Fálkinn


Fálkinn - 24.08.1935, Blaðsíða 9

Fálkinn - 24.08.1935, Blaðsíða 9
F Á L K I N N 9 / Austurlöndum hafa fornar íþróttir til skamms tíma verið í hávegum hafð- ar, einkum þær sem á einhvern hált eru tengdar hernaði. Þannig iðka austurlandabúar enn mjög boga-skot- fimi og liafa sýningar á henni og þyk- ir mikill heiður að vera fremstur þar. Jafnvel Bretar iðka bogaskotfimi af kappi, enda eru þeir manna vanafast- astir. Iljer á myndinni til vinstri sjest indverskur maður vera að sýna leikni sína i því að skjóta af boga, á þjóðhá- tíð í Simta í Punjab-hjeraði, að við- stöddum mörg þúsund áhorfendum, þar á meðal indverska undirkonungn- um. Það er myndarlegt svín, sem sjest hjer á myndinni að neðan en annað mál er hvort ketið af því er að sama skapi bragðgott. tírís þessi vakti mikla at- hygli á grísasýningu í Sidney, Ástralíu í vor, enda er hann meira en tveir metrar á lengd. Knúlur prins og kona hans eignuðust dóttur í sumar og var hún skírð í kirkj- unni í Lyngby og voru þar viðstaddir allir þeir úr konungsfjölskyldunni, sem heima voru, þar á meðal afi og amma hinnar ungu prinsessu. Ekki fer ielpuhnokkinn nafnlaus út í veröldina, því að ellefu nöfn fjekk hún í skírninni og skulu þau ekki talin hjer, en aðal nafnið er Elísabet. A myndinni sjást foreldrarnir koma úr kirkjunni með telpuna að lokinni skírninni. Reiðmaðurinn sem sjest hjer á mynd- inni t. h. er ekki öfundsverður. Ilann hefir dottið af baki, eti á eftir honum koma keppinautar hans á fleygiferð. Oft bíða reiðmenn bana, þegar svona vill til.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.