Fálkinn


Fálkinn - 16.06.1934, Page 13

Fálkinn - 16.06.1934, Page 13
F Á L K I N N 13 Um víða veröld. HJÁTRÚARFULLI KONUNGURINN. Fuad Egyptalandskonungur ætlar i ferðalag til flestra lahda Evrópu í sumar, en ekki er þess getið, hvorl hann muni koma til íslands. Fyrsl og fremst ætlar hann að heimsæk.ja Bretann, en það hefir hann ekki gerl síðan 1929. Fuad líður best þegar hann er á ferðalögum erlendis, því að liann á ekki sjö dagana sæla í Egyptalandi. Konungstign hans stendur völtum fótum og hann veit það sjálfur, jafn vel og hann veit hitt, að hann á marga hatursmenn. Hann iifir í sífeldri hræðslu um líf sitt og býst allstaðar við morðingjum og sam- særum. Þessvegna er það þaulreynt, að þegar hann á að vera viðstadd- ur á opinberum mannfundum þá kemur hann aldrei stundvíslega, heldur að jafnaði löngu fyrir tím- ann en stundum of seint. Sagt er að skemtiskip hans liggi jafnan ferðbú- ið í Alexandríu og geti siglt af stað fyrirvaralaust, ef hann þurfi á að halda, til þess að flýja á. Fuad konungur er iþróttamaður og hefir m. a. mjög gaman af dýra- veiðum. En þó hefir hann eigi eins mikinn áhuga fyrir neinni iþrótt og knattspyrnunni. Þrátt fyrir líi- hræðsluna sækir hann jafnan knatt- spyrnumót af ka])pi, enda er lcnatt- spyrnuáhuginn svo mikill orðinn í landinu, að þar er enginn drengja- skóli til, sein ekki hefir fótlcnetti, þó nauðsynleg kensluáhöld, svo sem landkort og því um líkt vanti. Son- ur konungs, þrettán ára gamall, er orðinn kunnur knattspyrnugarpur. Fuad konungur er þó orðinn al- kunnari fyrir annað en knattspyrnu- áhugann, sem sje fyrir það hve lijá- trúarfullur hann er. Sem dæmi um hana má nefna, að hann liefir óbil- andi trú á því, að nöfn sem byrja á f hafi meiri gæfu að færa en öll önnur nöfn, og þessvegna hefir hann látið skíra öll sín börn nöfn- um, sem hyrja á f. Krakkarnir hans heita: Faruk, Fauzia, Faiza, Faika og Fayeda. ÚTBRUNNAR-„STJÖRNUR“. Ekkert fólk er eins flótt að ná heimsfrægð og kvikmyndaleikarar — og engir gleymast eins fljótt og þeir. Hver man nú framar nafnið Glara Kimball Young? Árið 1925 var hún sannkölluð Marléne Dietrich hinna þöglu mynda. Nýlega var hún bor- in úl úr smáíbúðinni, sem hún hafði í Los Angeles, af því að hún hafði ekki getað borgað húsaleigu í allasi vetur. Ella Hall, hetjan úr fjölda spenn- andi „sensationsmynda“ hefir betri sögu að segja af tilverunni, því að hún er nú deildarstjóri fyrir inn- kaupadeild í stórverslun einiii i Ameríku. Katherine MacDonald, leikkonan sem Wilson forseta geðjaðist best aíi varð nýlega að loka snyrtistofu sinni vegna þverrandi aðsóknar. . . . Ray- mond Griffilh, litli skrítni gaman- leikarinn með pípuhattinn, sem margir muna, gat ekki leikið í tal- myndum af ]iví að hann var svo skrækróma, en vinnur nú við hand- ritagerð hjá „Twentieth Centuries Pictures“..... Charles Ray, hinn vinsæli ástarleikari er atvinnulaus .... Monroe Salisbury, sem um eitt skeið þótti einn glæsilegasti leikari þeirra tíma, er órmaður á gistihúsi. .... Marguerite Clark er gift milj- ónamæringi i Suður-Ameríku .... Ilelen x'erguson er auglýsingasemj- andi fyrir ýmsar frægar kvikmynda- koriur og hefir góðar tekjur .... Eileen Percy með fallegu augun skrifar um kvikmyndir í hlað eitt í Los Angeles. Sumir leikararnir voru fyrirliyggju samir og söfnuðu fje í góðu árun- um, aðrir fengu ríka gifting, en flestir lifa við sult og bágindi, i end- urminningunni um „þegar jeg var kvikmyndastjarna". Maðurinn á lestrarstofunni legg- ur frá sjer blaðið og segir: — Það er gott, að bensínið skuli vera fall- ið í verði. Hvað snértir það þig, ekki átt þú bíl, segir kunninginn. Nei, en jeg á vindlakveikjara, svarar hinn. * Allt með íslenskuin skipuni! * Besta öryggið gegn LYKKJUFÖLLUM er að þvo sokkana úr LUX Það er nuddið í þvottinum, sem eyðileggur sokkana. Með Lux þarf ekki annað en þrýsta sápulöðrinu mjúklega gegnum þá. Þá er engin hætta á skemdum. 