Fálkinn - 22.09.1934, Side 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
A ðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Ópin virka daga kl. 10—12 og 1—6.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiSist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Orka sannra hugsjóna.
l>að sem maður hugsar hefir
mikil áhrif. Að vísu heyrast menn
segja, að það sje hið framkvæmda
en eigi það sem aðeins er hugsað,
sem hafi þýðingu, og að hugsanir
manna komi engum við. En svona
er það nú ekki.
Hugsjónir mannsins eru afar mik-
ilsvarðandi. Það sem gerist í hug
mannsins hefir áhrif á hvað hend-
ur hans framkvæma. Það sem jeg
held, breytir því, sem jeg sje og
heyri.
Hver tilfinning og hver skoðun,
sem myndast í heilanum, streymir
fram og blandast eldri skoðunum
og tilfinningum og myndar eins-
konar kemiskt samband við það,
sem fyrir er. Og það er þessi sam-
setningur, þessi samruni nýrra at-
riða og eldri sannfæringa, sem að
lokum verður hluti af manninurn
sjálfum og býr til nýjar ályktanir.
Skylda mannsins er því ekki fyrsl
og fremst sú, að iæra staðreyndir
og sjá sannleikann. Fyrsta skyldan
er sú, að læra að veita þessu við-
töku. Ef heili manns er fullur af
fölskum hugsjónum, hugurinn myrk-
ur af hjátrú eða vanskapaður af
misskilningi eða skurnaður og ó-
móttækilegur vegna þess að trú eða
sannfæring mannsins er einskonar
skyldurækni, þá er maður allsendis
óhæfur til að taka á móti sann-
leikanum og nota hann.
Það verður að hreinsa til inn-
vortis. Og hvernig?
Fyrst og fremst með skynsertii
kærleikans.
Skynsemin á sína siðfræði alveg
eins og hjartað.
Maður á ekki að ijúga að sjálfum
sjer, gabba sjálfan sig eða láta dá-
leiðast af sjálfum sjer.
Hafi maður einhverntíma viðrn-
kent einhvern sannleika, áíi þess
að vita hvort það var sannleikur
eða ekki, er maður á leið and-
legu hruni.
Einhver hefir komist svo að orði
um þetta: Trúin vanhelgast þégar
maður trúir á ómeðvitaðar og ó-
rannsakaðar staðhæfingar, aðeins
til þess að fullnægja „trú“ sinni.
í öðru lagi verður maður að
rannsaka hverja staðhæfingu með
þeim sannleika, sem maður hefir
fundið rjettan. Hið nýja verður
að vera i samræmi við hið eldra.
Ef ekki þá er ástæða til að lita
með grun á það. Og í þriðja lagi
— trúið og treystið sannleikanum,
og að sannleikurinn sje vissari en
„Fagpanes".
Guðmundur Matthíasson Lind-
argötu 7, verður sextugur í dag.
í byrjun ágúst hóf nýr og fall-
egur vjelbátur fastar áætlunarferðir
milli Akraness og Reykjavikur.
Heitir hann „Fagranes" og er
smiðaður í Molde í Noregi hjá Bol-
sönes Skibsværft eftir kröfum 1.
flokks Norsk Veritas, en þó ali-
miklu traustari en krafist er sam-
kvæmt reglum I. flokks. Skipið
lestar um 60 smálestir og er með
150 hesta Skandiavjel, en ferðin
er nálægt 9 milum á vöku. Er
skipið um 1 klst. og 10 mín. milii
Akranes og Rvíkur í sæmilegu
veðri. — Skipið er úr trje en yfir-
bygging úr stáli og mjög vel vand-
að. Eigendurnir eru Leifur Böðv-
arsson og Ármann Halldórsson
skipstjóri, sem undanfarið hefir
haldið uppi ferðum milli Reykja-
víkur og Akraness á vjelbátnum
„Ármann“.
