Fálkinn


Fálkinn - 18.11.1933, Side 12

Fálkinn - 18.11.1933, Side 12
12 F Á L K I N N Neyðarár Hitlers. Slundum spyrja menn, hver á- stæðan muni vera lil hins logandi Gyðingahaturs Hitlers. 1 il þess að komast að l>essu Lafa menn í Aust- urríki reynt að grafast fyrir hve- nær fyrst tók að brydda á þessu hatri, og blaðið „Sonn- und Mon- tagszeitung" hefir liaft tal af ýms- um, sem voru honum kunnugir á yngri árum hans til þess að kom- ast að þessu. Meðal þeirra er Reinhold Han- iscli, sem hefir sagl biaðinu frá mörgu skrítnu um eymdarár sín og Hitlers í Wien, þegar þeir börð- ust í bökkum. Hanish kom sem flakkandi iðnaðarmaður til Wien 1909, með nokkrar utanáskriftir í vasanum. Meðal þeirra var ein á „Mannerheim“, einskonar næturhæli fyrir karlmenn. Hann fjekk rúm við hliðina á ir.anni, sem sýnilega átti mjög bágt. Hann hafði afbent föt sín til „aflúsunar“ og var ekki í öðru en gauðslitnum buxum. Þeir fóru að tala sainan og fór vel á með þeim. Maðurinn hjet Adolf Hitler. Hanisch var frá þýska hiuta Böhmen, og Hitler sagðist hafa skömm á þýsku mállýskunni, sem hann talaði. Hann virtist glor- hungraður og þeir átu saraan úr mal Hanis'ch. En til endurgjaids gaf Hitler Hanisch ávísun á nunnu- ldaustur þar skamt frá, þar sem hægt væri að fá súpudisk ókeypis. Og þeir hjálpuðu hvor öðrum eft- ir megni. „Hvað kant þú helst?“ spurði Hanisch eitt sinn kunningja sinn. „Jeg er málari“, svaraði Iíitler. Og þegar hinn gaf i skyn, að það inundi vera kleift að fá málninga- vinnu á þeim tíma árs svaraði Hitl- er fyrirlitlega, að hann „makaði ekki húsveggi“ heldur væri hann listamaður. Síðar frjetti Hanisch, að hann hefði sótt um inntöku á Listaháskólann en verið neitað. Þeir gerðu alt, sem fyrir kom, börðu gólfmottur, báru koffort á járnbrautarstöðina og múrstein að byggingamönnum og svo leið fram að vetri. Hitler var kalt —• hann átti ekki fraklca — en fyrir við- kynningu við sporvagnsstjóra fengu þeir vinnu við snjómokstur. Þeir auruðu svo miklu saman að þeir gátu leigt sjer betra herbergi. Hitler fór nú að mála á brjefspjöld en Hanisch seldi þau innrömmunar- mönnum fyrir 5—6 krónur stykkið. Hanisch fjell ekki vel við kunn- ingja sinn; hann tók eftir að und- ir eins og peningar koma í sjóðinn fór Hitler á kaffihús og aðra hlýja staði og ræddi um stjórnmál við alla, þangað til lenti í rifrildi. Þeg- ar verslunin hafði gengið vel kom Hitler heim hlaðinn dagblöðum og fór að halda stjórnmálaræður. 'Einu sinni kom hann á bíó og sá „Jarðgöngin“ eftir Kellermann. Hann varð svo hrifinn af mynd- inni að hann talaði ekki um ann- að lieilan dag. Stjórnmálastefna hans gekk öll út á að fordæma jafnaðarmenn. Einu sinni þegar verkamaður kom heim til hans með rauðan fána, varð hann svo reiður, að eflaust hefði lent i áflogum ef aðrir hefði ekki gengið á milli. Hann reyndi aftur og aftur að stofna nýjan stjórnmálaflokk, en engum var ljóst hvað hann vildi. Han gat aðeins rifið niður, en kom ekki með neinar nýjar tillögur. í þá daga var hann enginn Gyð- ingahatari. í húsinu átti Gyðingur einn, smákaupmaður heima og hann var vanur að borga smáskuld- ir fyrir aðra trúbræður sína. Hitler var vinur hans. Hann var andstæð- ur Gyðingaofsóknunum í Rússlandi. Hann verslaði nær eingöngu við Gyðinga, flestir þeirra sem keyptu myndir af honum voru Gyðingar. Ilann talaði oft um trúmál. Hann var kaþólskur en á móti kaþólsk- unni. Honum fanst mótmælenda- trúin hæfa Þjóðverjum betur, en taldi liana þó ekki hafa lyft þjóð- inni á hærra stig. Þjóðverjar hefðu komist lengra ef þeir hefðu haldið trútt við Ásatrúna. Honum var illa við Habsborgarættina, vegna þess að hún hefði oft verið andstæð Þjóðverjum. Alla peninga, sem hann hafði af- gangs notaði hann til blaðakaupa og í rjómakökur. Vináttu þeirra Hanisch lauk með skelfingu. Reinhold seldi mynd frá Hitler fyrir 12 krónur en Hitler grunaði að hann hefði selt hana dýrar og stungið afganginum i vasa sinn. Og þeir skildu sem ó- vinir. Eftir það heyrði Hanisch nafn Hitlers nefnt öðru hverju í sambandi við nýjan stjórnmálaflokk, en honum kom ekki til hugar að þetta væri gamli kunninginn fyr en hann sá mynd af honum í blaði, laust eftir 1920. „Nú hefi jeg sannfærst um, að stjórnmál eru betri atvinna en húsamálning“, andvarpaði