Fálkinn - 23.11.1935, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
YNft/fU
Sitt af hverju tæi.
ÚRSYLLA.
Hvernig líst ykkur á, að búa ykk-
ur til svolitið óhald til þess að láta
úrið ykkar hanga á ó nóttinni og
hafa.það hangandi yfir rúminu ykk-
ar. Og svo leiðum við rafljós í þetta,
svo að þið getið kveikt til að sjá
hvað klukkan er. Jeg skal sýna ykk
ur hvernig þið farið að þessu.
Leiðsluþróðurinn, sem kemur gegn-
uin n er settur í samband við N,
hinsvegar er leiðslan sem kemur gegn
úm p, sett í samband við fjöðrina F.
Og loks er skrúfan P sett í samband
við K með þræði.
Lampáarmurinn er sagaður út úr
krossviði, og festur í rifu, sem gerð
er í S. Lampi úr vasaljósi er festur
Hún er gerð úr hringmyndaðri
plötu (S), en aftan á þessa plötu eru
negldir fjórir listar i ferhyrning, um
10 sentimetra langir. Innan á list-
ann að neðan eru festar tvær látúns-
þynnur, F og K. Er F beygt eins og
leikningin sýnir. Stórt gat er borað
á miðjan listan og stungið gegnum
það bandi, sem fest er um F. N og
P eru tvær messingsskrúfur, sem
skrúfaðar eru í S, og á þessar skrúf-
ur er rafhlað úr vasaljósi hengt
upp, á messingörmum, þess, n og p
eru tvö göt á S, sem leiðsluþræðirn-
ir að lampanum, liggja gegnum.
á örlitla trjeskífu, og settur neðan
á arminn. Úr lampahausnum eru
þræðir lagðir gegnum n og p. Svo
er krókur til að hengja úrið á, fest-
ur framan á S. Svo er þil búið lil
aftan á rammann; það er best að
hafa það á hjörum, svo að hægt sje
að opna það, þegar skifta þarf um
rafhlað. O er auga til að hengja
áhaldið upp á. — Þegar þið viljið
sjá livað klukkan er þá takið þið í
þráðinn að neðan og 'þá kemur ljós.
Þetta gæti orðið fyirmyndar jóla-
g.iöf.
FltEDDY OG TEDDY
GERAST SMYGLARAR.
1) Freddi/ hefir 'verið erlendis með
Teddy, og keypt sjer dýra kápu
úr bjarnarskinni.
3) Tollvörðurinn gefnr Teddy horn-
auya, því að honum sýnist hann
vera svo feitur, en þorir þó ekki
að segja neitt við björn i bjarn-
arfetdi.
2) Til þess að spara tollinn við
landamœrin, verðvr Teddy að
fara i kápuna.
h) Og lijer er smyglarinn, heilu hófi
að gera gaman að, hve vel þeim
hafi tekist listin: að snúa á toll-
verðina. Þið ættuð að heyra,
hve lengi hann hlakkaði yfir því?
TEDDY OG FREDDY.
1) Hjá rakaranum fær
Freddy ágætt háv-
meðal fyrir skall-
ann á afa sínum.
A) Og það leynir sjer
ekki, að jmð er gagn
í þessu hárva.rtar-
meðali.
2) Freddy setur hár-
meðaiið upp á hillu
í baðherberginu.
5) Freddy verður að
ná i skæri, til þess að
hjálpa Teddy.
3) En Teddy rekst á
hilluna, og hármeð-
alið dembist yfir
hann.
(>) Og eftir langa mæðu
þekkir hann kunn-
ingja sinn aftur.
REFSKÁKIN — eða:
„Úlfurinn eltir lömbin“.
Refskák er gamalt og gott tafl,
sem hefir verið iðkað hjer á landi
nærri þvi eins lengi og kotran, sem
var uppáhaldstafl íslendinga hjer
fyrrum. Nú skaltu gera þjer ref-
skákartafl, eftir þeirri tilvísun, sem
fer hjer á eftir, og jeg spái því, að
þú hafir gaman af því.
Þú fær þjer ferhyrnt pappaspjald
og strykar á það þrefaldan kross
með sjö línum á hvorn veg og merk-
ir út deplana í öllum skurðum lín-
anna, þanng að út komi punkta-
myndin, sem sjest hjer á teikning-
unni. „Spilamennirnir“ eru 15 lömb
og einn refur. Er best að hafa 15
samlita hnappa fyrir lömbin og einn
af öðrum lit fyrir ref. Tveir menn
leika taflið, og er annar þeirra
smalinn, sem á að gæta þess, að
lömbin haldi hóp, en hinn er úlf-
urinn, eða refurinn, sem reynir að
tvístra hópnum og hremma lömbin.
Smalinn má aðeins færa eitt lamb
í hverjum leik, annaðhvort til hlið-
ar eða áfrarn út á taflborðið, en al-
drei má hann færa lamb aftur á
bak eða i skáhorn. Refurinn á að
fara sömu leið og aldrei nema á
næsta reit, fremur en lömbin, en
hann hefir leyfi til að flytja sig afl-
ur á bak, en það mega lömbin aldrei
gera. Ef refurinn er á næsta reit við
lamb, og það er auður reitur balc
við lamhið, má hann hoppa yfir það
og drepa það. Þessvegna er nm að
gera fyrir smalann, að hafa löihbin
i þjettum hnápp, svo að refurinn
geti ekki komist inn í hópinn og
hrytji hann niður. Hlutverk smalans
er það að króa refinn inni, þannig
að hann að siðustu hafi engan reit
til að hreyfa sig á, en þetta er ekki
hægt, ef smalinn missir af margt
fje. Myndin sýnir taflboðið með tafl-
mönnunum, eins og það er áður en
leikurinn hefst.
Það er um þetta tafl eins og úr-
sylluna, að hægt er að gera úr þvi
allrá bestu jólagjöf. En þá þarf mað-
ur helst að gera taflborðið úr trje
og bora á það 33 holur og smiða
fallega prjóna, 15 talsins, sem hægt
er að stinga niður i holurnar, og
einn prjón með öðrum lit, sem á
að tákna refinii.
„VASAÚR“ FLUGMANNSINS.
í Englandi hefir verið gert —■ fyr-
ii utan gildaskálann á Heston-flug-
vellinum úr, sem sjerstaklega er
ætlað flugmönnum. Úrskífan er úr
svörtum steini, og er rúmlega 10
metrar i þvermál. Tölurnar á skíf-
unni eru um 35 sentimetrá háar og
snjóhvítar, svo að þær sjást vel á
biksvartri skífunni. Rafmagnsmótor-
inn, sem knýr klukkuna áfram,, er
undir skifunni, i einskonar helli,
sem steyptur hefir verið úr sements-
steypu undir hana. Flugmenn segja,
að þeir geti sjð á þessa klukku í
þúsund metra fjarlægð, að degi til,
þegar sæmilegt skygni er. Á nóttinni
er kastljós látið uppljóma úrskífuna.