Fálkinn


Fálkinn - 03.04.1937, Blaðsíða 7

Fálkinn - 03.04.1937, Blaðsíða 7
F Á L K I N N 7 vjel. Vjelin var með smíðamerki fíélfast Wórks. Get ímyndað mjer að þessar upplýsingar geti gefið skgringu á hinu dularfulla m(di. Theo Erwin. New York etc." Opinberi ákærandinn var liá- tíðlegur á svipinn þegar hann rjetti dómaranum skeytið. Hvað á maður að gera með þetta? spurði hann óþolinmóð- ur. Þegar maðurinn lenli klukk- an 634 i flugvjel fyrir utan New York getur hann ómögulega hafa framið morð í Amsterdam sama morgun klukkan 8. Hann ætlaði að leggja sim- skeytið hjá málsskjölunum en varð i sama bili litið á sakborn- inginn. Hann iiafði alt í einu orðið náfölur, andlitsdrættir lians voru gjörbreyttir og hann lijelt sjer dauðalialdi í riðið fyr- ir framan bekkinn sem hann sat á. Dómarinn blaðaði i mál- skjölunum: — Þjer liafið haft atvinnu i Englandi, og i Belfast. Nú jæja, það gerir hvorki til nje frá. En hvernig komust þjer til Amer- íku? Með hvaða ski])i ()g live- nær? Jeg get ekki sagt frá því. Jeg fór vestur sem blindur far- þegi. En hvernig komust þjer framhjá innflytjendastöðinni á Ellis Island? Hjer er vegabrjef- ið yðar, og á því er enginn land- göngustimpill. Jeg stalst frambjá vörð- unum. Eii livað er um þessa flug- vjel? Hafið þjer l’logið i Amer- iku „Ekki svo jeg viti“. Rjetturinn ákvað eigi að síð- ur að yfirlieyra Theo Erwin í New York. Og það borgaði sig. Þegar rjettarhöldin hófúst daginn eftir lá fvrir' eftirtektarvert símskevti frá lögreglunni i New York. I mýri einni ekki langt frá staðn- um sem Erwiu liafði tiltekið bafði fundist flugvjel. Belfast Works höfðu líka gefið s.ig fram. Scotland Yard tilkynti rjettinum að fyrverándi bilstjóri hjá Belfast Works, John Camj) sennilega sami maðurinn og Jón Kampus hefði horfið i maí um vorið og með honum flugvjel af sjerstakri gerð, sem smíðuð liafði verið fyrir her- stjórn austur í Asíu. Það var liáloftsflugvjel af nýjustu gerð. með loftþjettum klefa og súr- efnistækjum til öndunar. Scot- land Yard mæltist til þess að John Camp yrði hafður i gæslu, hvað sem úrslitum morðmálsins liði, þgngað til rjetlinum bærisl kæra á hann fyrir þjófnað á flugvjelinni. Játið þjer þennan þjófnað á yður? Eruð þjer John Camp? spurði dómarinn nú hinn á- kærða. Þjer sjáið að þá fæsl ný sönnun fyrir sakleysi yðar i morðmálinu. Voruð það þjer, ÞEKKIRÐU LANDIÐ? Hjer birtist fyrsta myndin af þrettán, sem lesendur Fálkans eru beðnir um að segja hvaðan sje. Myndir þær, sem koma í tólf næstu blöð- um eru allar af stöðum, sem myndir hafa birst af áður í íslenskum blöð- um og tímaritum, en hinsvegar eru þær ekki af jafnkunnum stöðum og þeim, sem birtust í getraun Fálkans forðum. Til þess að bæta þetta upp verður jafnan einhver vísbending látin fylgja hverri mynd, svo að hægra sje að vita hvaðan þær leru. Þeir sem hlutskarpastir verða í samkepninni fá eftirtalin verðlaun: I. verðlaun: 30 krónur. II. verðlaun: 15 krónur. III. verðlaun: 7.50 krónur. Fyllið út seðil þann, sem fylgir hverri mynd og safnið þeim saman. Sendið þá alla í EINU LAGI þegar getrauninni er lokið, til AFGREIÐSLU FÁLKANS, BANKASTRÆTI 3, REYKJAVÍK. Svörin verða að vera komin til afgreiðslunnar fyrir 15. ágúst, því að þann dag verður dæmt um ráðningarnar. ÞEKKIRÐU LANDIÐ? 