Fálkinn


Fálkinn - 16.06.1934, Page 8

Fálkinn - 16.06.1934, Page 8
8 F A L K I N N Myndin sýnir hve gróðurmikið var orðið í skógum Danmerkur um hvítasunnuna síðastliðnu og þótti vorið þó koma með seinna móti í ár. Stórbruni varð í Chicago 19. f. m. — mesti bruninn síðan brunann mikla 1871, er 1800 hús brunnu tit kaldra kola. Bruninn nýi stafaði frá eldspítu, sem einhver hafði fleygt í einni hlöðunni við slátur- gripákvíarnar í borginni og breidd- ist þaðan fyrst um allar kvíarnar og síðan inn í sjálfa borgina. 2000 manns urðu húsnæðislaus, 1500 meiddust svo mikið, að það varð að flytja þau á spítala, þrír bruna- liðsmenn biðu bana, 10 til 15 þús- und sláturgripir drápust í eldinum og brunatjónið er metið á um 250 miljón krónur alls. Auk allra gripa- kvianna, sem sjást hjer á mynd- inni, brunnu m. a. tveir bankar, eitt gistihús, ein ölgerð, járnbraut- arstöð og simamiðstöð. Það jók brunann, að talsverður kaldi kom rjett eftir að kviknað hafði í hlöð- unni og breiddist eldurinn þá svo fljótt út, að ekkert varð við ráðið í fyrstu og ekkert þýddi að dæla vatni á eldinn. Varð hann ekki stöðvaður fyr en slökkviliðið tók það ráð, að sprengja á burt hús tí stóru svæði, svo að eldurinn gæti ekki náð tökum á þeim. Eftir að 2000 manna slökkvilið hafði barist við eldinn í fimm klukkutíma, varð það loksins yfirsterkara. Þetta var á laugardaginn fyrir hvíta- sunnu. — Ógeðslegt og ömurlegt hafði verið cið hlusta á dauðastun- ur og öskur nautgripanna sem brunnu þarna lifandi, og eftir á var Ijóit að líta yfir rústirnar, því að í gripakvíunum, „Stockyard“ sem kallað er, ægði öllu saman og bar þó mest á hálfbrunnum dýra- skrokkum. Áður en tími vanst til að hreisna rústirnar hljóp ýlda í þessar leifar, enda var heitt í veðri og lagði fýluna af þ'essu um alla borgina. Þykir þetta einn ferleg- asti bruninn sem orðið hefir lengi í Ameríku, þó að manntjónið yrði ekki meira en þessir þrír bruna- liðsmenn. Myndin er af herdeild í liði Ibn Saud Arabíukonungs, sem þeysir jram til atlögu á úlföldum. Arab- ar nota bæði hesta og úlfalda í hernaði eins og í ferðalögum og þykja úlfaldarnir þolnari og geta borið meira. Nú hefir friður verið saminn og alt rólegt í Arabíu um sinn. En það verður varla lengi.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.