Fálkinn


Fálkinn - 22.05.1937, Blaðsíða 2

Fálkinn - 22.05.1937, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N ------- GAMLA BÍÓ -------------- Jeg vil ekki giftast. Hrífandi og efnisrík dönsk tal- mynd frá Palladiuin. Aðallilut- verkin leika: BERTHE QUISTGAARD, LIS SMED, IB SCHÖNBERG, HENRIIÍ BENTZON. Myndin sýnd bráSlega. I'etta er dönsk gamanmynd, tek- in af Palladium undir stjórn hins góðkunna kvikmyndastjóra Lau Lau- ritzen, sem m. a. hefir stýrt töku allra þéirra mynda, sem „Stóri“ og „Litli“ hafa leikið í. Myndin snýst um kvenrithöfund einn, Uilu Hem- pel aS nafni, sem skrifar undir nafn- inu Ulla Ironica og hefir gefiS út bók um hjónabandiS, þar sem mjög er veitst aS karlmönnunum. Bók þessi vekur megna gremju allra karlmanna og stendur mesti styr um Ullu. Og þaS liggur nærri, aS bókin spilli samförum ungra lijóna, Willy Francks og Lis konu hans. Willv verSur svo hamslaus af bræSi, þeg- ar liann hefir lesiS bókina hjá konu sinni, aS engu tauti verSur viS hann komið. En til aS kinsa hann býStir skáldkonan konu hans í hálfsmánaS- ar hílferðalag meS sjer og ætlast iií aS hann jafni sig á meSaii. Á því ferSalagi ber margt skriliS viS. Förunautur þeirra kvennanna, Preben aS nafni (Ib Schönberg) er bálskotinn i skáídkonunni og hefir beSið hennar margsinnis, en ávalt fengiS hryggbrot. í ferSinni kemur nýr biSill á leikinn, Jörgen Ólafsson forieggjari (leikinn af Hinrik Bent- zen). Preben verSur fullur af af- brýSisemi gagnvart honum og veitist sú ánægja aS skáldkonan tekur fo •- leggjaranum fálega um sinn. Prebeti hefir hlæilegasta hlutverkiS i leikn- um og er dásamlega skemtilegur á koflum. En skemtilegasti hluti mynd- arinriár gerist í ferSalaginu á heim- ili gamals óSalsbónda, Sigurd Ivragh (sem leikinn er af Johannes Meyer); er þaS aSal lifsstarf hans aS safna frímerkjum og róla sjer, og lýsir þaS nokkuð manninum. Rólan er táknmynd lífsins, segir hann. ASalhlutverkin eru i höndum Berthu Quistgaard, sem lijer birtist mynd af; leikur htin skáldkonuna og karlmannahatarann af mestu prýSi og skemtilega. En ungu hjónin leika Siegfried Johansen, sem leikið hefir „charmörinn" i fjölda af dönskum mynduni, og Lis Smed, liin unga danska leikkona, sem vakiS liefir svo mikla athygli fyrir frammistöSu sína á leikhúsum í Kaupmannahöfn. Hljóriileikarnir í myndinni eru eftir Erik Fiehn, Ieiknir af hljómsveit Erik Tuxens. Þetta er þægileg skemtimynd, sem mörgum mun þykja gaman aS sjá, og fær eflaust vinsældir, eins og flestar kvikmyndir Lau Lauritzen. Hcilldór Stefánsson forstjóri verður sextugur 26. maí. jr I xnæsta bldðí „FÁLKANS“ i: föstudaginn kemur, verður stór mynd af Kerlingu, tekin af tindinum á Súlum. Skraddarinn skrifar um toðdýrarækt, en sagan er um inn- brotsþjóf, sem lendir í skritnum kring umstæffum. Hún heitir „Afrek Billy Brown“ og er eftir hinn kunna enska smásagnahöfund EIIis Harms- worth. Hafið þið komið á Hlöðuvelli? Þeir eru stórtignarlegur staður og svipmikill. Hlöðufell er einn besli útsýnisstaður yfir alt suðvestanverl ísland, hvort heldur er litið nœr eða fjær og valllendisgrundin sunnan- undii' fellinn þykir merkilegt fyrir- brigði innan um örfoka hraun ng sanda. í næsta blaði verður lýsing á útsýniTiu af þessum slóðum og á leiðunum þungaff frá Þingvöllum og til Geysis. Af Hlöffuvöllum liggju leiðir i ótal áttir. Þrjá góffar