Fálkinn - 22.05.1937, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
YHCSS9W
LCS&HbURNIR
a h
Hnýtt sjómannabelti.
Nú skal jeg kenna ykkur nýti-
lega handavinnu, sem er hentug og
skemtileg, bæði i'yrir stúlkur og
drengi, og þaS er aS bregSa sjó-
mannabelti. Jeg skal segja ykkur,
aS fjöldi sjómanna i siglingum ger-
jr þetta i tómstundum sínuin á
siglingunum um höfin, og þessvegna
eru beltin kölluS sjómannabelti. T
þau er nolaS mjótt snæri, en þiS
skuluð nú ekki nola það fyrst i
stað, því aS venjulegt seglgarn er
alveg nógu gott til þess að æfa
sig á.
í búðunum getið þið eflaust feng-
ið fallega hringju eða sylgju, sem
ykkur þykir hæfileg, og ef ekki
vill betur þá getiS þið smiðað
hringjuna sjálf úr liorni eða góð-
um við. Og svo getum við byrjað.
Við notum gilt umbúðaseglgarn i
fyrsta beltið og höfum það ekki
breitt.
Seglgarnið skerum viS i fjórar
lengdir og á hver lengd að vera
átta sinnum lengri en ummálið á
þeim, sem á að nota beltið. Þessar
fjórar lengdir eru lagðar tvöfaldar
og er þeim brugðið með einfaldú
lykkju um þolinmóðinn á hringj-
unni, þar sem örvarnar á mynd 1
henda til. Verða tvær lykkjur hvoru-
megin við þornið á hringjunni.
Mynd 2 sýnir hvernig lykkjunum
er brugðið utan um þolinmóSinn,
og nú skuluð þið setja vel á ykkur
tölumerkin á þráðarendanum, því
aS þeim verðið þið að fara eftir,
þegar þið farið að bregða beltið.
Við hugsum okkur að þráðunum
sje skift i tvo flokka, a og b og nú
hyrjum við að bregða og förum að
á þessa leið:
Við byrjum með a-þráðunum og
þar eru endarnir 1, 2, 3 og 4. Lítið
þið nú á mynd A og bregðið end-
unujn 1 og 4 eins og þar er sýnt,
en haldið stöðugt í endana 2 og 3
á meðan. Þvínæst er „brugðið aft-
ur“ — eins og sýnt er á mynd B,
og þess gætt eins og áður að halda
stöðugt í miðþræðina, 2 og 3, og
tekið sæmilega fast í endana 1 og 4,
svo að hnútarnir dragist saman.
Þetta er allur galdurinn. Á sama
hátt eru næstu fjórir endarnir
hnýttir, sem verða 3 og 4 af a-þráð-
unum og 1 og 2 af b-þráðunum,
þannig að maður flytur sig ávaU
til híiðar um tvo enda í einu og
hnýtir að lokum alla b-þræðina
(1-2-3-4). Byrjar maður svo nýja
umferð koll af kolli þangað til allir
þræðirnir eru uppfijettaðir og beltið
komið. í beltis'endanum er flettað
ofurlítið lengur með miðþráðunum
fjórum, svo að endtinn verði odd-
myndaður. Endunum á þráðunum
er slungið inn í beltisendann á
ranghverfunni og að Iokum er saum-
að gegnum endann á beltinu, svo að
þræðirnir geti ekki raknað upp.
Gerðin á þessu brugðna belti sjest
á sýnisliorninu til vinstri á mynd-
inni, en að vísu er það sýnishorn af
breiðara belti en þvi, sem jeg hefi
verið að segja ykkur frá. Sýnis-
hornið er nefnilega af belti, sem
brugðið er úr 16 seglgarnslengdum
og með 32 endum. Þið getið brugð-
ið beltin eins breið og þið viljið,
ef þið aðeins mun'ið, að tala garns-
cndanna sje ávalt deilanleg með
fjórum. Og i hendi ykkar lærið þið
að velja garn af þeirri breidd, sem
ykkur finst best henta.
Þegar þið eruð að fljetta eða
bregða, er hentugast að festa hringj-
una á nagla eða eitthvað þesskonar.
Og eins er sjálfsagt að vinda alla
endana upp i smá-linykla hvern fyr-
ii' sig, svo að þeir flækist ekki sam-
an. Einhver ykkar hafa sjálfsagt ein-
hverntíma sjeð menn bregða gjarðir
eða beisli. Við þetta er likt farið að
með endana, þó að öðruvisi sje
brugðið.
----x---
Hvað er hann gamall?
Sýndu kunningja þínum þessa
löflu og láttu hann segja þjer í
hvaða dálkum aldurinn hans komi
fyrir. Legðu svo saman efstu töl-
urnar í þessum dálkum og summan
er ártalið. Segjum t. d. að aldurinn
sje 21 ár. Þessi tala er í 1., 3. og 5.
dálki og summan af efstu tölunum
í þeim er 21.
