Fálkinn


Fálkinn - 22.09.1934, Side 4

Fálkinn - 22.09.1934, Side 4
4 F Á L K I N N ( Sigurður Kristjánsson áttræður. Sunnudags hugleiðing. Lofsöngurinn. Guðspjöllin fjögur: Og er þeir höfðu sungið lofsönginn, fór Jesús eftir venju sinni með lærisveinum sínum yfir um lækinn Kedron til Olíu- fjallsins. Lofsyngjandi gekk Jesús út í náttmyrkur þjáninga sinna. Út til þess staðar, sem var hon- um svo kær, af því að það var orðin venja hans, að fara um litla Iiedronslækinn, heyra nið hans og dvelja undir gömlu og kræklóttu, silfurgljáandi olíutrjánum, — þangað fór hann, til móts við yfirvofandi hættuna, svo að svikarinn, sem oft hafði verið þar með þeim og „þekti staðinn“, skyldi finna liann. Og þangað gekk hann syngjandi lofsöng! Af þessari göngu er sprottinn allur lofsöngur hjer á jörðu. Nú getur þú niðað af fögnuði, Kedronslækur, og allir Iækir tekið undir með þjer; nú get- ur farið fagnaðarþytur um ykkur, olíutrjen gömlu og öll skógarins trje; nú getið þið sungið lofsöngva, öll mann- anna börn, því að píslarsög- unni, sem hófst með göngunni yfir Kedronslæk og í skugga gömlu olíutrjánna, er nú löngu lokið. Það er leitt, að ekki skuli vera fleiri lofsöngvar í okkar ágætu sálmabók; en leitum að þeim, sem þar eru og syngj- um þá. í söngbók kristilegu æskulýðsfjelaganna eru líka ýmsir ágætir sálmar. Syngjum þá af bjarta, eins og hann, sem gekk syngjandi út í fórnar- dauðann. Það á að vera mikið um söng í kristilegu fjelögun- um okkar og skemtiferðum, söngur við starf og söngur við bænahald. Lærum sem flesta lofsöngva utanbókar og verum ósparir á að syngja þá. En viljir þú læra að syngja þá af hjarta, þá verður þú að sökkva þjer niður í píslarsögu Frelsara þlns, fylgja honum yfir um Kedron og áfram, skref fyrir skref og segja án afláts: „Mín vegna, mín vegna! Já, þetta gjörðir þú og þetta leiðst þú mín vegna!“ . . þar, í fótsporúnum hans, eru upp- tök hins sanna lofsöngs. 01 f. Ric. Á. Jóh. Eg vil lofsyngja Drotni, þvi að hann hefir sig dýrðleg- an gjört. Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er min'n Guð, °g jeg vil vegsama hann, Guð föður míns, °g jeg vil tigna hann. II Mós. 15:1—2. Að vordegi fyrir sextíú ár- um voru tveir menn á ferð til Reykjavíkur vestan af Snæ- fellsnesi. Annar þeirra hafði brugðið búi fyrir vestan og var ráðinn í því að setjast að í Reykjavík og það gerði hann. Hitt var tvítugur unglingspilt- ur, sem nú var í fyrsta sinn á leið til Reykjavikur. Hann var óráðinn um framtíðina, og hafði ekki gert sjer neina grein fyrir því, hvað við mundi taka. En „út vil ek“, mun hann hafa hugsað, — að minsta kosti út fyrir bygðina sína. Kanske lengra? í Brynjudalnum hittu þeir Berg heitinn Thorberg, sem þá var amtmaður, og slógust í för með honum suður. Bauð amt- maður þeim að borða með sjer á bæ í Kjósinni. — Svo, að þjer getið nú nærri, að manni fanst þetta upphefð, unglingn- um vestan af Snæfellsnesi, að verða samferða amtmanninum og borða með honum! Það er áttræður unglingur, sem segir þessi orð við mig í viðtali, er jeg átti við hann á dögunum. Samferðamaður hans vestan af Snæfellsnesi, sá sem áður getur um, var Sveinn Sveinsson snikkari, bróðir Hall- grims biskups. Hann stundaði hjer trjesmíðar til dauðadags og bar hjer beinin. Ilinn mað- urinn, sá sem jeg var að tala við, hefir átt heima í Reykja- vík öll þessi sextíu ár, sem lið- in eru síðan þessa vordaga og heitir Sigurður Kristjánsson bóksali. Fyrir sextíu árum þekti eng- inn hann. Nú þekkir hvert mannsbarn á landinu nafnið — og margir manninn. Svo at- hafnamikill hefir hann verið þessi sextíu ár. Og