Fálkinn


Fálkinn - 23.10.1937, Side 11

Fálkinn - 23.10.1937, Side 11
FÁLKINN 11 YNGfffl LEf&NbURNIR Tílraun í þvottaskðlinni. Þið takið ferhyrnt pappírsblaS os kiknið á það þríhyrning með blý- anti, en vætið blýantsoddinn áður en þið teiknið myndina. Svo legg- i •< þið pappírsblaðið i vatnsskál, þannig að það fljóti en látið svo nokkra dropa leka varlega ofan á mitt blaðið þangað til að vatn er komið innan í allan þríhyrninginn, Vegna þess að blýantsstrikin á blað- inu eru vot er síður hætta á að vatn- ió renni út fyrir þríhyrninginn, en það má það heldur ekki gera. Nú tókum við nál og dýfum oddinum á henni ofan i vatnið, sem er á þrí- hyrningnum, en þó þannig, að odd- urinn snerti ekki pappirinn. Og þá skeður það skrítna að pappírinn flytur sig þangað til miðdepill þrí- hyrningsins er kominn beint undir nálaroddlinn. Þið getið gjarnan merkt miðdepilinn á pappírinn áð- ur, syo að þið sjáið hvort þetta er ekki rjett. ----x--- Gott ráð. Svona fór strákur að, sem varð fyrir því óhappi, að slangan bilaði á reiðhjólinu hans og hann hafði ekki neitl tit að gera við hana með. Til- þess að skenima ekki barðann á hjólinu á leiðinni til reiðhjóla- smiðsins, þá tók hann annan hjóla- skautann sinn, batt hann á hjólið og setti hemilinn á það, svo að það gæti ekki snúist. Og svo ók hann hjóliinu eða þríhestinum ykkar En það eru fæstir sem hafa hjóla- skauta, svo að jeg býst ekki við að þið notið ykkur ráðið. Ef gúmmíhringurinn á hlaupa- hjólinu eða jjríhjólhestiiium ykkar eyðilegst þá verðið þið að reyna að bæta úr því, enda er það ekki eins erfitt og þið lialdið. Reynið að ná ykkur í gamlan bifreiðahring og skerið úr honum 15 sentimetra breiðán hólk. Svo berið þið gúmmi- lím á báðar hliðar hólksins og þenj- ið hann utan um glerkrukku, sem ei heldur minni í þvermál en hjól- ið, sem hringurinn á að vera á. Þegar límið er orðið þurt þá vefjið þið gúmmíhólkinn saman í hringfsjá mynd c að ofan) og seljið hann á hjólið, en gætið þess að brúnin á hringnum viti inn í hjólraufina. Það veitir ekki af, að þið hjálpist að tveir við þetta. Setjið hringinn fyrst í rjettar skorður á helminginn af hjólinu og svo heldur annar ykkar hólknum í þeim skorðum en hinn teygir á, þangað til hringurinn kemst alveg á hjólið. Ef mjög þröngt er, verðið þið að nota skrúfjárn til þess að þvinga hringinn á hjólið. ---------------x—■—- Fiðrildið. Hjerna sjáið þið mynd af fiðrild'. stm getur flogið, en sem tiltölulega auðvelt er að búa til. Efnið sem þið notið eru tveir ávalir tappar (það svarta á myndinni) 4 smáspítur, um 15 sentimetra langar, þunt pappa spjald, gúmmíteygja og ofurlítið af stálvír, alt svo ljett sem hægt er að fá það. Spiturnar (1, 2, 3 og 4) eru yd’dar og stungið í tappana eins og myndin sýnir. Stálvírsspotta, sem er krókbeygður í annan endann, er stungið gegnum efri tappann og gegnum perlu þar fyrir ofan, tit ]>ess að fyrirbyggja að loftskrúfan núist við tappann. í neðri tappann er líka festur krókur úr vír og gúmmíteygja fest milli krókanna. Nú er grindin tilbúin. Vængirnir eru i’n þunnum pappa og hafa þá lögun, sem myndin sýnir og eru saumaðir ’i spíturnar. Mótorinn, eða rjettara sagt teygjan, er þanin með því að snúa loftskrúfunni, en hún er úr þiinnu blikki. Gðfnapróf. Jörgen fer klukkan (i að morgni frá Berlin áleiðis til Rómaborgar. Þegar hann er kominn inn i járn- brautarlestina fer hann að tala við eftirlitsmanninn, sem líst vel á strák inn og segir, að hann skuli fá ó- keypis far til Róm, ef hann geti reiknað hve mörgum hraðlestum þeir mæti á leiðinni. Þær sjeu 24 tima á leiðinni, eins og lestin sem hann sje í, og það fari ein lest frá Róm á hverjum klukkutíma. Nú fór Jör- gen að brjóta heilann um þetta og komst að sömu niðurstöðu, sem svo margir mundu komast, að hann ætti að mæta 23 hraðlestum, en eftirlitsmaðurinn brosti og hristi höfuðið, svo að það varð ekkert úr því að Jörgen fengi t'arið sitt ó- k.eypis. Hann gleymdi þvi nefnilega. að fyrir utan þær 23 lestir, sem fóru frá Róm frá þeirri stundu, er hann lor frá Berlín, eru líka 24 lestir á leiðinni, og þær eiga allar að mætá lest Jörgens. ,,Æ, góða frænka, viltu elcki konui með okkur i indíánaleik. Við ætlnra að hafa jrig til að skjóta á“. Myndin er tekin a 'götu í Tientsm og sjást þar japanskir hermenn á ftrli með byssur og lagvopn, en fremst á myndinni sjásl sandpokar, sem gatan héfir verið þvergirt með. JAPANSKIR HERMENN. Myndin er af tveimur japönsklmi hermönnum á leið til herdeildar sinn- ar á vigstöðvunum við Peiping. NYTT ZEPPELINSKIP. Hjer á myndinni sjest undirbygg- ing liins nýja risaloftskips, LZ 13ú. sem Þjóðverjar eru nú að smíða á skipasmiðastöðinni i Friedrichsliaf ■ en. Skip þetta verður fylt með hel- ium, en ekki vatnsefni, því að sanm- ingar hafa nú tekist við Bandaríkin um, að þau selji Þjóðverjum helium framvegis. PRÁ SHANGHAJ. Myndin hjer að ofari er af Nan- krng Road i Shanghaj, en þetta stræti er ein mesta vqrslunargata i alþjóða-borgarhlutanum. Hefir gata þessi nú orðið fyrir miklum skemd- urri af sprengjum Japana.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.