myndir fylgja greininni. í barnadálkinum er m. a. sagt frá ýmsum frímerkjum, sem komiff hafa út fyrir skemstu. Framhald er þar á myndasögunni um sjóræningjaeyji una, sem börn bíða óþolinmóð eftir. Fjöldi mynda úr ýmsum áttum verður einnig i blaðinu og upphafs- kafli að langri grein um krýningar í Englandi. Fuglar að verpa. Eins og venjulega var krían í ár komin fyrir miSjan maímánuS, því þó hún, eftir þvi sem menn best vita, komi lengst að allra farfugla, kemur víst enginn þeirra eins reglu- liundiS og hún. En þaS er hér um bil á hverju vori, aS menn eru bún- ir að sjá hana lijer, áSur en hún kemur. Venjulega eru það hettu- máfar, sem eru þar á ferð, er menn þykjast sjá kríuna; þeir eru hvítir á litinn meS svárt höfuS, og því ekki ólikari kríum, en til dæmis skjótt folald flekkóttri tík. En þaS eru oft mun ólíkari fuglar, sem menn halda að séu kriur. MaSur, sem stóS við hliSina á mjer viS Arnarhólstún, þóttist sjá kriu, en þaS var reyndar þó dálítiS sé ótrúlegt — smirill. Þrösturinn er farinn að verpa; hann á 5—6 egg. Þrestir verpa nokkuS hjer í Reykjavíkurborg, en mörg dæmi eru til þess, aS kettirnir klófesta þá, og liafa þá ungarnir drepist úr sulti og kulda. En stund- um ná kettirnir í ungana, þegar þeir eru nýkomnir úr lireiSrinu, því þrastarungarnir fara þaS nokkrum dögum áður en þeir verða fleygir. ÞaS er of niikið af köttum hér í höfuðborginni, þó þeir sjeu oft skemtilegir. Það verptu þrestir i Hressingar- skálagarSinum í fyrra, og komu út ungunum. Hreiðrið var ofan á girð- ingarstaur, og það hafði aðeius stuðning á einn veg, (upp að báru- járni); var því svo haganlega fyrir- komið, að það var alveg fast ofan á staurnum. Þrestirnir komu aftur i garðinn í vor, en tveir drengir, sem voru að leika sjer í garðinum, stygðu þá, og komu þeir ekki aftur. Það er margfengin reysla fyrir því, að það þarf litið til þess að fæla fugla frá fyrst á vorin, þegar þeir eru að húa sig undir að verpa. Lómurinn er einn af þeim sjófugl- um, sem verpa á heiðum, við tjarn- ir þar, oft við polla svo litla, að þar þrífst engin branda, og verður liann að sækja matinn handa ung- unum til sjávar, eða fjarlægra veiði- vatna, og hlýtur það að vera erfitt, því þó hann sje góður kafari, (Eng- lendingar kalla lómana kafara), þá er hann ekki vel lagaður til flugs: stór búkur meS litlum væugjum. Lómurinn á 2 egg, og eins náfrændi hans himbriminn, sem er einn stærsti og fallegasti fuglinn, sem hjer verpir. Hann verpir líka inn í landi, þó hann sje mestan hluta ársins á sjónum. Hann verpir tveim til þrem vikum seinna en lómurinn, og er því ekki farinn til þess ennþá; ger- ir það síðast i maí. Himbriminn er einn af þrein fuglategundum, sem verpa lijer á landi, en ekki annars- staðar í Evrópu, en aftur á móti i Grænlandi og Norðnr-Ameríku. Má af því ráða, að þeir himbrimar, er fyrst námu hjer land, hafi komiS Irá Vesturheimi. Fýllinn verpir í miðjum maí-mán- uði, aðallega í klettum við sjó. Sum- staðar verpir þó fugl þessi í fjöllum langt frá sjó, til dæmis í Mýrdalnum, en mestan liluta árs heldur hann sig úti á regin hafi, og nálgast ekki land vikum, eða mánuðum saman. Einkennilegt er hvað fýlnum fjölg- ar ört, þó hann eigi ekki nema eitt (hvítt) égg. Ólafur úr Keflavík (við Látrabjarg), sagði, að nú myndu verpa að minsta kosti hundr- að fýlar á Vestfjörðum, fyrir hvern