5 mín. Lux- þvottur. Uppleysið Lux í heitu vatni lirærið uns freyðir. Kælið svo með köldu vatni, þang- að til orðið er moð- volgt. Skol- ið sokkana úr hreinu volgu, valni. M-LX 4IS - 97 IC Lux ver sokk- ana lykkjuföllum og heldur þeim sem nýjum miklu lengur en ella. LEVER BROTHERS LIMITED, PORT SUNUCHT. ENCLAND „Svona haga heiðvirðir menn sjer ekki“, sagði Gomez. „En það mun vera samboðið virðingu heiðursmanna að hvetja þjón sinn til að reka hníf gegnum vesælan aumingja, hálf- dauðan af sulti? Ónei, þjer skuluð ekki koma með svona rök til mín. Það er aðeins vegna þess að saga yðar vekur forvitni mína„ að þjer eruð ekki komnir i fangelsi?“ „Þjer hafið boðist til að hjálpa okkur, og jeg er hrædur um, að við verðum að yðar áliti aldrei annað annað en vanþakklátir fantar“, rnælti greifinn, „en mjer finst rjett- ast að við hverfuin lijeðan jafn skyndilega og við komum“. „Finst yður það?“ sagði Trent. „Agætt. Og vitið þið livað jeg ætla þá að gera? Jeg ælla að rannsaka hvað á daga yðar og vinar yðar hefir drifið alt fram að þessari slundu“. Trent tók eftir að Gomez brosli. En rann- sóknir minar eiga eklci að snúast um fortið senor Gomez. Nei fjarri fari því. Jeg ætla að leiða í ljós alt það, sem snertir senor Vicente Mariano Arguello, sem ekki er alveg óþekt- ur maður í Bogola“. Trent varð talsverð fullnæging að furðusvipnum, sem kom fram á andliti Suður-Ameríkumannsins. „Svo þér hafið þá altaf þekt mig?“ spurði Gomez. „Hver veit“, svaraði Trent letilega. „Quien sabe?“ „Herra Trent“, mælti greifinn óðamála, „má jeg tala sem snöggvast við vin minn undir fjögur augu?“ Trent benti á hurð. „Þarna er billiard-stof- an“, sagði hann. „Þjer getið nolað hana ef yður þóknast“. „Þeir ætla vist ekki að reyna að strjúka?“ spurði Weld, er þeir voru komnir út úr stof- unni. „Kcmur ekki til mála. Jeg hefi gotl tak á þeim. Nú eru þeir að brjóta lieilan um hvort jeg viti ekki meira um þá“. Hvernig gatstu vitað hverjir þeir voru?“ spurði Vera Trent. „Jeg sá Brockenhurst í Köln. Hann var bak- vörður í enska pólóflokknum, sem okkar flokkur ljek á móti. Hvað Arguello snertir þá ]iá liefi jeg sjeð nafn hans í blöðunum i sam- bandi við lausafregnir um sölu lil Sliellfje- lagsins á olíulindum í Columbia. Auk þess sá jag fangamarkið hans í hattinum hans, sem er keyptur í Bogota. Hann er forríkur mað- ur‘“ „En heyrðu, Tony“, sagði frú Trent í álös- unarróm, „það var ljótl af þjer að segja, að þú værir leiður á mjer“. „Nei, ekki á þjer, lieldur á þessari tilbreyt- ingarlausu æfi. Þú ert orðin leið á henni líka. Þú verður hægri hönd mín í þessu máli“. „Heldurðu að þeir muni þiggja nokkra hjálp af þjer?“ spurði Weld. „Þeir neyðast til þess. Hversvegna liefði jeg annars verið að gorla af afrekum mínum, heldurðu? Heldurðu að mjer þyki nokkuð gaman að því að vera að lireykja mjer og koma fram opinberlega?“ „Það gæti farið svo, að þjer verði von- biigði að því, sem þeir segja þjer“, sagði konan lians. „Trent hristi liöfuðið. „Nei, þetta eru engir gönuhlauparar. Þeir liljóta að hafa einhverja alveg óvenjulega sögu að segja. Nú koma þeir“. Brockenhurst lávarður og Arguello komu inn í stofuna aftur. „Vicente“, sagði Brockenhurst lávarður við

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.