Fagranes getur tekið altað 150
farþega, þar af 70 undir þiijum, n
I. og II. farrými. Er þar mjög visl-
legt og rúmgott, enda er eigi nema
lítið lestarplás? fyrir vörur í skip-
inu. Skipið fer þrjár áætlunar-
ferðir á viku og hefir auk þess far-
ið á mjlli á liverjum sunnudegi
með skemtiferðafólk i sumar og
hafa þær ferðir orðið vinsælar.
Fagranes kom til Akraness fra
Molde 31. júlí, en til Rvíkur 2.
ágúst og hefir verið í ferðum síð-
an og reynst hið besta. Er myndin
tekin á höfninni á Akranesi og
sjer á hafnargarðinn nýja til hægri.
Hann hefir nú verið framlengdur
með því að sökkva steinsteypu-
skipi, um 70 metra löngu við end-
ann á honum.
Guðjón Kr. Jónsson Grettisg 11
verður 55 ára í dag.
Nýr leikstjóri.
Allir leikvinir munu fagna því,
að Leikfjelag Reykjavíkur hefir nú
ráðist í það, að fá hingað reyndan
erlendan leikstjóra til þess að
standa fyrir leikunum, sem sýndir
verða í vetur í höfuðstaðnum. Fyr-
ir valinu varð Gunnar Hansen,
leikstjóri i Kaupmannahöfn, ungur
maður en framúrskarandi vel að
sjer í sinni ment. Á unglingsárun-
um tók Gunnar Hansen ástfóstri
við íslenska tungu og íslenskar bók-
mentir og hann talar íslensku ná-
lega sem innlendur maður. —- í
Kaupmannahöfn hefur Gunnar
Hansen verið leikstjóri við Kon-
unglega leikhúsið og við Norður-
brúarleikhúsið, en um tíma rak
hann leikhús fyrir eiginn reikn-
ing og var til þess tekið hve leik-
ritin, sem þar voru sýnd, voru
vel valin.
Fyrsta leikritið, sem hinn nýi
leikstjóri undirbýr til sýningar.
verður Jeppi á Fjalli eftir Ludvig
Ilolberg, en aðalhlutverkin leiki
þau Gunnþórunn Halldórsdóttir og
það þægilegasta og að það er ó-
endanlega miklu meira virði, að
eitthvað sje satt en að það sje arð-
vænlegt, þægilegt eða hentugt.
Sannleikurinn gerir menn
frjálsa! Ósannindin hafa altaf vafn-
inga i för með sjer.
Sannleikurinn er rökfræði al-
geimsins, rökleiðsla örlaganna —
liann er andi guðs.
Og enginn mannlegur kraftur get-
ur hróflað við honum.
Leitið rjettu hugsjónanna. Án
þeirra er maður á öfugri leið.
Frank Crane.
Þorsteinn Ö. Stephensen. Á meðal
margra sjónleika sem Leikfjelagið
ætlar að sýna i vetur verða a. m.
k. þrír ísienskir: „Siðasti víking-
urinn“ eftir Indriða Einarsson,
„Straumrof“ eftir Haldór Kiljan
Laxness og „Piltur og stúlka“ eftir
Emil Thoroddsen, en fjórða leik-
inn, sem ef til vill verður sýndur,
hefir höfundurinn, Axel Thorsteins-
son rithöfundur, enn eigi að fullu
lokið við, og yrði hann þá eigi
sýndur fyr en í vor.
GLOBUSMEN-
rakvjelablóðin hafa
10 ára ágæta
reynslu.
Heildsala. Smásala.
GleraugnabAðin. Laugaveg 2.
Samúel Jónsson trjesmíða-
meistari Skólavörðustíg 35
varð 70 ára 18. þ. m.
Stefán Jónsson Hlíð í Lóni
Fálkinn er besta heimilisblaðið. Hornafirði varð 50 ára 16. þ. m.