Fálkinn - 24.08.1935, Blaðsíða 2
2
F A L K I N N
PROTQS
Siemens heimsþektu raftæki.
Ryksugur.
Bónvjelar.
Kæliskápar.
Eldavjelar..
Hárþurkur.
Hitapúðar.
Fæst hjá
raftækjasölum.
Bestu sokkana
fáið þjer tuímœlalaust
L
hjá
ÁRUSI
Verð kr. 2.25, 2.75, 3.50,
3.75, 4.25, 5.50.
------ GAMLA BÍÓ ------------
Saklaus lygi.
Gullfalleg og efnisrík ensk tal-
mynd í 10 þáttuin. Aðalhlut-
verkið leikur 14 ára gömul
stúlka:
NOVA PILBEAM
af framúrskarandi snild. —
Ennfremur:
MATHESON LANG og
LYDIA SGHERWOOD.
frægir leikarar í hinum enska
leiklistaheimi.
Myndin sýnd bráðlega.
Fyrir þremur árum, í júlí 1932,
fórst sænskt skip á kólalrifi i
Kyrrahafinu, eigi langt frá Equador.
Skipshöfnin komst á báta og var
lengi á reki við hina verstu aðbúð.
Mat höfðu skipsbrotsmenn engari
nema hvað stöku sinnum náðisl í
fisk, sem etinn var hrár, og liðu
mennirnir hinar mestu kvalir af
hila. Skipstjórinn og einn af vjel-
sljórunum fórust, en þeir 14 sem
eftir lifðu komust um síðir til lít-
illar suðurhafseyjar, Hádegiseyjar-
innar, sem er ein af Gilbertseyjun-
um og hittu þar fyrir tvær malaja-
fjölskyldur. Tóku þær skipbrots-
mönnunum vel og hýstu ]aá og
fæddu, enda var nóg um matarföng
á eynni. Þarna lifðu sjómennirnir
áhyggjulausu lífi lengi vel og mundu
líklega vera þar enn, ef afbrýðis-
semin hefði eigi spilt Paradísar-
ástandinu. Malajafjölskyldurnar áttu
þrjár ungar dætur, sem Svíarnir
urðu ástfangnir af. Lenti þeim sam-
an í bardaga út af stúlkunum og
mistu tveir þeirra lífið, en þeir
tólf sem eftir voru gátu ekki lifað
saman en sátu á svikráðum hverir
við aðra. Loks kom skip eitt lil
eyjarinnar fyrir nokkrum vikum og
flnti það tíu af Svíunum á burt„
en tveir urðu eftir. En jiegar Svi-
arnir tíu komu til Sidney voru þeir
settir í svartholið og sakaðir um að
hafa drepið tvo landsmenn sina.
Bíða þeir nú dóms.
Hljóm- og
RÍKA FRÆNKA.
Kvikmynd þessi er gerð upp úr
frönskum gamanleik eftir Félix
Gandera, en tekin af Svensk Film-
industri uildir stjórn Gustafs Mol-
ander, en hinn snjalli lágasmiður
Jules Sylvain hefir annast tónsmið-
arnar í myndinni. Efnið er ekta
franskt: ástabrall og hjónaskilnað-
ir með öllum þeim vandræðum,
sem slikar aðfarir hafa að jafnaði
í för með sjer.
Myndin hefst með því, að Berger,
ungur forstjóri, og Greta Granberg
ætla að fara að gifta sig og eru að
koma heimilinu í stand. En sam-
komulag þeirra er ekki nema svona
og svona og það sem einkum bját-
ar á er, að Berger hefir átt vin-
gott við margar stúlkur áðui', svo að
Grela er afbrýðissöm. Fer svo að
þau skilja — alveg nýgift — og
giftisl Greta aftur Lundgren nokkr-
um forstjóra og sest hann að hjá
konu sinni á nýja heimilinu. Það
hefir Greta hlotið, því að húsið
hefir hún fengið í brúðargjöf frá
rikri frænku sinni í París. En
Berger situr eftir með sárt ennið —•
í bili. Gretu leiðist í nýja hjóna-
bandinu, því að Lundberg er alls
ekki nærgætinn eiginmaður, en van-
rækir konuna og er allur í kaup-
sýslunni. Samt getur hann fengið
konu sína til að skrifa til París og
biðja um 100.000 króna lán sem hann
vanhagar um, hjá ríku frænkunni.
talmyndir.
Þau búast við að hún muni senda
peningana, en hún tilkynnir að hún
muni koma sjáif og nota tækifærið
til að sjá Berger — því að hún hef-
ir ekki hugmynd um annað, en það
sje hann, sem enn er giftur Gretu.
Og nú hefjast vanræðin þegar rika
frænka kemur, og þau vandræði
verða ekki minni fyrir það, að ríka
lrænka og Lundgren eru gamlir
kunningjar. Eru það ótrúlega skop-
legir atburðir sem gerast á heimili
Gretu, eftir að ríka frænka kemur
í heimsóknina, en þeim atburðum
verður myndin sjálf að segja áhorf-
andanum frá.
