Fálkinn - 18.11.1933, Page 3
F Á L K I N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Bitstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.'
Aðalskrifstofa:
BanKastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
)pin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa i Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaði'ð kemur út hvern laugardag.
vskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
cr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Ular áskriftanir greiðist fyrirfram.
Iugit'isingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraðdaraþankar.
Hvernig ertu þegar þú hefir ekk-
ert að gera? Mig langar til að
vita það. Ef till vill leikur þú ágæt-
lega á slaghörpu, eða þú ert skemti-
legur í viðræðu eða heldur prýði-
lega fyrirlestra um daginn og veg-
inn, eða þú ert snjall kaupsýslu-
maður; lika getur verið að þú sért
afbrags mannkostamaður, þegar þú
leggur að þjer. — En mig langar
lil að kynnast því hvernig þú ert
þegar þú hefir alls ekkert að gera,
þegar þú gleymir sjálfum þjer al-
gerlega, reynir ekki að gera neitt
og lætur þjer standa á sama um
alt en ferð úr jakkanum, setur á
þig inniskóna og leggur þig endi-
langan upp á legubekkinn og hefir
um ekkert að liugsa fyr en á morg-
un — já, þá vildi jeg lcynnast þjer
og fá að lesa instu hugrenningar
þínar. Því að það er aðeins þegar
heili þinn og líkaminn hvcrfur í
faðm hvíldarinnar, að sálin fær að
draga undann. — Það er í hinni
niókandi hvild, sem persónuleikinn
kennir fram.
Alt sem maður framkvæmir með
áreynslu, er að jafnaði fram komið
með málamiðlun. Nokkur hlutinn er
að visa frá sjálfum þjer, en meiri
hlutinn er fram kominn vegna þess,
að þú ert háður því efnislega, sem->
þú verður að liafa skifti við og
háður leikreglum lífsins.
Aðrir menn, heppni og slembi-
lukka og jafnvel veðrið hefir áhrif
á þá vinnu, sem þú hefir tekið þjer
fy-rir hendur.
Velgengni |)ín er ekki nema að
litlu leyti sjállfum þér að þakka.
Og sennilegt er, að þú hefðir alls
ekki getað afstýrt mörgum af óhöpp-
um þínum, hvernig ,sem þú liefðir
l'arið að.
En hinsvegar ertu algerlega ábyrg-
ui' fyrir sjálfum þjer og fyrir per-
sónugildi þínu, eins og það er, hvorl
sem þú getur stært þig af velgengni
eða látið vorkenna þjer ólán þilt.
Það sem þú segir eða gerir kemur
ekkert þessu máli við, nema þú ger-
ii það ósjálfrátt og hugsunarlausl.
Lofðu mjer að hlusta á ])ig rausa,
blistra eða raula, eða láttu mig sjá
þig leika þjer við börnin þín, láttu
mig sjá þig þar sem þú ert öjlu ó-
háður og alfrjáls og þá langar mig
til að kynnast þjer. Þá fyrst get jeg
sagt þjer til um, hvort mjer getur
þótt vænt um ])ig eða ekki.
Þegar dagur dómsins kemur á
inaður að svara til saka fyrir það,
sem maður gerði ótilknúður af þvi
umhverfi, sem maður bjó við.
Frank Crane.
Kristinn Magnússon, kgupm.
Vesturg. verður 60 ára 2A. þ. m.
Jón Sturlaugsson hgfnsögum.
á Stokkseyri átti 65 ára afmæli
þ. 13. þ. m.
Kristján Sigurðsson Bergstaða
siræti '28, varð 70 ára 8. nóv.
Einar Halldórsson, hreppstjóri
Kárastöðúm, verður 50 ára í lag.
Björg Árnadóttir og Gunnlaugur Gunnlaugsson fráSyðri-Völlum
nú á Grettisgötu 16, áltu gultbrúðkaup þ. 13. þ. m.
Sigríður Jónsdóttir og Björgólf ur Björgólfsson á Fitjum á Mið
nesi áltu gullbrúðkaup þann 16. þ. m.
Frú Dýrfinna Helgadóttir frá
Gilsstöðum i Hrútafirði, nú lil
heimilis á Seljalandi við Reykja
vík varð 80 ára 15. þ. m.
Bandaríkjamenn þykjast nú orðn-
ir svo vissir um afnám bannsins,
að þeir eru farnir að panta whisky
í stórum stíl hjá enskum brugghús-
um. Eitt verslunarfjelag hefir t. d.
pantað fyrir 5 miljón krónur hjá
skozku brúgghúsi. Whiskyið verður
geymt austan hafs þangað til bann-
lögin verða afnumin, en húist er
við að það verði í byrjun næsta
mánaðar.
Douglas Fairbanlcs eldri og yngn
hafa ráðið sig í þjónustu ensks
kvikmyndafjelags sem heitir „Lond-
on Film Production“.
HELENE JÓNSSON OG
EIGILD CARLSEN
eru tveir ungir dansendur, sem
hvað eftir annað hafa skemt með
dansi i haust og hafa nú stofnað
dansskóla í Reykjavik. Er ungfrúin
dóttir Jóhanns Jónssonar skip-
herra en Carlsen er danskur. Þau
eru bæði kunnáttumiklir dansend-
ur og hafa gert listina að lifsstarfi
sínu og er þeim því vel treystandi
iil að reka skóla sinn svo vel. að
ekki geri aðrir betur.