Fálkinn - 26.03.1938, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
------ GAMLA BlÓ ------------
Svo lengi mð læra
sem lifir.
Fjörugur og skemtilegur gaman-
leikur, tekin af Paramount.
Aðalhlutverkin ieika:
ELEANORE WHITNEY,
ROBERT CUMMINGS.
Sýnd bráðlega,
Gamla Bíö sýnir bráðlega gaman-
mynd, sem nefnist „Svo lengi má
læra sem lifir“. Þetta er ljett og
skemtileg „revíu“-mynd, sem fjallar
um unga og fallega dollaraprinsessu,
dóttur kvikmyndakóngs eins í Holly-
wood. Hún hefir haft jjann sið að
halda sig sem mest á vinnustöðvum
kvikmyndaleikaranna og kann bezt
við sig þar, enda þekkir hún alla
meira og minna, alt frá yngsta véla-
dregnum upp í sjálfan aðaleikstjór-
ann. Stjúpu hennar geðjast alt ann-
að en vel að þessu hátterni. Hún
vill láta stjúpdóttur sína umgangast
„fína“ fólkið og læra mannasiði,
vera í leiðinlegum fjölskylduboðum
og því um líku. Hún fær því föður
hennar til þess að fallast á það, að
senda hina ungu dóttur sína í
kvennaskóla fyrir heldri manna dæt-
ur, og þangað fer liún nú. En í skóla
þessum liefir alt gengið á trjefótum.
Hann er orðinn gjaldþrota, allir nem-
endur farnir, og kennararnir eru
búnir að ná sjer í önnur störf ann-
ars staðar. En svo vill til að for-
stöðukonan leyfir leikflokki einum,
sem hafði átt við það böl að búa,
að fáir vildu heyra hann eða sjá, að
halda til i skólahúsinu, — nóg var
plássið, er nemendur voru farnir, —
og leikstjórinn gerir nú það bragð.
að þegar dollaraprinsessan kemur,
tekur leikflokkurinn á móti henni
með miklum fögnuði, og er nú svo
látið sem hann sé kennarar og nem-
endur skólans. Hina ungu stúlku
grunar fljótt hvernig í öllu liggur
en henni geðjast svo vel að dvölinni
þarna og hinum nýju kunningjum að
hún lætur sem ekkert sje. Þvert á
móti tekur hún þátt í allri skemtun
og gamni, dansar af snild og syngur
eins og lævirki. Ákveða þau nú að
koma upp skólarevíu, og tekst hún
ágætlega. Föður hinnar ungu stúlku
er boðið og hann verður svo hrif-
inn af leiknum, að hann fær leik-
arana til þess að leika liann fyrir
kvikmynd í Hollywood og þetta tekst
svo vel, að framtíð flokksins er
borgið. Skemtilegt ástaræfintýri er
Guðbrandur Tómasson fyrver-
andi ,bóndi á Skálmholti í Ár-
nessýslu, varð 75 ára 18 marz■
Sjómenn!
{ Verkamenn!
£ Ávalt fyrirliggjandi:
Olíustakkar, margar tegundir, og
Olíufatnaður allskonar
Togara-doppur og -buxur
Peysur, m. teg. — Treflar
Vinnuskyrtur — Vinnusloppar
Nankinsfatnaður — Khakifatnaður
Vinnuvetlingar — Skinnhanskar fl. teg.
Nærfatnaður, fjölda teg. — Sokkar venjul.
Gúmmístígvjel, allar stærðir og hæðir
Sjósokkar — Hrosshárs-Tátiljur
Klossar og Klossastígvjel með og án fóðurs
Kuldahúfur — Hitabrúsar — Svitaklútar
Maskínuskór — Gúmmískór — Madressur
Ullarteppi — Vattteppi — Baðmullarteppi
Axlabönd — Mittisólar, leður og gúmmí
Olfliðakeðjur — Handklæði
Fiskihnífar — Vasahnífar — Dolkar
Sjófata- og vatnsleðurs-áburður
Sjófatapokar, ásamt lás og hespu
■ Björgunarvesti, sem allir sjómenn ættu að
eiga og vera i
Hvergi betri vörur Hvergi lægra verð
£ Verslun O. Ellingsen h.í.
ofið inn í leikinn. Auðvitað verður
liin unga mær ástfangin af unga
manninum, sem leikur á móti henni,
og að lokum bindast þau böndum
órjúfandi ástar. Skemtilegur, fyndinn
og fjörugur leikur, sem kemur öllum
i gott skap.
John Horton, öðru nafni „Járn-
hertoginn“ er talinn mesti matgogg-
ur sem uppi hefir verið. Horton var
svertingi og átti heima í Texas. Hann
át eggjaskurn, gler, heilan klasa af
banönum (með leggjum og öllu sam-
an), 40 punda grasker, heila kýr-
lifur liráa, dagblöð og þykka verð-
lista. Honum varð ekki skotaskuld
úr að drekka fimtán potta af vatni
í striklotu og 138 egg í eina máltíð.
