Fálkinn


Fálkinn - 25.04.1936, Síða 9

Fálkinn - 25.04.1936, Síða 9
F Á L K 1 N N 9 GEORGES SIMENON: Líkið á krossgötunum. svarta augnagler? Starandi gleraugað, í rauðu holdinu!“ Gað fór um hana hrollur. „En hann felur yður líka“. „Hvað gerir það til?“ „Yður er fórnað“. „Það eru örlög konunnar .... einkum systranna .... þetta er ef til vill ekki venja í Frakklandi. Hjá okkur, eins og í Englandi, erfir elsti sonur nafn og óðal, og lil hans eins er tillit tekið“. Hún var farin að gerast óþolinmóð. Hún saug sígarettuna örar og hljes út úr sjer þykkum reykjargusum. Hún gekk fram og aftur um gólfið og sólargeislarnir ljeku um hana. „Nei, Carl liefir sennilega engan mann drepið .... hjer hlýtur að vera um mis- skilning að ræða .... er það ekki einmitt vegna þess, að þjer hafið komist að þeirri niðurstöðu, að þjer Ijetuð hann lausan? Ef það er ekki . . . .“ „Hvað þá?“ „Nei, þjer munduð eflaust ekki kannast við það .... jeg veit, að það kemur fyrir, þegar lögreglan hefir ekki fullnægjandi sannanir, að grunaðir menn eru látnir laus- ir til þess að ná betri tökum á þeim síðar .... það væri lúalegt". Hún þrýsti sígarettunni ofan i postulíns- skálina. „Jeg vildi óska þess, að við hefðum ekki tekið okkur bólfestu hjer, á þessum ömur- legu krossgötum. En Carl, vesalingurinn, þráir einveru. En hjer er raunar miklu síð- ur um einveru að ræða en í þjettbygðum Iwerfum Parísarborgar.....Beint á móti okkur, hjónin, sem þjer kannist við. Ómögu- legir og hlægilegir smáborgarar, sem leit- ast við að njósna um allar okkar athafnir .... einkum konan, með skakkan hárhnút- inn á hnakkanum .... og svo bifreiðaskál- inn, þrír flokkar . . þrjú vígi, gæti riiaður sagt, í jafn langri fjarlægð hvert frá öðru“. „Hafið þjer átl nokkur mök við Mic- honnets-fólkið“. „Nei, — maðurinn hefir komið hingað nokkrum sinnum til þess að bjóða okkur trvggingar. Carl rak hann á dyr“. „En skálaeigandinn?“ „Hann stigur lijer aldrei fæti“. „Það var bróðir yðar, sem rjeði því að þið flúðuð á sunnudagsmorguninn ?“ Hún þagði stundarkorn, var niðurlút og kafrjóð. „Nei“, svaraði hún loks, svo lágt, að varla heyrðist. „Rjeðuð þjer því?“ „Já. En jeg var alls ekki búin að lnigsa málið. Jeg varð sem vitstola út af tilhugs- uninni um það, að Carl hefði ef til vill framið g'læp .... Kvöldið áður hafði hon- um liðið svo ákaflega illa .... svo að jeg fjekk hann til þess að fara með mjer“. „Fullvissaði hann yður ekki um það, að hann væri saklaus?11 „Jú ....“. „Þjer trúðuð honum ekki?“ „Ekki þá strax“. „En nú?“ Hún gaf sjer tíma til að leggja áherslu á hvert einstakt atkvæði. „Jeg held, að þrátt fyrir öll óhöpp hans, sje það óhugsandi, að bróðir minn geti framið glæp, sje hann með fullu ráði .... en heyrið þjer nú, fulltrúi, hann kemur sennilega bráðlega heim aftur .... Ef hann kæmi nú að yður hjer, þá má drottinn vita, hvað honum kjmni að detta í hug“. Og hún hjelt áfram, og var nú jafnvel ekki Irútt um, að bæri á augnagælum, það lá við, að látbragðið væri ögrandi: „Þjer ætlið að gera yður far um að reyna að skilja hann, er það ekki? Þjer reynið að losa hann úr þessu máli? Hvað jeg skyldi verða yður þakklát ....“. Hún rjetti honum hendina, og um leið rann sloppurinn enn einu sinni ofan af öxl- inni. „Verið þjer sælir, herra fulltrúi". Hann þreif hattinn sinn og gekk á lilið út úr stofunni. „Viljið þjer gera svo vel, að aflæsa hurð- inni, svo að hann verði einskis var“. Skömmu síðar fór Maigret ofan stigann, gekk í gegnum salinn með hinum sundur- leita húsbúnaði, út á grasflötina, sem var böðuð sólskini, sem þegar var tekið að verma loftið. Á veginum drundi í bifreiðum. Það ískr- aði í hliðhjörunum, þegar hann opnaði hliðið. Þegar hann kom að bifreiðaskálan- um, var kallað til hans háðslega: „Nei, nú er jeg hissa! Þjjer eruð ekki huglaus". Þetta var hinn smáborgaralegi og sikáti herra Oscar, og hann bætti við: „Jæja, eruð þjer búinn að ákveða vður um að þiggja einhverja hressingu? Herr- arnir frá sakamála-rjettinum eru þegar farnir aftur. Þjer hafið eflaust augnablik aflögu ?