bíða um sinn að yfirheyra Tlial- mann. Ekkert nýtt kom fram. Hvorki málstaður kæranda eða ákærða versnaði eða batnaði við það sem fram kom frá vitn- unum. Svo kom röðin að Thalmann. Hann gekk fram rólegur og frjálsmannlegur og lmeigði sig fyrir rjettinum. „Leyfið þjer að jeg leggi nokkrar spurningar fyrir vitn- ið þegar í stað?“ Verjandinn hafði staðið upp og horfði til dómaranna. „Jeg held sem sje að þessar spurningar geti ljett rjettinum störfin“. „Gerið þjer svo vel“. „Herra Thalmann. Viljið þjer gera svo vel að líta á ákærðu stúlkuna lijerna bak við mig. Ungfrú Hein, viljið þjer gera vel að standa upp. Hr. Tbal- mann! Er sú ákærða sú stúlka, sem þjer sáuð inni hjá Rútzow leikhússtjóra, þegar þjer kom- uð upp í skrifstofuna í fvrra skiftið?“ Vitnið . þagði augnablik og sag'ði síðan með fastri rödd: „Já, það er hún. Jeg þori að ábyrgjast að það er sama stúlk- an“. Undrunaralda fór um allan salinn. Jafnvel dómstjórinn undraðist. Verjandi Gretbe Hein horfði liugsandi á manninn. „Og sami rauði kjóllinn, hr. Thalmann ?“ „Já, sami rauði kjóllinn, jeg er handviss um það“. „Eruð þjer ekki jafn viss um það og að þessi blýantur sje rauður?“ Verjandinn hjelt upp blýanti fyrir framan Thal- mann. „Nákvæmlega jaln viss“. Álieyrendu,rnir hlóuj. „Ilr. Thalmánn, þjer eruð litblindur — vitið þjer það ekki?“ „Jeg litblindur. ... ? „Já, annars erum við allir hiiiir það, því að við stöndum í þeirri meiningu, að ákærða sje í grænum kjól“. Thalmann sótroðnaði af gremju. „Jeg sætti mig ekki við að þessi maður skopist að mjer“, sagði hann með þjósti við dóm- stjórann. „Ætti jeg ekki að vita hvað er rautt og livað er grænt?“ „Nei, þjer vitið það ekki“, svaraði verjandinn. „Jeg tók eftir því í matarhljeinu, þegar þjer ætluðuð vfir götuna. Það var tilviljun, góð tilviljun, sem máske var hið eina, sem gat bjargað saklausri manmeskju. Herrar mínir!“ Verjandinn sneri sjer að rjettinum. „Nú er málið ljóst. IJr. Thalmann liefir sjeð rautt fyrir grænt, hann er heiðarlegur maður, en liefir ekki vitað að hann er lit- blindur, en það er hann. En það væri skrítið ef dyravörðurinn væri það lika. Dyravörðurinn, sem sá stúlkuna i rauða kjóln- um flýja út úr húsinu. — Jeg legg nú öruggur málið í hendur yðar!“ „Vill ákærandinn fá orðið?“ spurði dómstjórinn. En hann hristi höfuðið til svars. „Rjettarvottur!“ mælti dóm- sljórinn og benti eftirlismann- inum út við dyrnar. „Þjer slepp- ið ekki Ester Pollack, sem bíð- ur þarna frammi“. Það varð alveg kvrt meðan liann fór út. Svo heyrðist stóll velta um og síðan varð hljótt. Úrskurður kviðdómsins fjell eins fljótt og fljótast gerist í einföldum málum: Sýkn! Myndin til hægí sýnir þann per ingaskáp, sem ta inn er öruggastur heiminum. Hann c smiðaður í ítali og gerður úr blönd 38 mismunanc málmtegunda o þykir trygging fyi ir því, að han verði ekki spreng ur upp, hræddn eða eyddur me sterkum sýrum. Skápur þessi t notaður í aðalbani anum i Genúa.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.