Fálkinn - 14.03.1936, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
VHCS/ftf
U/SNbUKHIR
í dag skulum við byrja á nýjum
flokki af samsetningarþrautum, sem
rutt hefir sjer rúms meðal krakka
út um allan heim og heitir Kombi.
Það reynir bœði á eftirtekt og liug-
vit að finna hvernig á að ráða sam-
setningarþrautirnar, en fyrst um
sinn kemur ein í hverju blaði. Lausn
kemur svo að jafnaði í næsta blaði
á eftir.
Hjerna sjáið þið sjálft samsetninga-
spilið. Þið límið það á þykkan pappa
og klippið það siðan sundur eftir
breiðu linunum, þannig að sami
tölustafur sje á hverri úrklippu. Enn-
þá betra er að teikna myndina á
krossvið og saga hana síðan eftir
breiðu línunum.það verður haldbetra.
Þið fáið út úr spjaldinu 8 myndir og
er engin eins í laginu, samanstand-
andi af 1, 2, 3 eða fjórum ferhyrn-
ingum.
Það borgar sig að ganga vel frá
spilamyndunum í upphafi, því að
þið þurfið að nota þær aftur og aftur,
þegar nýjar þrautir koma í Fálkan-
um.
MinnisvarSinn.
Hjerna kemur svo fyrsta þrautin:að
leggja saman partana þannig að úr
þeim verði mynd af minnisvarðanum
sem sjest hjer að ofan.
Ofurlitið oáinapróf.
Skátaforinginn þurfti að velja sjer
undirforingja og benti á þrjá drengi,
sem hann áleit vel fallna til þess að
taka að sjer starfið, en var alveg i
vandræðum með að komast að þvi
hver þeirra væri hæfastur. Og þá
tók hann til bragðs að láta þá ganga
undir gáfnapróf og það var svona:
(Iteynið hvort þið munduð hafa stað-
ist prófið).
Hann sýndi drengjunum, sem hjetu
Pjelur, Siggi og Hannes finmi papp-
írsmiða og voru þrír þeirra hvítir
en tveir rauðir. Svo batt hann fyrir
augun á þeim og límdi einn miða á
ennið á hverjum þeirra, en faldi mið-
ana tvo, sem eftir voru og leysti
svo klútinn frá augum þeirra. (Jeg
skal nú svona hinsegin trúa ykkur
fyrir því, að þeir voru allir með
hvítan miða á enninu).
Nú áttu drengirnir með þvi að
skoða hver annan, hver um síg segja
til um, hvort hann hefði sjálfur
rautt eða hvítt merki á enninu. Það
eina sem þeir fengu að vita var, að
þeir stæðu allir jafn að vígi með að
geta rjett.
Það liðu ekki margar mínútur
þangað til Pjetur hafði leyst gátuna
og lýsti yfir þvi, að hann væri með
hvítt merki á enninu.
— Alveg rjett, en af hverju ræð-
urðu það? sagði skátaforinginn.
— Það er ofur einfalt mál, svaraði
Pjetur. — Þ'ví að hefði jeg rautt
merki á enninu, mimdi t. d. Hans
auðveldlega geta giskað á að hans
merki væri hvítt, því að í því tilfelli
að hann hefði líka rautt merki,
mundi Siggi undir eins geta sagt með
vissu, að hann væri með hvítt merki,
úr því að hann sæi rautt á okkur
báðum, en þau rauðu voru ekki nema
tvö. Og þegar því var lofað, að allir
skyldu standa jafnt að vígi með að
ráða gátuna er ekki önnur lausn til
en sú, að við höfum allir hvita miða.
Pjetur fjekk hrós fyrir svarið og
var undir eins gerður að foringja.
En nú skaltu leggja svona gátu fyr-
ir kunningja þína og sjá, hvort hún
stendur ekki í þeim.
Setjið þið saman!
7.8
Þrenn verdlaun: kr. 5, 3 og 2.
1 .........................
2 .........................
3 .........................
4 .........................
5 .........................
6 .........................
7 .........................
8 .........................
9...........................
10............................
11............................
12............................
Samstöfurnar:
a-—a—a—ar—ár—ef—en—ir—i—i —i
—ín—jós—land—lon—mann—naf—
nams—njól—ó—ós—-rou—soff—tou—
tyrk—vor—y—ynd—ýms.
1. Heimspekilegt kvæði.
2. Jötunn.
3. Kvenheiti.
4. Mannsnafn.
5. Borg i Frakklandi.
(i. Kvenheiti.
8. Leiðindi.
9. Land i Evrópu.
10. Borg í Frakklandi.
11. Dýrmæt tönn (enska).
12. Bær i Noregi.
Samstöfurnar eru alls 29 og á að
setja þær saman í 13 orð í samræmi
við það sem orðin eiga að tákna,
þannig að fremstu stafirnir í orð-
um, taldir ofan frá og niður og öft-
ustu stafirnir, taldir að neðan og
upp, myndi nöfn tveggja ísl. leik-
rita.
Strykið yfir hverja samstöfu
um leið og þjer notið hana í orð og
skrifið nafnið á listan til vinstri.
Nota má ð sem d og i sem í, a sem
á, o sem ó og u sem ú.
Sendið „Fálkanum", Bankastræú
3, lausnina fyrir 30. apríl og skrifið
nöfnin í horn umslagsins.
HANDA ÞEIM MINSTU.
Myndlitun.
Hjerna sjáið þið mynd af litlu syst-
ur vera að aka vagni. Límið myndina
á gamalt póstkort og klippið út úr
því eftir strykinu og litið það svo
ineð sterkum litum. Hjólið er klipt
út fyrir sig og borað gat á það og
vagninn, þar sem svörtu blettirnir
eru. Svo er það fest á með pappírs-
loku, en gatið haft svo vítt, að hjólið
geti snúist. Og þá er vagninn búinn.
SPURNING í MYNDUM.
1. IívaÖ heitir stærsta skip heims
ins?
2. Iíver er núverandi heimsmeistari
í hnefaleik (þyngsta flokki).
3. Hver er þetta?
4. iívað heitir hæsta fjall heimsins?
5. Hver vann kappflugið frá Eng-
landi til Ástralíu í fijrrahaust?
6. Hvaffa stofnun hefir þessa tákn-
mgnd?
Svarið kemur i næsta blaði.