Fálkinn - 28.03.1936, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
PETER FREUCHEN FIMTUGUR.
Hinn kunni danski Grænlandsfari
og rithofundur Peter Freuchen varð
nýlega fimtugur. Er hann fæddur í
Nyköbing á Falstri. Hann tók þátt í
Danmerkur-leiðangrinum til Græn-
lands 1906—08 og hefir síðan þrá-
sinnis verið í Grænlandi og ferðast
þar eða dvalið í nýlendunni Etah,
sem er nyrsti mannabústaður á vest-
urströnd Grænlands. Oft var hann i
ferðum með Knud Rasmussen og
voru þeir aldavinir. Árið 1932 rjeðist
hann í kvikmyndaleiðangur til Al-
aska með ameríkönsku fjelagi og
vann fyrir það næstu ár og dvaldi þá
í Hollywood. Hefir kvikmynd eftir
hann náð mikilli hylli. Freuchen hef-
ir ritað ýinsar bækur, þar á meðal
hók um Knud Rasmussen og ýmsar
ferðabækur, svo sem „Flugið til
Suður-Ameríku" óvenju skemtilega
sögu af ferðalagi sem hann fór í
fiugvjel. Hann hefir oft komið hing-
að til lands á ferðum sínum til
Grænlands.
Frú Guðlaug Fjeldsted, Njáls-
götu 75 varð 85 ára 22. þ. m.
Að því er rússnesk hlöð herma
hefir kafarinn Konstaninov verið 18
tíma samfleytt á hafsbotni i einu og
cr það talið heimsmet. Hann var að
vinna að þjettingu skips, sem sokkið
tiafði við Murmanskströnd og varð
að hraða verkinu.Kafarínn var þreytt-
ur eftir en algerlega ómeiddur á öll-
um líffærum.
----x----
Forsætisráðherrann i Saskatcewun,
Patterson, kvartaði nýlega i fyrir-
Fyrir skömmu gerði svo mikið
fannkyngi í Danmörku að til vand-
ræða horfði. Járnbrautarlestirnar
lcomust ekki áfram og farþegarnir
urðu að bíða matarlausir eftir því, að
þeim kæmi hjálp, en hennar var víða
langt að bíða, vegna þess að vitan-
lega teptíst bilaumferð líka. í sum-
um bæjum varð tilfinnanlegur mjólk-
urskortur og öðrum markaðsvörum
sinum komu bændur ekki frá sjer
heldur, svo að sláturhúsin stóðu að-
gerðarlaus, og engar útflutningsvör-
ur var hægt að afgreiða. Er talið,
að stöðvun þessi hafi kostað danska
bændur mörg hundruð þúsund krón-
ur. — Þeir einu sem græddu á snjó-
komunni voru snjómokstursmenn-
inrir, sem fengu góða vinnu við að
ryðja vegina á ný. Er sjaldgæft að
svona fannkyngi komi í Danmörku.
lestri sem hann hjelt í kvenfjelagi
einu yfir ágengni þeirri sem liann
liefði orðið fyrir á hlaupársdaginn
síðasta. Patterson er sem sje pipa.'-
sveinn Hann hafði fengið hrúgur ai
bónorðsbrjefum, en þó lýstu
flest brjefin frekar aurasýki en ást,
því að þar væri skýrt tekið fram
livað stúlkurnar vildu fá, ef ekki
yrði úr hjónabandi. Sumar heimtuðu
hðkápur, þær lítilþægustu hanski
cða sokka og sumar kjóla og voru
meira að segja svo fyrirhyggjusam-
ar að láta fylgja mál af sjer til þess
að greiða fyrir afgreiðslunni
Prag-kvartettinn.
í júní næstkomandi er von hingað
á fjórum frægum hljómlistarmönnum,
hinum svonefnda Prag-kvartett. Kem-
ur hann hingað á vegum Tónlistar-
skólans, sem hefir fengið leyfi yfir-
valdanna til jiess að kvartettinn haldi
hjer þrjá hljómleika. — Prag-kvart-
ettinn er frægasti kvartett heimsins
i sinni röð, hefir árum saman verið
ÞÝZK FLUGVJEL NAUÐLENDIR.
Mynd þessi er tekin í höfninni í
Helsingjaeyri og sýnir þýsku flug-
vjelin 60 F12, sem fvrir skömmu
varð að neyðlenda í Kattegat. Dönsk
fiskiskúta frá Skagen fann flugvjel-
ina og tókst að draga hana til Hels-
ingjaeyrar og bjarga henni frá
skemdum. Vjelin er „Dornier Val“,
sama gerðin og Locateili notaði i ís-
landsflugi sínu forðum og sem Gron-
au flugforingi flaug á hingað og til
Ameríku.
dáður af hljómlistarunnendum stór-
borganna. Sjest hjer mynd af honum.
Frá vinstri: L. Cerný tónskáld, sem
leikur á viola, Herbert Berger for-
stjóri fiðluskóla tónlistarháskólans i
Prag, og leikur á 2. fiðlu, þó WHy
Schwedja prófessor (1. fiðla) og loks
Ivan Vectomov cello-leikari.