einn er vtrpti þar fyrir fjörutíu ár- um. Og fýllinn er farinn að verpa viðsvegar um land, þar sem aldrei sást fýll áður, og sama sagan er sögð úr nágrannalöndunum. Loks má nefna að æðurin er far- in að verpa, og senn koma allir hin- ir fuglarnir á eftir, þvi vornóttin þokar sjer með liverjum sólarhring, úr norðrinu, lengra suður yfir Snæ- land gamla. Ólafur Friðriksson. —í-X----- NÝJA BIÓ. Ástin lifi. Ensk tal- og söngvamynd sara- kvæmt hinni víSfrægu operettu „Madame Dubarry“ eftir Millöck- ers, — AðalhlutverkiS leikur GITTA ALPAR. Sýnd bráðlega. Ýmsir minnast kvikmyndarinnar „Madame Dubarry“, sem var ein fyrsta stóra kvikmyndin, er hjer var sýnd frá Þýskalandi. Efni myndar- innar „Ástin lifir“ er einnig tekið úr sögu Madame Dubarry, en segir einkum frá því, hvernig hún varð eftirlætisgoð konungsins. Það var valdastreita tveggja aðila, sem hjer var að verki. Annarsvegar var Choi- seul forsætisráðherra konungs og sa sem mest liafði völdin, en hinsvegar var marskálksfrúin af Luxemburg. Choiseul hafði komist til valda fyrir áhrif hjákonu Lúðviks konungs XV. madame Pompadour — en þegar l»essi mynd liefst, er hún að deyja, og nú sjer marskálksfrúin af Lux- emburg sjer leik á borði, að útvega konungi nýja vinkonu, sem hlynt sje henni. Til þessa velur hún stúlkuna Jeanne, sem hefir verið rekin úr tiskubúð. En vitanlega má ekki kynna konunginum óbreytta al- þýðustúlku og þessvegna er Dubarry greifi, síblankur iðjuleysingi fenginn til að giftast Jeanne. Hún er svo kynt konungi, undir eins og hún er orðin greifafrú Dubarry og verður konungur þegar mjög hugfanginn af stúlkunni. En Choiseul ráðherra er ekki af baki dottinn. Hann fær fyr- verandi kunningja Jeanne til þess að yrkju um hana níð — og kunninginn er fús til þess, vegna jiess að hún hefir verið mjög svo afflutt við hanu — og síðan safnar hann saman Parisarlýðhum til þess að fara til konungshallarinnar og syngja þar níðið fyrir utan gluggana, svo að konungur verði fráhverfur Jeanne. En þetta fer öðruvísi en ætlað ei og leiknum lýkur með sigri Jeanne og falli Choiseul ráðherra. Þessi mynd er tekin af British International og hefir tekist mæta vel. Umgerð hennar er stórfeld og tignarleg og hvert einasla hlutverk stórt eða smátt, er skipað úrvals- leikuruin. Gitta Alpar leikur aðal- hlutverkið, madame Dubarry, en Patrick Waddington leikur kunn- ingja hennar, sem hún yfirgefur til þess að giftast greifanum. Owen Nares leikur Lúðvík XV. en Arthur Margetson hinn ljettlífa Dubarrv greifa. Tilhögun og niðurröðun efnisins er mjög lík og í óperettunni „Mad- ame Dubarry" eftir Millöcker og tónleikarnir úr óperettunni eru notaðir í kvikmyndinni. Varð óper- ette þessi mjög fræg á sínum tínia vegna þess hve hljómleikarnir \ henni þóttu góðir. f kvikmyndinni fær áheyrandinn mest af þessum hljómíeikum, en svo að auki marg- falt hetri leik en í nokkurri óper- ettu. „Ástin lifir“ verður sýnd bráð- lega í NÝJA BÍÓ. Maður nokkur í Ameríku, H. Free- man að nafni var nýlega skorinn á kviðinn vegna nýrnasteina. llann lifði af uppskurðinn og þó var steinninn, sem úr honum kom ekk- ert smásmíði: 15G5 grömml Þarna hafa Ameríkumenn víst sett eitt met- ið enn og má gera ráð fyrir að steinninn verði settur í glerbúr á náttúrugripasafn og maðurinn sýnd- ur fyrir peninga.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.