Fálkinn


Fálkinn - 25.04.1936, Blaðsíða 2

Fálkinn - 25.04.1936, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N ------- GAMLA BÍÓ ------------ Ball á Savoy. Þýsk óperettumynd með söngv- um og musik eftir Paul Abraham. Aðalhlutverkin leika GITTA ALPAR, FELIX BRESSART, HANS JARAY. Aukamynd: HNEFALEIKUR MAX BAER og JAMES BRADDOCK 13. júní 1935 Sýnd bráðlega. Þelta er óperettumynd eftir Paul Abraliam, sem sjálfur stjórnar tón- leikunum i myndinni. Gerist hún í Budapesl og aðalpersónan er fræg söngkona, sem heitir Anita Helling og lifir þar á einu lielsta gistihúsi borgarinnar ásamt einkaritara sín- um. Leikur Gitta Alpar söngkonuna en einkaritari hennai er hinn ágæti skopleikari Felix Bressart, sein nú hefir ekki sjest hjer í kvikmyndum lengi vel. Er hann i myndinni svo skoplega vandræðalegur, að það er ómögulegt annað en hlæja sig mátt- lausan að honum. Eitt sinn missir söngkonan dýr- mæta loðkápu fram af svölunum sem hún situr á. Ungur aðalsmaður, barón von Wollheim tekur upp káp- una og fer upp með hana. Hún held- ur að maðurinn sje þjónn á hótelinu og gefur honum vikaskilding. Þannig urðu fyrstu samfundir þeirra. Hann verður þegar í stað ástfanginn af söngkonunni en tekur það til bragðs að látast vera þjónn og mútar ein- um þjóninum til þess að ganga í lians stað og fá tækifæri til að bera á borð fyrir hana. En eigi tekst hon- um betur en svo að leika þjóninn, að hún kemst hráðlega að því, að ekki muni alt vera með feldu og að maðurinn sje aðalsmaður. Hún verð- ur ástfangin af honum og leiðist lil að taka boði hans um að koma með honum á dansleik, sem halda skal á Savoy-hótelinu. Á þeim dansleik ber margt til tíðinda, því að þar rekur hver misgáningurinn og mis- skilningurinn annan, svo að alt lend- ir í einni flækju, eins og oft verður í óperettumydum, en þó greiðist vit- anlega úr öllu að lokum og myndin endar með giftingu. Söngurinn í myndinni er ágætur og skemtilega með efnið farið. Bar- óninn er leikinn af kvennagullinu Hans Jaray og ýmsir aðrir góðir leikendur koma fram í myndinni, svo sem Otto Walburg, sem leikur þarna tónverkaútgefanda og Willy Stettner, er leikur þjón á hótelinu og hefir tekið að sjer að hafa lilut- verkaskifli við baróninn. Rosi Bár- sony leikur unga og laglega stúlku. Mynd þessi er leikin af City-Film í Budapest og leikstjórin er ungverj- inn Stefan Szekely. Er hún sjerlega íburðarmikil og gefur lítið eftir bestu ameríkönskum myndum af því leyti. Hún verður sýnd i GAMLA BÍÓ. Sagan endurtekur sig: Eva var mjög fáklædd á yngri árum. H. G.Wells f Hollywood. Hinn heimsfrægi enski rithöfundur H. G. Wells dvelur nú í Ilollywood og fæst við kvikmyndagerð. Hann hefir hætt ritstörfum, í bili a. m. k„ og það vakti mikla athygli, er hann sagði það nýlega í blaðaviðtali að kvikmyndir ættu nú hug hans allan. Wells er að lúka við að gera kvik- mynd eftir bók sinni „The Shape of Things to come“ ásamt kvikmyiula- snillingnum Alexander Korda. Er talið að þetta verði ein stórfengleg- asta kvikmynd, sem gerð liefir verið. Jafnframt verður hún fram úr hófi frumleg og öll húsgögn í henni eru úr gleri og stáli. Um þetta er m. a. sögð þessi saga: Stjarnan Margaret Scott, sem leikur aðal-hlutverkið á á einum stað að leggjast á glerdivan og er látin liggja þar langan tíma í ástaratlotum. Veslings Margaret fekk afleitt kvef af að liggja á köldu glerinu og átti hún erfitt með að leika hlutverk sitt lil enda. Er nú sagt að hún sje hættulega veik. — Já — tískan getur gengið langt. ■— Áður liefir verið kvikmynduð bók Wells „Ósýnilegi maðurinn“ og þótti takast prýðilega. Mynd þessi var sýnd við mikla aðsókn i Englandi og þótti bráðskemtileg eigi síður en bókin. Bækur Wells hafa verið þýddar á flest tungumál heims. Síðastliðið haust kom