Fálkinn - 01.02.1936, Page 2
2
FÁLKINN
----- QAMLA BÍÓ ---------
Ljettlynda Marletta.
Skemtilég og hrífandi tal- og
söngvamynd eftir hinni við-
frægu operettu Victor Herberts
(Naughty Marietta), sem er
nærri jjví eins þekt og „Káta
ekk.jan“.
Aðalhlutverkin leika og syngja:
JEANETTE MACDONALD og
NELSON EDDY.
Söngleikur þessi, sem gerður er af
vinsælasta óperettutónskáldi Amer-
íkumanna, Victor Herbert, var sýnd-
ur á leikhúsi í fyrsta sinn árið 1910
og hefir síðan liaft líka aðstöðu i
Ameríku eins og „Káta ekkjan“ í
Evrópu. Er sagt að „Marietta“ liafi
bjargað mörgum leikhúseigendum
frá gjaldþroti. Nú hefir hinn frægi
leikstjóri W. S. van Dyke gert söng-
mynd úr leiknunt og valið í aðalhlut-
verkið Jeanette MacDonald, sem
einnig ljek „Kátu ekkjuna", sem sýnd
var hjer nýlega. Leikur hún káta og
ijettlynda prinsessu, sem á að gift-
ast gamla spánska hertoganum Don
Carlos. En liún hefir hlutverkáskifíi
við herbergisþernu sína og fer sjáif
til Louisiana, en þangað er mikill
útflutningur af kvenfólki, sem vill
giftast, því að karlmenn liafa eink-
um flutst þangað. Heldur nú sagan
áfram í New Orleans, þar sem Mari-
elta kynnist kaptein einum (Neison
Eddy), sem er ágætur söngmaður,
og verður hún ástfangin af lionum.
Nelson Eddy er nýr leikari, stór-
friður maður og geðslegur og ágætur
söngvari, enda er hann þegar á góð-
um vegi með að vera heimsfrægur
og hefir þessi mynd átt mikinn þátt
í jjví. Eddy var blaðamaður áður
en hann gerðist leikari. Hann lærði
að syngja á jjann hátt, að liann
hlustaði á grammófónplötur eftir á-
gæta söngvara og söng sjálfur með
og endurtók plöturnar upp aftur og
aftur. Að joví loknu fór hann tii
ágæts kennara og komst innan
skamms að Metropolitan-söngleik-
húsinu og því næst söng hann ýms
lítil hiutverk í kvikmyndum, þangað
til loks að hann tókst á hendur að
syngja Warrington kaptein í „Ljett-
lyndu Mariettu“.
Myndin gerist á dögum l.úðvíks
fimtánda og er ait umhverfi hennar
og búningar miðaðir við þann tima.
Hjer verður ekki rnkið efni myndar-
innar en þess skal getið, að leikút-
búnaðurinn er allur gerður af Iiinni
mestu hugkvæmni og að fjöldi á-
gætra leikara er í myndinni, auk
þeirra tveggja sem nefndir hafa ver-
ið og vitanlega bera uppi lang-
stærstu hlutverkin. Af öðrum leik-
endum má nefna Frank Morgan,
Elsu Lanchester, Douglas Dumbrille
og Cecilia Parker, sem leikur her-
bergisþernuna er hefir hlutverka-
skifti við prinsessuna. Herbert Stoth-
art stjórnar hljómsveitinni.
Mynd þessi verður sýnd um heig-
Undanfarnar vikur hafa skautahlaup verið iðkuð af miklu kappi i
Reykjavik, bæði á Tjörninni og Austurvelli. Myndin er af Austiirvelli
en sýnir ekki nema fátt fólk i samanburði við það, sem er þar á
skautum á kvöldin. — Myndina tók Vignir.
Guðbj. Þorv. Einarsson bakari
Laugarnésveg 56 verður hO ára
í dag.
Loftur Jónsson Vegamótum.
Seltjarnarnesi, verður H3 ára
h. þ. m.
Þórður Bjarnasón kaupmaður
Lambastöðum, verður 65 ára
á' morgun.
Guðrún Jónsdóttir, frá Þyrli,
verður 60 ára 3. febrúar.
