Fálkinn


Fálkinn - 14.03.1936, Síða 7

Fálkinn - 14.03.1936, Síða 7
F Á L K I N N 7 / . ' í::.' . / ár eru liðin 90 ár frá fæðingu danska skáldsins Holger Drachmann. í tilefni af þvi liafa minningartöflur verið settar á vegg hússins Amager Torv 9, þar sem hann fœddist og er á annari harpa en á hina er letrað: ,,l þessu húsi fæddist skáldið Holger Drachmann, 9. nóvember 1846“. Minningarhátið var haldin i Khöfn sama daginn og fíeorg konungur var jarðsettur í Windsor, að viðstöddum krónprinsinum og ýmsu öðru stór- merini. Hjer sjest krónprinsinn vera að koma út úr ensku kirkjunni. Fimtiu ár eru liðin síðan einasta fornrúst Khafnar, rústin af Jermers- turni fanst við gröft i gömlu viggirðingunum. Hjer er nujnd af rústunum. Þefvísi hundsins cr það að þakka, að lögreglulið flestra landa hefir á að skipa hundum, sem vandir eru á að rekja spor glæpamanna og elta þá uppi og ráðast á þá. Eru hund- arnir þar manninum miklu fremri og gáðir sporhundar þgkja mestu kostagripir. Myndin hjer að ofan er af sýningu, sem haldin var á spor- hundum í Kaupmannahöfn og sýnir myndin, að þeir eru líka æfðir i að klifra og setja ekki torfærur fyrir sig. Myndin sýnir keppendur i svo- nefndu 6-daga hlaupi á hjólum, þar sem þeir eru í einni beygjunni á brautinni. Verða þeir að haíla sjer inn til þess að vinna á móti mið- flóttaaflinu. Fyrir skömmu voru liðin 150 ár frá dauða norska skáldsins Wessel, sem ól lengstum aldur sinn i Dan- mörku. Var hann kýmnisskáld mik- ið og einkum heldur leikurinn ,,Kjærlighed uden Strömper“ uppi minningu hans, en þar er skopast að frönsku harmleikjunum, eins og þeir voru um hans daga. Var leik- ur þessi sýndur á kgl. leikhúsinu nýlega og sýnir myndin Bodil Ip- sen og Rasmus Christiansen i aðal- hlulverkunum. Fyvir skömmu kvæntist danskur greifi „riknstu konu heimsins", Bar- böru Hutton. Og nú kvað annar Dani vera trúlofaður miljónastúlku, Debóru Leonard. Hann heitir Fred Jensen og er ‘27 ára gamall. Fædd ist hann í Faaborg en fluttist þaðan til Kanpmannahafnar og varð skips- drengur á skipi er sigldi til Ameríkn. Svo ílentist hann þar og lagði á margt gjörfa hönd, m. a. varð hann iþróttakennari mágs síns tilvon- andi og við það mun hann hafa komist i kynni við stúlkuna. Og nú er hann að nema læknisfrœði.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.