bók hans „Ósýnilegi mað- urinn“ út í islenskri þýðingu. Þjóðernisalda sú, sem nú gengur yfir Egyptaland og ýfst hefir við hernað ítala i Abessiníu, hefir með- al annars gert sín vart í því, að nu krefjast Egyptar hlutdeildar í „þeim stórgróða“, sem skurðurinn hafi af -— Þjer megið ekki láta mig verða of seinan á brautarstöðina, sagði gesturinn er verið hafði í vikulieim- sókn hjá kunningja sínum, við öku- manninn sem fór með hann. — Nei, yður er óhætt að reiða yð- ur á það, svaraði ekillinn. — Hann húsbóndi minn sagðist reka mig úr vistinni, ef jeg yrði of seinn. auknum flutningum vegna hernaðar- ins. Auk þess krefjast þjóðernissinn- ar að fá hlutdeild í stjórn skurðfje- lagsins og að Egyptar skipi það starfsfólk, sem vinnur fyrir fjelagið innan landamæra Egyptalands. ------- NÝJA BÍO ------------- Söpr lír Wienarskógi. (GESCHICHTEN AUS DEM WIENERWALD) Ljómandi falleg söngmynd frá Wien vorra daga, tekin af Mondial Film undir stjórn Ge- org Jakoby. Aðalhlulverkin leika MAGDA SCHNEIDER, WOLF ALBACH-RETTY, GEORG ALEXANDER, TRUUS van ALTEN G og hinn heimsfrægi söngvari: LEO SLEZAK. Sýnd bráðlega. Þessi söngleikur er bygður á lög- um eftir Johann Strauss, sem öll Vínarborg syngur. Og lil aðstoðar við myiulatökuna var hið fræga fil- harmoniska orkester í Wien fengið ti! þess að annast um tónlistina, svo að ekki verður kosið á hana betri. Aðalpersónurnar í myndinn.i eru ungur en fátækur greifi, sem verður að hafa ofan af fyrir sjer með bílaviðgerðum, og tvær ungar stúlkur, önnur fátækur rithöfundur sem er að kynna sjer Vínarborg til að skrifa bók um lífið þar, en hin ung ameríkönsk miljónamærings- dóttir, sem er orðin leið á lióglíf- inu og vill vinna fyrir sjer, en er ekki látin i friði fyrir frænda sínum einum, sem hefir verið sendur á eftir benni til Evrópu. Til þess að villa heimildir á sjer hefir hún lilut- verkaskifti við liina stúlkuna, Millie Sheffers, og ræðst til bifreiðakaup- mannsins (Georgs Alexanders) sem fátæki greifinn vinnur hjá. Nú verða þeir ástfangnir i stúlkurium og segir myndin skemtilegíj frá því hver á- hrif það liefir, að stúlkurnar hafa skift um hlutverk. En alt fer vitan- lega vel, eins og i ölluin óperettu- myndum. Ungu slúlkurnar eru leiknar af Mögdu Schneider og Truus van Alten en fátæki greifinn af Wolf Albacli- Retty og bifreiðasalinn af Georg Al- exander. Eitt hlutverkið leikur hinn frægi söngvari Leo Slezak, sem er jafnfrnmt ágætur gamanleikari eins og þeir vita, sem' liafa sjeð hann leika í kvikmyndum. Þá er eitt hlut- verkið i myndinni, gamall maður sem á að sýna ameríkönsku stúlkunni Vínarborg, einkar skemtilega leik- ið af Oscar Sabo. — Leikstjórnina hefir Georg Jakoby annast og er myndin tekin af Mondial Film í Wien. Söngvarnir i myndinni eru einkar aðlaðandi og yfir allri mynd- inni hvílir skemtilegur og viðfeld- inn Wienarblær, sem lokkar og lað- ar. Það má óhikað ráða öllum til þess að sjá þessa mynd. Verður sýnd í NÝJA BÍÓ innan skamms. Bóridi einn var að gorta af því að hann hefði svo dæmalaust minnugan vinnumann og kunningi hans einsetti sjer að reyna hvað hæft væri í þessu. Daginn eftir hittir hann vinnumann- inn úti á túni að slá og spyr hann: „Þykja þjer góð egg? — „Já“, svarar vinnumaðurinn. Ári siðar kemur mað urinn aftur á bæinn og hittir vinnu- manninn þá líka út á túni að slá, víkur sjer að honum og segir: „Hvernig?“ — „Linsoðin, með pip- ar“, svaraði vinnumaðurinn. Ingrid prinsessa að liorfa á heræfingar og situr uppi i bílnum. Þetta er nýr spítali fyrir efnaskifta-sjúkdóma, sem reistur hefir verið í Gentoftc við Khöfn. Er spítalinn reistur fyrir ágóðann af framleiðslu sykursýkismeðalsins „insulin", sem Danir framleiða fyr nær allan heiminn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.