Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1936, Page 9

Fálkinn - 20.06.1936, Page 9
FÁLKINN 9 í Gyðingalandi hefir ali logað í 6- friði síðustu vikurnar, svo að Eng- lendingar hafa orðið að flytja þang- að her til þess að hæla uppþotin niður. Það eru Arabar, sem hafa ó- kyrst svonan til þess að mótmæla hinum sívaxandi innflutningi Gyð- inga. En jafnframt er óeirðunum stefni gegn Bretum. Hjer á mynd- inni sjást enskir hermenn á verði á veginum milli Jaffa og Tel Aviv. Myndin að neðan er frá Addis Abeha og tekin rjett áður en ítalir tóku borgina. Lenti þá alt í upp- námi og sluppu þeir best, sem höfðu vit á að flýja, því um það leyti sem ítalir komu lenti þarna í blóðugum bardögum og stigamenn óðu uppi og drápu, rændu og lögðu eld að húsum. Gamla danska freigátan „Jylland“ hefir verið gerð að sumarheimili ungmenna, sem búa þar um borð og njóta lífsins. Á myndinni hjer að ofan sjest söngflokkur drengja, er aðstoðaði við vígslu skipsins, en á ræðustólnum Godfred Hansen kapteinn, sem mest og best hefir beitt sjer fyrir því, að varðveita skipið frá niðurrifi. 1 Kaupmannahöfn er síopin sýning fyrir listiðnað og hefir sýning þessi verið ankin mikið nýlega. Er þar alt sem nöfnum tjáir að nefna, einkum innanstokksmunir allskon- ar. Krónprinsinn er verndari þess- arar sýningar og opnaði hann hina stækkuðu sýningu. Á myndinni til vinstri sjest Ingrid krónprinsessa vera að prófa stóla á sýningunni.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.