Fálkinn - 01.02.1936, Side 6
6
F Á L K 1 N N
vissi jeg? Kvenlega eðlið hefir all-
af verið mjer gáta.
Þá tók yfirlæknirinn orðið. —
Herrar mínir, sagði hann. Hjer höf-
um við einstakt og jeg vil segja
stórmerkilegt tilfelli fyrir læknavís-
indin. Þessi maður, sem nú hefir
verið okkur öllum ráðgáta í undan-
farna tvo mánuði er — öljettur!
Allur borgarfundurinn varp önd-
inni. Heilinn í mjer leystist upp og
varð að þoku. En aðeins augnablik.
— Kemur ekki til mála, orgaði jeg.
Jeg er ekki svo lauslátur. Jeg....
jeg og.... og svo lineig jeg mátt-
laus ofan í rúmið. Fyr má nú rota
en dauðrota.
Mótmæli mín höfðu engin áhrif
á borgarafundinn. Yfirlæknirinn hjelt
áfram að útskýra „tilfellið" fyrir
samkonuinni. Sem betur fór botnaði
jeg ekkert i þeim skýringum. Hann
notaði svo mikið af latneskum orð-
um að það yfirgekk mannlegan skiln
ing. Og meðan hann var að tala
benti hann í sífellu á stóra ljós-
myndaplölu, sem mjer skildist að
mundi vera röntgenmyndin af mjer.
Eftir ræðu hans hófust svokall-
aðar fjörugar samræður. Mjer skild-
ist af þeim, að daginn eftir stæði tii
að halda sýningu á mjer fyrir alla
læknadeild háskólans og síðan á
ljósmæðraskólanum og ef til vill ætti
að skera mig á kviðinn til þess að
atliuga fóstrið nánar.
Þegar fundarfólkið var í þann veg-
inn að fara bað jeg með skjálfandi
rödd um að lofa mjer að sjá ljós-
myndina. Jeg fjekk það. Yfirhjúkr-
unarkonan varð eftir og sýndi mjer
liana.
Jeg grannskoðaði hana. Það var
eins konar skuggamynd. Svartir
skuggar sýndu, að jeg hafði hæfi-
lega mörg rif og að það var nægi-
lega stórt hjarta í mjer og á rjett-
Lim stað. Utan um þessar aðallínur
vöfðust svo Ijósari skuggar eins og
vafningsviður. Og þarna, skamt fyr-
ir neðan hjartað, var svolítill kol-
svartur skuggi, sem sýndi greinilega
ofurlítið barn með höndum, fótum
og höfði! Gat þetta verið mögulegt??
En alt í einu rann ljós upp fyrir
mjer. Allur kvíði íninn sópaðist á
burt í einu vetfangi og jeg hló svo
óstjórnlega að sjúkrastofan liristist
en Ijósmyndaplatan datt úr lúkunum
á injer niður á gólf og brotnaði.
Yfirhjúkrunarkonan rak upp óp og
hljóp út. Hún hjelt að jeg væri
brjálaður.
Jeg vaknaði til athafna við þetta
óp. Hurðin var naumast fallin að
stöfum fyr en jeg þreif fötin mín,
snaraði mjer í þau, opnaði gluggann
og liljóp út og eins og jeg ætti lífið
að leysa fram hjá dyraverðinum,
sem glápti á mig, slöngvaði mjer
inn i bíl, ók heim, hálfdrap liúsmóð-
ur mína af hræðslu, fleygði nokkr-
um pjönkum ofan i koffort og fór í
snatri upp í sveit og settist þar að
á afskektum bóndabæ. Þar ljet jeg
skeggið vaxa, breytti um nafn og
hvarf úr kunningjahóp mínum og
úr sálnaregistrinu og manntalinu.
Skýringin? Það var trygðapantur-
inn. Þið kannist sjálfsagt við þau,
þessi litlu börn úr kopar með stóran
haus, sem sumar stúlkur gefa manni
þegar þær elska mann og biðja
mann um að bera um hálsinn sem
tryggingu fyrir því, að þær skuli
altaf elska mann.
Og svo ber maður vitanlega trygða
pantinn um hálsinn nótt og dag —
og líka eftir-að maður hefir frétt að
stúlkan er gift öðrum.
Hversvegna maður gerir það. Æ,
eðli mannsins er svo óbrotið. Röntg-
en-myndin nægir til að koma því
upp hvað hann ber við hjarta sjer.
RAUÐI KROSSINN.
Framh. af bls. ’i.
in um haiin var þannig, að níu af
ellefu Svíum i leiðangrinum liefðu
farist, og barst hún til Svíþjóðar á
gamlárskvöld og er sagt, að engin
tíðindi hafi gripið Svía meira en
þessi, síðan fregniri um sjálfsmorð
Krúgers barst forðum frá Paris.
En Sviar svöruðu þessu með því að
skjóta saman fje i riýjan leiðangur
og fjöldi sjálfboðaliða bauð sig fram.
Norðmenn hafa ennfremur sent
Iiauðakrossleiðangur til Abessiníu.
Hins vegar hafa Danir ekki gert það.
En í Abessiniu er ærið verk fyrir
hönduin. Þar er fátt lækna og hjúkr-
unarfólk og þrifnaðúr á mjög láu
stigi.
í Bielsk, skamt frá Varsjá hefir
verið háð stríð milli tveggja zigauna-
flokka. Astæðan til orustunnar var
sú, að tveir höfðingjár, Jan og
Kwiek gátu ekki komið sjer saman
um, hvor þeirra ætti að bera heitið
„konungur allra zigauna". Voru 500
manns í livorri fylkingu og fjellu í
orústunní 13 marins en margir særð-
ust, þar á meðal Jan prins, svo að
Kwiek valin kommgsheitið. En hann
verður að njótá sigursins í tugthús-
inu því að lögreglan kom á vettvang
og skarst í leikinn og fangelsaði
foringjana.
I.OÐSKINNSJAKKI.
Þetta er alveg nýtl snið á loð-
skinnsjakka. Hann er hólkvíður,
bæði bolurinn og ermarnar, saum-
aður með sama sniði og „lumber-
Að neðah lil hœgri:
SPORTSPEYSA.
Fyrirmyndin er prjónuð úr grænu
ullargarni með hvítum kraga i háls-
inn og hvítum fleti neðan við háls-
málið, fyrir fangamarkinu. Takið
eftir prjóngerðinni, sem gerir yfir-
liorðið hrufótt.
Að neðan til vinstri:
NÝ HÁRGREIÐSLUTÍSKA — OG
GÖMUL ÞÓ.
Um hárliðunina hafa lengi vel
ekki verið settar neinar ákveðnar
reglur, en hver farið eftir sinum
eigin smekk og geðþótta. Hárliðunin,
sem sýnd er hjer á myndinni, er
mikið að ryðja sjer til rúms. Fyrir-
myndin er fengin frá gríska Medusa-
höfðinu fræga.
jacket“ og með belti um mittið, sem
bolurinn fellur út yfir. Við jakkann
er notað pils úr þykku efni. Þetta
er mikið notaður vetrarklæðnaður.