1 2 4 8 16 32
3 3 5 9 17 33
5 6 6 10 18 34
7 7 7 11 19 35
9 10 12 12 20 36
11 11 13 13 21 37
13 14 14 14 22 38
15 15 15 15 23 39
17 18 20 24 24 40
19 19 21 25 25 41
21 22 22 26 26 42
23 23 23 27 27 43
25 26 28 28 28 44
27 27 29 29 29 45
29 30 30 30 30 46
31 31 31 31 31 47
33 34 36 40 48 48
35 35 37 41 49 49
37 38 38 42 50 50
39 39 39 43 51 51
41 42 44 44 52 52
43 43 45 45 53 53
45 46 46 46 54 54
47 47 47 47 55 55
49 50 52 56 56 56
51 51 53 57 57 57
53 54 54 58 58 58
55 55 55 59 59 59
57 58 60 60 60 60
59 59 61 61 61 61
61 62 62 62 62 62
63 63 63 63 63 63
--x--
Rppelsínur
kaupmannsins.
Hjerna kemur gáfnaprófið i dag:
Kaupmaður einn hafði appelsínur í
skál á búðarborðinu sínu. Þá kom
inn maður og keypti helminginn af
appelsínunum og hálfa appelsínu
betur. Þegar hann var nýkominn át
úr dyrunum kom inn maður og
keypti helminginn af því sem eftir
var, að viðbættri hálfri appelsínu.
Loks kom þriðji maðurinn og keypti
helminginn af því sem nú var eftir
og hálfa appelsínu i viðbót. Og þá
var skálin tóm! Hvað voru margar
appelsinur i skálinni, þegar fyrsti
iraðurinn kom? Þess má geta, að
kaupmaðurinn þurfti enga appelsínu
að skera í sundur, en seldi aðeins
heila ávextina.
•jnuisiadde :SuiugBu
SkipsbmísmEnnirnir
á KæningjaEyjunni.
Framhald.
7. Þegar Bob kom til Sveins kom
það á daginn, að það sem fest var
við hálsband hundsins var saman-
vafið pappírsblað. Sveinn braut það
sundur og las: „Kínverskir sjóræn-
ingjar hafa náð skipinu á sitt vald
og eru að ræna farminum. Jeg hefi
falið mig í akkerisrúminu þessa
stundina, hjá Bob. Ræningjarnir erti
allstaðar að leita að injer, þvi að
þeir hafa sjeð mig, og bráðum taka
Jieir mig víst. Ætla að reyna að
senda Bob lil þín með þetta brjef.
HJÁLP! lvomdu eins fljótt og þú
getur, Jiví að verið getur að við
getum unnið bug á sjóræningjunum,
sem eru fremur illa vopnaðir. En
bíddu Jiangað til fer að skyggja.
Páir..
8. Þeir Sveinn og Páll höfðu
i'undið gamlan skipsbát, þegar þeir
voru að kanna eyjuna og var hann
liálf sandkafinn í fjörunni. Nú skildi
Sveinn að sjóræningjarnir mundu
liafa skilið þennan bát eftir ein-
hverntíma, til þess að nota hann
seinna. Hann gróf sandinn ofan af
bátnum og reyndi að koma honum
út. Og hann flaut! Árar voru þarna
líka og nú fór Sveinn til Gerðu og
sagði henni, hvaða klípu vinur
þeirra væri kominn í, um horð í
skip'inu. Gerða lieimtaði undir eins
að fá að verða samferða út í skipið,
og sagðisl geta orðið að einhverju
liði.
9. Þegar dimt var orðið um
kvöldið rjeru Sveinn og Gerða eins
hljóðlega og þau gátu útt að skip-
inu. Sveinn liafði tekið riffilinn sinn
með sjer til vonar og vara. Þegar
þau nálguðust skipið, sáu þau að
ljós logaði i einu kýrauganu og
Sveinn rjeri bátnum varlega þangað.
Tekst Sveini og Gerðu að freha
Pál?.Við sjáum til, í næsta blaði.
Táta frænka.
A síðustu árum er farið að gera
nýja tegund af orgelum í Ameríku,
sem þykja ein hin merkilegustu
hljóðfæri, sem gerð hafa verið. Það
eru liin svonefndu Hammond-raf-
magnsorgel. Þau hafa meiri hljóm-
brigði en nokkur önnur hljóðfæri
og meira hljómmagn en nokkur
pípuorgel og komast þó fyrir í lit-
illi stofu. Á þessum orgelum eru
engar pípur, en tónarnir eru fram-
leiddir riieð rafmagnssveiflum. Org-
elin eru á stærð við litið skrifborð
en þó er hægt að framleiða með
þeim 253 miljón mismunandi liljóm-
birgði. Og liau eru tiltölulega ódýr.
Prestakirkjan í Oslo eignaðist eitt
af þessum hljóðfærum nýlega og
reynist það svo vel, að um fjörutiu
kirkjur og samkoinuhús í Noregi liafa
þegar pantað samskonar hljóðfæri.