“ Maigret hugsaði sig um, og gretti sig, af því að vjelamaðurinn var að sverfa málm- bút með þjalarbroti. „Tíu litra“, kallaði bifreiðarstjóri, sem var að nema staðar hjá einni dælunni. „Er hjer enginn maður viðlátinn?" Herra Miehonnet, sem enn var órakaður og flibbalaus, var á rölti i garðkrílinu sínu, og gægðist út. á veginn, milli rimlanna. „Loksins“, varð Oscar að orði, þegar hann sá, að Maigret ætlaði að láta undan með það, að koma með honum inn i húsið. „Mjer fellur vel við fólk, sem ekki lætur ganga á eftir sjer. Það er öðru vísi en um fína fólkið í húsi ekknanna þriggja“. V. MANNLAUSA BIFREIÐIN. „Þessa leið, fulltrúi .... það er ekki um neitt prjál að ræða hjá okkur, eins og þjer munuð skilja .... við erum ekki annað en algengl verkafólk“. Hann hratt upp útihurðinni á íbúðarhús- inu, sem var á bak við skálann, og var þá komið fvrst inn í eldhúsið, sem einnig var nolað sem borðstofa, því að þar stóð enn dúkað borð frá morgunverði. Þar var fyrir kona í morgunkjól, og var hún að fægja koparketil. „Kom-þú hjerna, vina mín, jeg ætla að kvnna þig Maigret lögreglufulltrúa .... þetta er konan min, fulltrúi .... Og takið eftir því, að þó að við höfum vel efni á þvi að halda vinnukonu, gerum við það ekki, jiví að J)á hefði konan ekkerl að gera og mundi drepast af leiðindum“. Hún var hvorki ófríð nje snotur. Senni- lega var hún um þrítugt. Flíkurnar sem hún var i voru fátæklegar, en hún var fáklædd og j)ó fjarri því að vera girnileg. Hún var vandræðaleg, j)ar sem hún stóð J)arna frammi fvrir Maigret, og hafði ekki augun af manni sínum. „Viltu gefa okkur einn aperilif, vina mín .... Hvað segið þjer um sólberjalíkjör, full- trúi? .... Þjer viljið ef til vill heldur setjast inn i stáss-stofu? .... Ekki það ? .... Það líkar mjer þeim mun betur .... Alt er jafn- an hest sem brotaminst .... finst þjier það ekki líka, ljúfan mín? .... Nei, ekki j)essi glös! Stór glös!“ Hann settisl klofvega yfir stól. Hann var í rauðri skvrtu, vestislaus og hjelt höndun- um um ýstruna, ofan n)eð buxnahaldinu. „Hún er hýsna girnileg, hofróðan ])arna i húsi ekknanna ])riggja, eða livað finst yður? .... Þó máske sje nú ekki viðeigandi að hafa orð á þvi, að konunni minni áheyrandi, .... en okkar á milli sagt, þá er ])að ásjá- legur kvenkoslur .... Það eru bara vand- ræði með liann hróður hennar .... riddar- ann i rolulíki, sem gætir hennar eins og hún væri fangi .... Það er sagt, þar að auki, að hann loki hana inni, ef hann þarf sjálft s að skreppa að heiman, og hann kve loka hana inni á nóttunni .... Finst yður vcra nokkur systkina-bragur á |)essu, he? Jæja, — skál. Æ, vina min, segðu lionum Jojo, að hann megi ekki gleyma að gcra við Dardy-bifreiðina“. Maigret leil lil gluggans, því að hann heyrði hvin í mótor, sem honum fanst minna sig á fimm hesta bifreiðina. „Það er ekki hún, fulltrúi .... Jeg get sagt vður |)að nákvæmlega, þar seni jeg sil hjerna, og þó að jeg liafi lokuð augun, hverjir aka hjer framhjá, um ])jóðhraidina .... Þetta er gamall skrjóður, sem er eign vérkfræðingsins á rafmagnsstöðinni .... er- uð þjer að búast við því, að burgeisinn komi aftur?“ Klukka, sem stóð á hillu i einu stofu- horninu, sló ellefu. Gegnum dyr, sem stóðu opnar, sá Maigret úl i gang, þar sem tal- síma-áhald hjekk á vegg. „Þjer drekkið ekkert .... Skál, upp á góðan árangur .... Finst vður ekki, að. þetta vera kindugt mál? Þetta uppátæki, að hafa skifti á bifreiðunum, og einkum þó það, að stela sex sívalninga bifreiðinni frá veggjalúsinni þarna, hinumegin við götuna. Því að hann er ekkert annað en veggjalús. Þjer getið bölvað yður upp á það, að við erum búin að fá nóg af nábýlinu við hann. Jeg hefi gaman af því að sjá vður hjer á rölti, og mesl hefi jeg þó gaman af því, þeg- ar þjer eruð að mæla menn með augunum, »eins og þjer grunið alla .... jeg skal segja vður, að konan min á frænda, sem líka var í lögregluliðinu .... fjárglæfra-deildinni. A hverjum degi þurfti hann að vera við-

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.