Fálkinn


Fálkinn - 30.09.1933, Side 11

Fálkinn - 30.09.1933, Side 11
F Á L K I N N Yngstu lesendurnir Milli heims og helju, (Úr dagbók gamals veiðimnnns.) SILKl OG KNIPLINGAR HALDA SÍNIIM YNDISÞOKKA Kniplinga og silkinærföt má þvo aftur og aftur, an þess að þau missi minstu ögn af sínum upprunalega yndisþok- ka. Bara meÖ því að kreista þau gætilega í mildu Lux löðri. Það hreinsar vandlega, verndar fína þræði, fagra liti og viðkvæma gerð. Það er óhætt að trúa Lux fyrir sínum fíngerðustu fötum. Það svíkur engann. FÍNNI SMÆRRI SPÆNIR Hafið þjev reynt þetta nýja Lux ? Spæninvir eru fíngerðari en þeir voru áður. Less vegna leysast þeir upp enn fvri. l'ljótvirkari og pakkarnir enn stærri en áður og verðið þó óbreytt Biðjið um hið nýja Lux. M-l_X 399-047 A IC LUX LEVLR HROTHERS LIMITED PORT SUNLIGHT, ENGLAND Það var einn vordag fyrir mörg- um árum. Jeg hafði keypt ýmiskon- ar varning i Pretoriu og ætlaði að flytja hann til Zoutpansberg, sem er í norðausturhluta lýðveldisins Transvaal i Suður-Afríku. Jeg sendi vörurnar á undan mjer, en sjálfur ætlaði jeg mjer að koma daginn eftir með Pjetri frænda min- um, sem var sveitarhöfðingi í Zout- pansberg, í litla vagninum minum, sem tveir hestar gengu fyrir. Tví- hjólakerran, — algengasta farartæk- ið þarna syðra — hafði aðeins piáss fyrir tvo, og af þvi að Pjetur frændi var skrambi digur karl, þá varð ekki mikið pláss fyrir mig í kerr- unni. Um kvöldið háðum við í uxalest- ina, sem hafði farið daginn áður, á óbygðu sljettunum milli Pretoríu og Waderberg. Þessar sljettur eru alkunnar fyrir það, hve mikið er þar af antilópategund einni, sem ljónið sækist mjög eftir og þykir allra mata bestur, að undanteknu zebraketinu. Það er sjaldgæft að fara um þess- ar sljettur án þess að sjá konung eyðimerkurinnar eða að minsta kosti heyra þrumurödd hans. Klukkan eitt um nóttina hjelt uxalestin okkar áfram. En Pjetur frændi og jeg ákváðum að bíða um stund til þess að láta hestana okkar bíta og hvíla sig. En uxarnir voru varla komnir á hreyfingu fyr en þessi dýr, sem annars eru svo hægfara, fóru að dika áfram og samtímis fóru hest- arnir okkar að sperra eyrun og sýna á sjer hræðslumerki. Það var ekki um að villast að ljón hlaut að vera einhversstaðar nærri. — Spentu hestana fyrir, Kornelí- us! kallaði frændi minn til mín. — Ljónin eiga erfiðara með að ráðast á okkur ef við erum á hreyfingu! Jeg beitli hestunum fyrir kerruna í mesta flýti og svo ókum við af stað á fleygiferð yfir sljetturnar. Það var eins og eitthvert ósýnilegt afl knýði hestana áfram. Ýið vorum farnir að halda, að við værum komnir úr allri hættu — en þá stað- næmist kerran alt í einu eins og hún væri negld niður, fast við okkur heyrðist ægilegt öskur og einhver ófreskja byltisí fram úr myrkrinu, en annar hesturinn hníg- ur niður. — Ferlegt ljón hafði sleg- ið hrömmunum i hrygginn á lion- um. Alt þetta hafði gerst i skjótari svipan, en jeg er að segja frá þvi. Við gerðum okkur tæplega grein fyrir þvi hvað skeð hafði og i fyrstu sátum þarna agndofa af hræðslu fáein fet frá stóra ljón- inu, sem var banhungrað og hám- aði í sig hráð sína. En bráðlega rankaði jeg við mjer aftur. Þegar fyrsta hræðslukastið var afstaðið greip jeg gilda sex feta langa uxasvipu og fór að lemja ljónið með henni, eins og jeg gat best ofan úr kerrunni. En þetta var árangurslaust. Ljón- ið ljet ekki reka sig frá bráð sinni. Það var því líkast að það læki alls elcki eftir höggunum, sem dundu á þvi, og það hjelt áfram að jeta veslings hestinn, en hinn hesturinn, sem hafði árangurslaust reynt að slíta sig frá vagninum, stóð þarna hriðskjálfandi af hræðslu. Þetta gerðist á fáeinum augna- blikum. Nú fyrst sá jeg til fullnustu hve hættuleg aðstaða okkar var og þreif byssuna og miðaði henni á ljón- ið. En byssan klikkaði. Jeg setti nýtt skothylki í, en það klikkaði líka, og eins fór um það þriðja. Og nú voru ekki fleiri eftir. Jeg reyndi aftur að spenna gikkinn, miðaði og lileypt af. Blossinn varpaði föl- um bjarma á hina liræðilegu við- ureign, en að öðru leyti hafði skot- ið þau áhrif, að ljónið rak upp öslcur og stökk beint á okkur. Við sáum móta fyrir skrokknum á því í myrkrinu og sámn glóa í grænum augum. Við hnipruðum okkur ósjálfrátt sainan i kerrunni. Pjetur frændi hjelt hyssunni yfir höfði sjer til að verja sig. Ljónið stökk beint á hann, reif af honum byssuna og reif djúp svöðusár i aðra hendina og ennið á honum. Til allrar hamingju hafði ljónið hoppað of hátt og nú lá það bak við kerruna. Það hafði sem sje aðeins snert kerruna með afturfót- unum og misli jafnvægið við þetta og datt. Það kom þó fljótlega fótunum fyrir sig og hljóp aftur að dauða hestinum, en liægri fóturinn á mjer hjekk fram af kerrunni, niður að honuin. Þegar ljónið stökk hafði frændi minn hrint mjer til hliðar, svo að annar fóturinn fór út úr kerrunni. Byssan, gagnslausa verj- an, okkar var horfin. Pjetur frændi lá þarna og það blæddi mikið úr honum og jeg lijekk þarna í mjög óþægilegum stellingum og nú fór ljónið að sleikja reiðstígvjelið mitt, en sal á dauða hestnum. Vertu grafkyr og hreyfðu þig ekki! hvislaði frændi, meðan Ijón- ið var að sleikja stígvjelið. Jeg sá sjálfur, að ef jeg hreyfði fótiim þá væri það sama sem að gefa ljóninu merki um að hita hann af. Þessvegna hreyfði jeg mig ekki, enda þótt fóturinn væri i injög óþægilegum stellingum og mig verkjaði i hann. Svona sátum við alla nóttina án þess að hreyfa okkur, og nóttin er nokkuð löng í maí á þessum Framh. á bls. 12. „Vertu hœgurl“

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.