1. sem lentuð stolnu flugvjelinni fyrir utan New York þann 10. júlí klukkan 6% árdegis? Hinn kærði stóð upp og varð niðurlútur. Hann hugsaði sig um. Svo sagði hann fastmæltur: Já, jeg meðgeng þjófnað- inn. Jeg stal flugvjelinni og smyglaði benni til New York. Herra ákærandi, sagði dómarinn. Rjetturinn biður vð- ur um álit yðar í málinu. Þjer takið morðákæruna aflur? Með þessum upplýsingum ætti það að vera fullsannað, að hvað morðið snertir þá Jeg held kærunni fram til streytu i öllum atriðum, sagði ákærandinn. Hjer hefir eng- in fjarverusönnun komið fram ennþá. Ekki það? svaraði dómar- inn og hló. Sakborningurinn var snemma morguns hinn 10. júlí i New York, hrópaði verjand- inn. Ákærandinn hjelt áfram og vaf hinn rólegasti: Jeg hefi fengið álit kgl. flugfjelagsins bretska. í skýrslu rjettarins fyr- ir árið 1934 segir, að hraðamet flugvjela sje 435. enskar mílur á klukkustund. í háloftunum er auðvelt að auka hraðann upp í þúsund mílur. Sumar hálofts- flugvjelar eiga auðvelt með að ná þessum braða. Þetta segir það, að Jón Kampus hefur get- að flogið frá Amsterdam til New York á hálfum fjórða tíma. Og þar með er saklevsissönnun lians úr sögunni. En þjer gleymið því, herra ákærandi, að morðið var fram- ið klukkan átla, kallaði verj- andinn bæðnislega og dómar- inn kinkaði kolli til samþykkis og glotti. Ákærandinn leit rólega upp og hjelt áfram, en dauðaþögn var í salnum: Jeg hefi ekki gleymt því. Jæja orgaði verjandinn, — getur maður þá verið svaramað- ur i New. York og myrt gim- steinasalá i Amsterdam á sama tima? Já, einmitt, sagði ákærand- inn en áheyrendur göptu af undrun. Það er ofur einfalt mál. Klukkan í New York er fimm tímum á eftir klukkunni í Am- sterdam. Jón Kampus framdi morðið klukkan milli átta og níu, eftir Amsterdamtíma. Þá var klukkan i New York ekki nema þrjú. Eftir háloftsflugið gat bann lent við New York klukkan bálfsjö eftir klukkunni þar, og auðveldlega verið svara- maður í Þrenningarkirkj unni klukkan álta. - Þessvegna tek jeg ekki ákæruna aftur. Jón Kampus er sekur um morð Abrabam Lyns. Jeg ákæri hann hjermeð f>TÍr .... Það glamraði ferlega i stóru rúðunm i salnum og alt varð í uppnámi. Jón Kampus hafði blaupið á rúðuna og út á götu Sakleysissönnunin liafði brugð- ist . Snemma á þéssari öld var sagt frá því, að i Mexico kæmi út blað á stærð við frímerki og var þetta tal- ið ótrúlegt, þó menn tryðu þvi. Nú hefir franskur maður Maurice Ker- chemblat skrifaði sögu Jeanne d’Arc eftir Paul Corbanic á helming af venjulegu brjefspjaldi og þykir það met í „smámunum“. Með stækkunar- gleri er liægt að lesa allan textann, en hann er 275 linur. í þessum líú- mu eru 11.198 orð og 50.957 stafir og greinarmerki. Kerchemblat var ekki nema tvo mánuði að skrifa þetta.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.