Og tíu pund af hráu nautaketi. Hort-
on vann allmikið fje í veðmálum um
hvað hann gæti jetið. Auðveldastur
þótti honum sigurinn er hann veðj-
aði um að hann gæti jetið tólf
tveggja punda hænuunga steikta.
Erfiðara þótti honum að jeta tólf
stórar sítrónur sykurlausar og ineð
Snæbjörn Jakobsson, steinsmið-
ur, verður 75 ára 26. rnars.
Sigurður Fjeldsted, bóndi að
Ferjukoti, varð 70 ára 2k. þ. m.
------- NÝJA BlÓ. -------------
Hin ákærða.
Spennandi og áhrifamikil mynd
með dular.fullu morði í leikhúsi
í París og stórkostlegu rjettar-
haldi, sem liggur nærri, að
endi með því, að saklaus sje
dæmdur fyrlr sekan.
Aðalhlutverkin leika
DOUGLAS FAIRBANKS YNGRI,
DOLORES DEL RIO,
FLORENCE DESMOND o. fl.
Sýnd innan skamms.
Nýja Bíó sýnir á næstunni mynd,
sem vekja mun athygli og hljóta
mikla aðsókn. Myndin heitir „Hin
ákærða“ og gerist í leikhúsi einu í
París og síðan aðallega í rjettar-
salnum. Fyrri hluti myndarinnar er
að vísu hversdagslegur. Leikhúsæf-
ingar með dansi, söng og venjulegum
smáatvikum í lífi leikhúsfólksins.
Ung hjón, leikin af Douglas Fair-
banks yngri og Doleres del Rio,
eru ráðin til þess að dansa á reviu-
sýningu í leikliúsinu, og einmitt það
skemmtiatriði þykir mest um vert.
En prímadonnan í leikhúsinu, sem
leikin er af Florence Desmond, læt-
ur sjer fátt um finnast dansinn, en
gerir sjer hins vegar meira far um
að ná ástum hins unga eiginmanns.
Enda þótt hann láti ekki auðveld-
lega tælast af henni, fer þó ekki
hjá því, að hin unga kona fái vitn-
eskju um það, að hann hafi heim-
sótt leikkonuna í búningsherbergi
hennar, þar sem hann raunar móð-
gaði hana alvarlega, og alvarleg af-
brýðissemi gerir vart við sig hjá
henni, og hún fái þungan hug til
leikkonunnar. Þau hjónin sættast þó
fullkomlega og skilja hvort annað.
Á einni æfingunni verða þessar kon-
ur alvarlega reiðar og eiga alvarleg
orðaskipti saman, en nóttina eftir
finnst leikkonan myrt í herbergi
sinu í leikhúsinu með hnífi, sem
hin unga kona átti og notaði í leik
sínum. Hefst nú síðari aðalþáttur
leiksins, sem er stórum tilkomu-
meiri en sá fyrri, en það er rann-
sókn þessa dularfulla morðs og rjett-
arhöldin i því, sem eru með hinu
stórfenglegasta, sem sjest hefir i
þeirri grein i kvikmynd. Öll bönd
berast að hinni ungu konu. Hún er
sett í fangelsi á meðan á rannsókn-
inni stendur og ákærð fyrir morðið.
Maður hennar og hinn snjalli verj-
andi hennar gera alt, sem unt er
til þess að sanna sakleysi hennar,
en málstaðnum virðist ekki hjarg-
andi, þrátt fyrir það, þótt hún sje
saklaus. Á síðustu stundu fær málið
óvænta og áhrifamikla lausn, sem
engan liafði rennt/ grun í, og hinn
seki finnst. Leikendurnir leysa hlut-
verk sin prýðilega af hendi og alt
er svo um mynd þessa, að áhorfend-
ur hljóta að risa ánægðir úr sætum
sínum, þegar henni er lokið.
berkinum. IJn mestan orðstír gat
hann sjer er hann át heilan poka af
sementi. Ljet hann svo um mælt
eftir á, að það mundi hann trauðla
gera aftur, vegna þess að eftir þessa
máltið hefði sjer orðið ilt i magan-
um, í eina skiftið á æfinni.
Nýlega var verið að grafa fyrir
neðanjarðar-sporbraut í London.
Fanst þar í leirnum steingerfingur
af krabba, sem er talinn 50 milljón
ára gamall.
-----x----
í Berlín eru til tvíburar, sem
báðir hafa hjartað hægra megin.
Hinsvegar er lifrin og botnlanginn
vinstramegin. Að öðru Íeyti eru tví-
burarnir rjett skapaðir og báðir eru
þeir við bestu heilsu.