Það er hin nafnkunna norsk-
sænska leikkona Tutta Berntsen-Rolf
sem ber myndina uppi. Hún leikur
ungu frúna tvigiftu og nýtur sín vel
í hlutverkinu. Þeir sem niuna hana
úr „Við sem vinnum eldhússtörfin“
og fleiri gamanmyndum, liekkja vel
kosti þessarar bráðfjörugu leikkonu,
sem nú er komin til Hollywood til
þess að keppa þar um hylli almenn-
ings, í ameríkönskum gamanmynd-
iun. Fyrri mann hennar — sem á
endanum verður lika þriðji maður
hennar leikur Adolf Jahr, en mann-
inn í miðið leikur Buller Berglund
og er það spaugileg persóna. Loks
leikur Karin Swanström ríku
frænkuna, og er hún eigi síst skemti
leg. Myndin verður sýnd á Nýja
Bíó mjög bráðlega.
SAKLAUS LYGI.
í þessari mynd, sem tekin er at
British Gaumont hvílir þuúgamiðja
leiksins á ungi telpu, 14 ára gum-
ulli, sem leikin er af óþektri telpu
er heitir Nova Pilbeam, og valin var
úr 100 umsækjendum um hlul-
verkið. Itefir það val tekist svo
vel, að myndin hefir hlotið óskifta
aðdáun hvar sem hún hefir verið
sýnd. Telpan unga, sem berst fyrir
því að missa ekki foreldra sina frá
sjer, fer svo snildarlega með hlut-
verk sitt, að áhorfandinn finnur
ekki til þess að hann sje að horfa
á leikrit heldur finst hoinim l)að
vera lífið sjálft, sem myndin bregð-
ur upp fyrir honum. Svo sálrænn
er leikur jiessa barns, sem sýnir lil-
finningar dóttur, er elskar foreldra
sína meir en nokkuð annað og sem
finst alt leggjast i rústir er þau
skilja samvistum. Leikurinn er svo
lifandi, að þó að telpan segði ekki
eitt einasta orð mundi áhorfadinn
fytgjast með instu tilfinningum
hennar og skapbrigðum. Vitanlega
á leikstjórinn, Berthohl Viertel ekln
síst lofið skilið fyrir þann árangur
sem orðið hefir af samstarfinu við
hinn unga leikanda, og skapað mynd
sem að dómi erlendra blaða er al-
veg sjerstök í sinni röð.
Hin aðalhlutverkin í myndinni,
foreldrarnir, eru leikin af hinum
kunna enska leikara Malheson Lang
og af Lydiu Sherwood. Eru jmu
hvert öðru kunnara í enskum leik-
listarheimi og afar vinsæl. Mathe-
son Lang er gamalkunnur fyrir með-
----- NÝJABÍO ----------
Rika frænkan.
Spriklfjörug og fyndin sænsk
tal- og tónmynd er fjaliar um
ástir, trúlofaniri hjúskap og
hjónaskilnað. — Aðalhlutverkin
leika af miklu fjöri vinsælustu
skopleikarar Svíþjóðar:
TUTTA BERNTZEN,
KARIN SWANSTRÖM,
ADOLF JAIIR og
BULLEN BERGLUND.
Jósefina drotning Napoleons var
ein af eyðslusömuslu koiium, sem
nokkurntíma hafa verið uppi í heim
inum. Hún eyddi 2500 krónum i
vararoða á ári. Hársnyrtingarmaður
hennar hafði hærri laun en hers-
höfðingjar keisarans. Til fata eyddi
hún yfir 700.000 krónum á ári og
átti aldrei minna en 200 pör af
silkisokkum. Á einum mánuði keypti
hún sjer einu sinni 34 hatta og á
einu ári 980 pör af hönskum, 73
lífstykki og 500 pör af skóm. Hún
hafði mjög gaman af sjaldgæfum
dýrum og átti meðal annars ástralska
pungrottu, þrjá páfagauka, markött
og orangutang í gyltu búri.
...-x-----
Edgar Wallace hefir til þessa ver-
ið talinn afkastamesti rithöfundur
heimsins, en nú lítur svo út, sem
að annar methafi sje í uppsiglingu
í þessari grein. Höfundurinn P. R.
Ilaffold hefir nefnilega skýrt svo
frá, að 200. bók sín sje nýkomin út.
Raffold er mjög lesinn vestra, þó
að hann sje tiltölulega litt kunnur
í Evrópu. Hann samdi fyrstu bók
sína fyrir 14 árum, svo að síðan
hefir hann með öðrum orðum skrif-
að meira en eina skáldsögu á mán-
uði. Má það heita vel af sjer vikið.
Guðmundur Jónsson, járnsmið-
ur, Hafnarfirði, verður 65 ára
á morgun.
ferð sína á ýmsum hinna stærri
hlutverka í leikritum Shakespeares
og er talinn einn besti skapgerðar-
leikari Breta. Auk þeirra leikur
fjöldi alþektra enskra leikara i
myndinni og er hún talin i flokki
hinna ágætustu mynda, sem teku-
ar hafa verið i Bretlandi, enda feng-
ið hinar ágætustu viðtökur um all-
an heim, og verið rætt ítarlega um
hana i heimsblöðunum vegna hins
listræna gililis, sem hún hafi. Á
Roxyleikhúsinu í New York sáu
21.000 manns þessa mynd sama
daginn og mun það vera einsdæmi
um útlenda mynd í Bandaríkjunum.
„Saklaus lygi“ verður sýnd bráð-
Icga á Gamla Bió.