starf hans hefir verið þess eðlis, að það kynti manninn almenningi frekar en flest önnur störf. Um hálfa öld var liann atliafna- mesti bókaútgefandi landsins og kom meðal annars því verki í framkvæmd, sem gerir minn- ingu hans langlífasta: alþýðu- útgáfu af öllurn íslendingasög- um, Eddunum báðum og Sturl- ungu. Hann gaf út guðsorða- bækur, sem öll þjóðin hefir lesið og hann gaf úl fjölda skáldskaparrita, sem allir þekkja, er á annað borð lesa skáldskap. Hann Iilúði að ung- um rithöfundum og kom þeim á framfæri, þótt liann ætti vísa von um að halli mundi verða á útgáfunni. — Nei, jeg var alveg óráð- inn um framtíðina þegar jeg kom hingað, segir Sigurður Kristjánsson. — Það flökraði jafnvel að mjer, að reyna að kornast til Ameriku, þó að aldrei hugsaði jeg þó um það í fullri alvöru. En það var svo mikið talað um Vesturferðir i þá daga, að maður var ósjálf- rátt mintur á Vesturheim hvar sem maður kom. Og slciljan- leg hending var það því, hvaða bók jeg sá fyrsta í Reykja- vík. Jeg gisti fyrstu nóttina í húsi fyrir vestan bæ og þar var ein bók \ herberginu — „Alaska“ eftir Jón Ólafsson. — Ónei, jeg átti mjer ekk- ert víst, og öðru hverju var jeg að hugsa um, hvort jeg ætti nokkuð erindi til Reykjavikur. En svo afrjeð jeg að fara til Einars Þórðarsonar og fara að læra hjá honum prentiðn. Þar fjell mjer vel. Prentsmiðjan var þá í einu af gömlu inn- rjettingarhúsunum, þar sem Braunsverslun var þangað til nýlega, lágt hús en með miklu og breiðu risi, eins og títt var í þá daga. Þar stóð jeg í tæp fjögur ár og fjekk sveinsbrjef mitt sem prentari á kross- messudaginn 1879. Og svo rjeðst jeg prentari í ísafoldar- prentsmiðju. Þjer bvrjuðuð á bókaút- gáfu meðan þjer unnuð að jjrentverki? Já. Sigmundur Guð- nnmdsson, sem sljórnaði ísa- foldarprentsmiðju hafði bygt steinhúsið í Bankastræti 1880 og flutt ])rentsmiðjuna þangað. En svo greij) vesturfararsóttin hann og hann vildi selja hús- ið og komast af landi burt. Þessi vesturfarasótl var hreinn og beinn faraldur á þeim ár- um. En þá var minna um húsabraskið og húsabraskar- ana en nú er, og Sigmundi veittist erfitt að fá kaupanda að húsinu. Hallgrímur Sveinsson síðar biskup hafði umsjón með prentsmiðjunni fyrir hönd Björns Jónssonar mágs síns, sem þá var erlendis. Jeg kom oft til hans og eitt sinn stakk hann upp á því við mig, að jeg reyndi að ná kaupum á húsinu. Jeg sagði honum sem satt var, að jeg væri ekki fjáð- ur maður — þegar jeg kom til Reykjavíkur átti jeg 12 rík- isdali í vasanum, sem jeg' skifti síðar fyrir 24 krónur bjá landfógetanum, og elcki fjen- aðist maður á námsárunum. En samt fór það nú svo, að jeg festi kaup á búsinu í janúar 1883 og þar átti jeg heima þangað til 1928, að jeg seldi það Herbert heitnum Sig- mundssyni, Guðmundssonar þess, sem átt hafði það fyrstur og látið byggja það. — Um sama leyti fjell Egill bókbindari frá. ldann hafði liaft útgáfurjettinn að ýmsum bókum, þar á meðal postillu Pjeturs biskups. Var mjer boð- ið að taka að mjer útgáfu þessa og varð úr að jeg gerði það. Sigmundur prentari hafði baft ritfangaverslun í vestur- enda hússins niðri og tók jeg við heúni og fjekk borgara- brjef 20. október 1883. — Og hver var svo fyrsta bókin, sem þjer gáfuð út? — Það var Pjeturspostilla. Jeg setti hana sjálfur alla sam- an og las hana um leið i fyrsta skifti. Jeg ólst upp hjá trú- ræknu fólki en hafði þó aldrei sjeð Pjeturspostillu, því að á því heimili komst ekkert nð nema Vídalín. En Pjeturspost- illa var orðin injög vinsæl þá, liafði komið fyrst út 1856 og

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.