Fálkinn


Fálkinn - 11.05.1935, Blaðsíða 14

Fálkinn - 11.05.1935, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N JOHAN TRANUM BÍÐUR BANA. Daninn Johan Tranum var eflaust frægastur maður í hóp þeirra ang- urgapa, sem lagt hafa það fyrir sig að hlaupa með falllilífum úr mikilli hæð. Hann jók fallhæðina ár frá ári og bætti í sífellu við nýjum lisl- um og glæfralegri tiltektum, enda hópaðist fólk jafnan að sýningum hans. En auk þess var Tranum svo æfður í ýmsum jafnvægislistum og töfrabrögðum, að hann hefði getað fengið atvinnu við fjölleikahús hve- nær sem vera skyldi. Tranum dvald- ist lengstum í Englandi og ferðaðist um allan heim til þess að sýna list- ir sýnar í fallhlifinni. í marsmánuði kom hann til Danmerkur og ætlaði að setja nýlt met í falli úr flugvjel. En það mistókst og Tranum beið bana. Á stærri myndinni sem hjer fylgir sjest Tranum öðrumegin í húningi þeim, sem hann var í þegar hann sýndi falllistir sínar, en hinu megin er hann með öndurtæki fyrir andlitinu, þvi að súrefni varð hann að hafa með sjer í ferðir sínar, — svo mikil var hæðin. Á hinni mynd- inni sjást danskir flugmenn, fjelagar mi Tranums bera líkkistu hans út úr Ríkisspítalakirkunni í Iíaupmanna- liöfn. Sunnudags hugleiðing. Eftir Pjetur Siffurðsson. Naglaförin. Enskur doktor í guðfræði hef- ii komist þannig að orði: „Það væri auðveldara að taka í hönd Krists, ef ekki væru þar nagla- förin". Tvent er ómótmælanlegt við- víkjandi Kristi. Það, að hann liefir öllum mönnum fremur vakið á sér athygli heimsins, og hitt, að heiminum hefir reynst erfitt að fylgja honum. Það er sem heiminn hafi lang- að, en verið samt liræddur. Við hvað liefir hann verið hrædd- ur? Hafa það ekki verið nagla- förin, sem aftrað hafa heimin- um frá því að taka fast og inni- lega í hönd Krists? — Þar hefir heimurinn séð fram rétta vold- uga og sterka hönd, hjálpandi og elskulega hönd, styðjandi og frelsandi liönd, en í skrift naglafaranna hefir eigingjarn lieimur lesið hina óaðgengilegu og ægilegu kröfu fórnfýsinnar. — Ilvað boða naglaförin? — Hvað heimtar þessi særða og gegnumstungna fram rjetta hönd? — Þjónustu og fórnfýsi. Þar kemur heimur, sem elskar þægindi og gæði og langar til þess að grípa þessa framrjettu, sterku hönd, en Meistarinn segir: „Refir eiga greni og fugl- ar himinsins hreiður, en manns-sonurinn á hvergi höfði sínu að að halla“. -— Þetta er óaðgengilegt. — Það eru nagla- förin. — Þar kemur heimur, sem elskar auðlegð, og sem „ekki er fjarri guðsríkinu“, og langar til að styðja sig við sterka hönd Meistarans, en hann rjettir hönd sína fram og sýnir naglaförin og þau segja: „Sel þú allar eigur þínar ®g gef þær fátækum, og kom síð- an og fylg mér“. — Þetta er ó- aðgengilegt. Það eru, naglaför- in. Kröfu þeirra hefir heimur- inn altaf hræðst. Hann langar i raun og veru í Krist. Þar er eitthvað elskulegt og aðlaðandi, en kröfur Meistarans um þjón- ustu-fúsleik, fórnfýsi, bræðra- lag og frið á jörðu, hefir heim- urinn hræðst. Þjóðir heimsins berjast um völdin og vilja drotna, en Kristur hýður þeim að slíðra sverð sín og þjóna. Það er óaðgengilegt. — Það eru naglaförin. Mannkynið hefir altaf viður- kent vanmátt sinn. Það hefir í raun og veru altaf viðurkent þörf sina á hjálpara, það sýnir öll þessi tilbeiðsla og trúarþörf. Ileimurinn hefir altaf þráð leið- toga, er findi veginn inn í draumaland sjáendanna og hina þráðu