Haniscli að lokum. Hann á enn heima í Wien og lifir við sult og seyru. Enskur brugghúseiaandi, sir William Dupree hefir stofnað sjóð með 10.000 sterlingspundum, sem verja á til þess að halda opinber skákmót fyrir ungt fólk og efla á- huga þess fyrir skák. Sir William var bláfátækur í uppvextinum en er nú miljónamæririgur og segist eiga allan viðsrang sinn í lífinu skákinni að þakka. í Englandi er það orðið svo ai- gengt að leigja sjer flugferðir í stutt- ar ferðir, að þau eru orðin 66 fjelögin, sem gera sjer að atvinnu að leigja úl flugvjelar. ——x------ Það hefir verið hljótt undanfar- in ár um A1 Smith, þann sem var í kjöri gegn Hoover fyrir fimm árum og fjell þá, mest vegna þess að hann var kaþólskur og and- banningur. Andróðursmenn hans höfðu þetta að slagorði þá: „Hleyp- i0 ekki páfanum og whiskíinu inn i Hvíta húsið!“ Nú er sagt, að hann geti orðið borgarstjóri í New York livenær sem honum þóknast. ----x---- Ungverska stjórnin hefir gefið út tilskipun um, að bannað sje að nota Þórsmerkið i Ungverjalandi, með þeim forsendum að merkið sje opinbert einkenni framandi ríkis -----------------x---- Fransk-ítölsk netnd situr á rök- stólum til að rannsaka möguleik- a f>'rir því að grafa jarðgöng fyr- ir bílveg gegnum Montblanc. Það eru Frakkar, sem leggja fram fjeð til þessarar vegagerðar ef úr verð- ur. ----x---- Jimmy Walker, fyrverandi borg- arstjóri í New York, sem varð að Iáta af embætti fyrir óheiðarlega meðferð á fje borgarinnar, hefir verið í Evrópu undanfarin ár og giftist í vor kvikmyndaleikkonunni Betty Compson. Nú ætlar hann að fera til Ameríku aftur, sem foringi frægs „baseballfjelags“ þar í landi. —■—x—— Nazistaflokurinn þýski liefir lagt alvarlegt bann við því, að ein- lcennisbúningur flokksins, brúná skyrtan, sje notaður erlendis. Og frá miðjum september var sett bann við því, að seldir væri smáhlutir með mynd af Hitlers- eða Þórs- merkinu á. Þeir sem auðga sjálfa sig með þvi að selja slíka muni, verða látnir sæta ábyrgð, stendur í tilkynningunni. ----x---- Þó að kvikmyndir sjeu tiltölulega ung iistgrein þá hafa nokkrir kvik- myndaleikendur hafa hlotið nafn- ið „ódauðiegir“ listamenn. Þessir sex hafa hlotið nafnið ódauðlegir, ins „Photoplay“: Charles Chaplin, D. W. Griffith, Maris Dreesler, Greta Garbo, Mary Pickford og Valentino. Sumum inun þykja að ýms nöfn vanti á listann. —•—x------ Hollywood er nafnfrægt fyrir hjónaskilnaði. Þvi var ekki furða þó að það væri gert að umtalsefni nýlega, að Charles nokkur Crawin og konan hans hjeldu hátíðlegan 37. giftingardaginn sinn og eru ungleg eins og þau liafi ekki verið gift nema í tíu ár. ----x----- Frakkar hafa smíðað nýja tegund af brynreiðum, stærri en nokkrar brynreiðar sem þekst hafa hingað til. Eru þær í rauninni eins og hreyfanleg vígi.. Hver brmireið hef- ir einn höfuðsmann og 25 manna áhöfn, eina 75 mm. fallbyssu, tvær 37 mm., fjórar vjelbyssur og tvær háskeytlur. Brynreiðar þessar geta komist um 70 km. á klukkustund á greiðfæru jafnlendi og farið yfir 8 metra breiða skotgröf. •—•—x----- Enska kvikmyndakonan Tallulali Bankliead hefir legið fárveik und- anfarið svo að blöðin liafa skrifað um hana greinar, sem kalla má eftirmæli, sbr. þessa grein Daily Express: „Það var ógæfa hennar rð hún vann sjer frægðina of fljótt. Hún hefir ávalt verið góður félagi. Hún gat setið við hljóðfærið og leikið „Tristan og Isolde“ utan að. Hin hlýja rödd hennar var ein- kennilega aðlaðandi og maður gleymir ekki upphrópununum sem henni voru tamastar, „My darling“ og „Oh my god!“ Hún lifði of sterkt Hún var oft á fótum alla nóttina heima hjá sjer í Farm Street og reykti hverja sígarettuna eftir aðra og skemti vinum og kunningjum. Hún var góður vinur. Alt of góð- ur vinur margra karlmanna og’ kvenna“. Nú er Tallulah að hjarna við. Það verður gaman að sjá liana lesa eftirmælin. —•—x------ Yngsti borgarstjórinn í Frakk- landi heitir Alphonse Tanghy og var nýlega skipaður í embætti í bænum Kergrist í Bretagne. Hann er aðeins 25 ára. ----x----- Ufa hefir nýlaga tekið stóra Schubertsmynd með nafninu „Leise flehen meine Leider“ og er farið að sýna hana i Þýskalandi. Aðallilut- verkin leika Martha Eggertli, Hans Jaroy og Louise Ulrich.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.