„Modern Times“ síðasta my.nd
Chaplins, átti að sýnast á frumsýn-
ingu i London í síðasta mánuði, en
þar hafði „Tivoli Theatre“ keypt
frumsýningarrjettinn fyrir miljón
krónur. Til þess að vekja athygii á
sýningunni hafði Chaplin lofað að
koma ásamt konuefni sinu, Paulette
Goddard, sem leikur annað aðai-
hiutverkið í myndinni. En jafnframt
hafði leikhúsið fengið tvær fyrver-
ina í GAMLA BÍÓ og má óhikað
ráðleggja öllu söngelsku fólki til
þess, að láta hana ekki ósjeða. Það
má telja liklegt, að hún falli í góðan
jarðveg.
andi konur Chaplins, sem háðar eru
staddar i London, Lita Grey og
Mildred Harris til þess að koma á
frumsýninguna og ennfremur Virg-
iníu Cherris, sem leikið hefir aðal-
hlutverk í Chaplinsmyndum. Vantar
þá ekki nema eina konu Chaplins,
Ednu Purvivance.
----x----
Óheppinn veiðimaður var á ferli í
Sjona skamt frá Harstad í Noregi
rjett fyrir jólin. Hann hleypti af
skoti á gamlan mann, — hjelt að
það væri refur, sem liann miðaði á.
Gamli maðurinn dó samstundis.
----x----
------- NÝJABÍO -------------
Frasquita.
Þýsk tal- og söngvamynd sam-
kvæmt lieimsþektri „Operettu'
með sama nafni eftir Franz
Lehár, er sjálfur stjórnar hljóm-
leikunum í myndinni. Efni
myndarinnar er æfintýraríkt og
skemtilegt og gerist myndin að
miklu leyti á fögrum stöðum við
Miðjarðarhafið. Aðalhlutverkin
leika: Heins Itiihmann, Hans
Bollmann og söngkonan fræga
JARMILA NOVOTNA.
Aukamynd: CAtíARETTSÝNING-
AIi, gamansöngvar — músik —
dans og fl.
Þetta er hljómmynd eftir einni af
hinum ágætu óperettum Franz Le-
har, mannsins sem undanfarna ára-
tugi hefir sarnið vinsælustu óperett-
urnar sem komið hafa fram í heim-
inum. Voru þær falinn fjársjóður
öðrum en lteim, sem höfðu aðgang
að óperettuleikhúsum, þangað til
hljómmyndin náði fullkomnun, því
að vitanlega er það ekki nema svip-
ur hjá sjón þó maður heyri einstölc
lög úr slíkum tónsmíðum leikin á
hljóðfæri eða á grammófón.
En efni þessa leiks er talsvert ó-
svipað flestum öðrum óperettum.
Vitanlega er leikurinn æfintýraleg-
ur, en hann gerist ekki i neinu í-
mynduðu furstadæmi, heldur í höll
suður við Miðjarðarhaf. Þar býr
Elmar greifi og Dolly dóttir hans,
sem samkvæmt foreldra ákvörðun
á að giftast Harald húsameistara,
sem hún hefir ekki sjeð síðan hún
var barn. Harald er á leið suður í
höllina til að kynnast konuefninu,
ásamt Hippolyt vini sinum. En þeg-
ar þeir eiga skamt ófarið bilar bíll-
inn skamt þar frá, sent zigaunahóp-
ur er á ferð. Og þar í hópnum hittir
Haraid mærina Frasquitu, og verður
vitiaus af ást lil hennar. Hann send-
ir Hippolyt á undan sjer í höllina
til að tilkynna komu sína og konu-
efnið tekur hann fyrir Harald og
verður bráðástfangin af honum. En
Harald er í mestu klípu. Hann vill
nauðugur rjúfa loforðið, sem for-
eldrar hans hafa gefið foreldrum
Dolly og nú segir myndin frá því,
hvernig þessu sálarstríði lýkur og
hvernig alt fellur í ljúfa löð, með
því að þeir giftast báðir vinirnir,
annar Dolly og hinn Frasquitu.
Mynd þessi er búin til leiks eftir
Carl Lamac, sem heimskunnur er
orðinn af ýmsum ágætum óperettu-
myndum. Og sjerstakt gildi gefur
það myndinni, að Franz Lehar
liefir sjálfur stjórnað hljóm-
sveitinni og aðstoðarkraftarnir eru
ekki valdir af verri endanum, nfl.
kór rikisóperunnar i Wien og hinn
frægi söngflokkur Wienar Sanger-
knaben. Aðal kvenhlutverkið leikur
söngkona, sem eigi er mikið kunn
af kvikmyndum en hefir getið sjer
mikinn orðstír: Jarmila Novotna. En
karlmannahlutverkin tvö leika Hans
Bollmann og Heinz Riihmann.
Myndin verður sýnd um helgina í
NÝJA BÍÓ.