paradís mannkynsins, og aldrei hefir heimurinn þráð þetta heitar en nú, það sýna allar tilraunir flokka og þjóða að finna veg út úr ógöngum eifla slæma daga. Naumast les maður svo frásögn l'rá austurlöndum, að maður rekist ekki á „rickshaw-kúlíana“, þessa pilta sem hlaupa á harða spretti upp göturnar með kerru í eftirdragi, oft með einhverjum ístrubelgnum á. Kúlíanarnir eru sennilega með nægju sömustu mönnum í veröldinni og komast af með einn grjónahnefa á dag, þó að þeir sjeu á hlaupum all- an daginn. Hjer skal sagt nokkuð frá kúlíunum í Shanghaj — þar eru þeir 15.000, sem lifa á að hlaupa með fólk á kerrum, og til skamms tíma hefir fólk eklci farið á öðrum faratækjum húsa á milli þar í borg- inni. vanþroskaðrar menningar og ó- fullnægjandi skipulags. Altaf hefir heimurinn verið að renna augunum til Iírists. Þar sér liann í raun og veru leið- togann, þörfin er brýn, og hönd Krists virðist vera voldug og sterk. — Heiminn langar til þess að gripa þessa máttugu frelsandi liönd, en — það er eitthvað þar, sem er óaðgengi- legt. — Það eru naglaförin. 1 Þegar vagnleigan er dregin frá vinnur kúlíinn sjer inn nálægt 15 krónur á mánuði fyrir 14 stunda vinnu á dag. Hann endist að með- altali 5Ya ár til þessarar stritvinnu og þá er hann útslitinn. Hann fer að meðaltali 10 kílómetra á klukku- tima. Síðan bílarnir komu til sög- unnar er það algengt að sjá kúlía verða undir bilum, þvi að þeir verða að fara akbrautina. Það er ódýrara að aka með rick- shaw en í sporvagni eða almennings- bíl, en þó hafa lcúlíarnir fengið ó- þægilega samkepni þar sem bílarn- ir eru. í verkfallinu í Shanghaj 1929 veltu kúlíarnir strætisvögnun- um svo að umferðih teptist á göt- unum. Eftir þennan athurð voru 210 kúlíar hálshöggnir. Fyrir alllanga ferð i rickshaw skrift þeirra les sá heimur, sem alt vill fá: „Gefið og yður mun gefast“. — „Hver sem reynir að ávinna lif'sitt, mun týna því, en hver sem týnir þvi, mun varð- veita það“. — Þjónið öðrum, fórnið öllu fyrir aðra, látið jafn- vel lífið fyrir aðra. — Þetta boða naglaförin, og það er ekki að- gengilegt, og þess vegna fer Kristur enn mikið einn sinna ferða. borgar Kínverjinn 10 aura. Evrópu- maðurinn er rausnarlegri og borgar 20. Kúlíunum lendir oft saman við lögregluþjónana, sem hafa umboð til að sekta þá, þar sem þeir eru staddir, lögreglunni til hægðarauka. Lögregluþjónn hefir leyfi til að taka af rickshaw númerið. Og þá verður kúlíinn að fara heim með vagninn sinn. Lögreglumaðurinn gelur líka tek- ið púðann, sem farþeginn situr á, og lætur hann ekki af hendi fyr en kúlíinn hefir borgað 40 aura! Þegar maður tekur sjer rickshaw segir maður aldrei hvert maður ætli því kúlíinn getur sjaldnast skilið það. Maður bendir í áttina sein maður ætlar og gefur merki þegar maður vill fara til hægri eða vinstri. Einu orðin, sem kúliinn skilur eru „Go“ og „Stop“. Þegar líður á daginn eru kúlíarnir farnir að þreytast, en farþegunum liggur aldrei eins mikið á og einmitt þá og hrópa til þeirra og liotta á þu eins og lata hesta. Stundum fara margir saman í ferð á ricksjáum og þá gæta kúliarnir þess að vcra sem þjettast saman, svo að farþegarnir geti talast við. Þá muna þeir siður að reka á eft- ir og þá getur jafnvel skeð, að kúlí- arnir geti leyft sjer að ganga fetið í stað þess að hlaupa. Fálkinn er besta heimilisblaðið.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.